Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Draugur við Hornbjarg og tannlæknir í fjöru

Draugur við Hornbjarg og tannlæknir í fjöru
Útsýni af Kálfatindi á Horn­bjargi. Séð yfir Hornvík. Mynd: Pétur Ásgeirs­son,

Ein­angr­að­asti staður á Íslandi er vænt­an­lega Horn­bjargsviti við Látravík. Þangað kemur varla mann­vera á tíma­bil­inu frá ágúst­mán­uði og fram í júní, þegar vaskur hópur frá Ferða­fé­lagi Íslands mætir til að opna skála félags­ins. Um tveggja mán­aða skeið er ys og þys á þessum eyð­islóðum þegar ferða­menn streyma þangað til að njóta úti­vistar við ysta haf og upp­lifa tíma sem einu sinni var.

Í dag er eng­inn vita­vörður á Horn­bjargi. Skála­verðir Ferða­fé­lags­ins greiða götu gesta og gang­andi. Fólk gistir í gamla vita­varð­ar­hús­inu og sumir fá sér lands­frægar fiski­bollur Halldórs Hafdal Hall­dórs­sonar sem veiðir fisk­inn, verkar og býr til boll­urnar. Í næsta nágrenni við húsið skott­ast refir um, óhræddir við mann­eskjur. Það er enda bannað að drepa refi í friðland­inu.

Horn­bjargsviti. Ferða­fé­lag Íslands heldur úti gisti­þjón­ustu á sumrin.

Horn­bjargsviti á sér langa sögu og sum­part heill­andi sögu frá mann­lífi sem var þar um ára­tuga­skeið. Þjóð­sagna­per­sónur á borð við Óla komma, Óskar Aðal­stein og Jóhann vita­vörð hafa markað sín spor á þessum slóðum; sumir lengur en aðrir. Eitt sum­arið kom upp dul­ar­fullt atvik. Óli var á staðnum ásamt konu sinni þegar þau sáu göngu­mann koma aðvíf­andi. Hann gekk að vél­ar­hús­inu við hlið íbúð­ar­húss vita­varð­anna og staldr­aði þar við. Óli ætl­aði að heilsa upp á hann, en þá brá svo við að gest­ur­inn gekk hratt í burtu og hélt upp Axar­fjallið. Kona Óla spurði hvort hann kann­að­ist eitt­hvað við mann­inn, en hann sagði svo ekki vera. „Hann er ekki þessa heims,“ sagði hann. Konan spurði þá hvernig hann vissi það. Óli sagði það vera ein­falt. Það fylgdi honum eng­inn skuggi.

Vitavörður með tannpínu

Ótal sögur eru til frá tímum vita­varð­anna. Horn­bjargsviti var lengst af eina byggða bólið á öllum Horn­ströndum. Þeir dagar komu að ein­ungis fugl­inum fljúg­andi var fært á þessar slóðir sem á vetrum eru gjarnan ram­maðar inn af hafís og stál­gráum fjöllum. Það er auð­velt að lifa sig inn í það þrek­virki þegar Jóhann vita­vörður fór upp á Axar­fjall með tal­stöð til að leið­beina skipum fyrir Horn í gegnum haf­ís­inn.

Grein­ar­höf­undur á leið í Látravík.

Það komst í fjöl­miðla þegar Óli vita­vörður fékk tann­pínu. Þá var mönnum vandi á höndum. Vita­vörð­ur­inn mátti ekki yfir­gefa vakt­ina þótt varð­skip gæti sótt hann og komið honum undir lækn­is­hendur. Lausnin varð end­anum eins og með Múhamed og fjallið. Afráðið var að tann­læknir frá Ísafirði kæmi með varð­skip­inu til Látra­víkur.

Horn­bjarg.

Þeir sem til þekkja vita að það getur verið erfitt að lenda í fjör­unni undir vit­anum. Þegar varð­skipið kom siglandi með tann­lækn­inn var á mörk­unum að hægt væri að lenda. Það var því gert neyð­ar­plan. Óli vita­vörður varð að vera í fjör­unni og helst með opinn munn. Gúmm­bát­ur­inn sætti lagi og lenti í fjör­unni. Tann­lækn­ir­inn stökk upp í fjöru með þau tól sem þurfti. Á örskots­stundu dró hann skemmdu tönn­ina úr vita­verð­inum og stökk aftur um borð í gúmm­bát­inn sem hélt þegar frá landi.

Flestir þeir sem heim­sækja Horn­bjargsvita ganga sem leið liggur til Horn­víkur til að njóta þeirrar svim­andi feg­urðar sem þar er að finna. Algengt er að fara beint upp frá vit­anum og um Kýrskarð. Sú leið er flestum fær. Hinn mögu­leik­inn er að ganga með brúnum Horn­bjargs, með fram Dög­un­ar­felli, um Almenn­inga og koma niður að Horn­bæj­unum. Þeir sem þora koma við á Kálfatindi, hæsta punkti Horn­bjargs. Sú ganga er ekki fyrir loft­hrædda.

Það verður eng­inn svik­inn af því að heim­sækja Horn­bjargsvita. Í skál­anum er að finna mikið bóka­safn með fróð­leik um stað­inn og svæðið allt. Þegar vindur og regn berja á hús­unum er nota­legt að hjúfra sig niður með bók í hönd og kynna sér sögu þessa dásam­lega og hrika­lega staðar and­stæðn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð