Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Elísabet í bata eftir að líkaminn reyndi að hafna nýranu: „Bæði röddin og augun voru brostin“

Elísabet í bata eftir að líkaminn reyndi að hafna nýranu: „Bæði röddin og augun voru brostin“
Elísabet Jök­uls­dóttir Mynd: Facebook

Elísabet Jök­uls­dóttir er öll að koma til eftir að hafa veikst illa en hún fékk nýverið grætt í sig nýra.

Rit­höf­und­ur­inn og ljóð­skáldið ást­sæla, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir varð fyrir því á dög­unum að lík­am­inn tók upp á því að reyna ítrekað að hafna nýr­anu sem hún fékk grætt í sig í byrjun jan­úar. Skrifaði hún nokkrar færslur á Facebook og leyfði þannig fólki að fylgj­ast með veik­ind­unum. Gaf hún Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­urnar, sem eru í raun eins og örsögur, enda Elísabet með betri pennum þjóð­ar­innar.

„Ég er búin að vera með skjald­böku­augu í mánuð, örugg­lega útaf nýrna­að­gerð­inni, augun hafa orðið pínu­lítil og sting­andi eða dauf og sorg­mædd. Augn­lokin hangið yfir einsog óveð­urs­ský. Senni­lega útaf því að ég hef ekki vitað hvað tæki við og ekki verið til­búin til að gleðj­ast almenni­lega fyrr en nú í fyrra­dag. Þá kom gleðin en þakk­lætið kom strax, mjúkt stór­eygt þakk­læti. En að öðru leyti hef ég verið með skjald­böku­augu.

*

Það var soldið sér­kenni­legt hvernig gleðin kom til sög­unnar en það kom til mín kona í mat­salnum sem spurði hvort ég væri komin með nýtt nýra, ég sagði já og þá sagð­ist konan vera hér vegna lifrar­ígræðslu, hún hefði fengið nýja lifur. Og þá varð ég svo glöð að gleðin streymdi um mig, þótt ég þekkti kon­una ekki neitt. Ég óskaði henni til ham­ingju. Og þá hugs­aði ég: Elísabet, þér er óhætt að vera glöð vegna nýrans og taka á móti þessu krafta­verki. Og þá skildi ég allt þetta fólk sem er að óska mér til ham­ingju. Margt fólk sem ég þekki ekki neitt en gleðst vegna mín,“ skrif­aði Elísabet þegar hún var farin að verða veik­burða.

En svo fór að halla undan fæti og Elísabet búin að vera á spít­ala í fjóra sól­ar­hringa:

„Búin að vera á spít­ala í fjóra sól­ar­hringa með sterk ofnæm­is­bæl­ingar lyf í æð og sýkla­lyf í hina æðina. Líkaminn hefur reynt að hafna nýr­anu og Garpur benti mér á að höfnun væri ekki fjarri lagi þegar þessi fjöl­skylda er ann­ars­vegar En þetta er víst allt á bata­vegi og ég þigg góðar bænir. Þetta er svona bakslag í seglin.“

Góðar fréttir

Nokkrum dögum síðar var Elísabet með góðar fréttir en nýrna­gildið hafði lækkað og allt í rétta átt.

„Góðar fréttir.Það var bara í nótt sem hjólin fóru að snú­ast og bat­inn að gera vart við sig, nýrna­gildið (krea­tínið) hefur lækkað og ákveðin teg­und af hvítu blóð­korn­unum hækkað. Ég er orðin mjög tækni­leg í þessu öllu þótt ég hafi ekki skilið neitt í upp­hafi. Vona bara að bat­inn haldi áfram.Ég þakka ást­sam­lega, þið eruð æði að senda mér bænir, hvatn­ingu og hlý orð. Ómet­an­legt og þræl­virka.“Í dag birti Elísabet svo enn betri fréttir.

„Jæja, ég er farin að líta betur út, bæði röddin og augun voru brostin, en nú er röddin komin og mér sýnd­ust augun hafa fengið annan svip. Afsakið, ég ætla aðeins að gá. Jújú. Og ég er ekki eins stirð í hreyf­ingum, ég er bæði búin að vera í hjóla­stól og með göngu­grind en nú er farin að spranga um, var­lega. Þetta hefur sann­ar­lega verið stór aðgerð og tekið mikið á and­lega og lík­am­lega og þegar fólk spyr mig: Er þetta ekki allt annað líf, finn­irðu ekki breyt­ingu á þér, … þá get ég sagt að minnsti vottur um breyt­ingu hefur tekið sex vikur. Og það er sem­sagt í dag.“

Mannlíf sendir Elísa­beti inni­legar bata­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð