Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

50 milljarða vanáætlun Samgöngusáttmála – Borgarstjóri og meirihlutinn krafin um skýringu

50 milljarða vanáætlun Samgöngusáttmála – Borgarstjóri og meirihlutinn krafin um skýringu
Marta Guð­jóns­dóttir Mynd: www.xd.is

Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, fór yfir Sam­göngusátt­mál­ann á laug­ar­dags­fundi Varðar sem hald­inn var í Valhöll í dag . Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði fram til­lögu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær að óskað væri eftir við­ræðum við fleiri sveit­ar­fé­lög sem að sátt­mál­anum standa um að end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði yrði virkjað.

„Sam­göngusátt­mál­inn kveður á um skipu­lag og fjár­mögnun á sam­göngu­innviðum, þar með talið innviðum á almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til 15 ára (2019-2033).

Í ræðu Mörtu útskýrði hún for­sögu sátt­mál­ans, mark­mið hans, kostn­að­ar­liði og fjár­mögnun: „Heild­ar­fjár­mögnun sátt­mál­ans kvað á um fram­kvæmdir upp á 120 millj­arða. Um 50 millj­örðum var ætlað að verja í Borg­ar­línu, álíka upp­hæð í stofn­brautir og afgang­inum í göngu- og hjóla­stíga, göngu­brýr, und­ir­göng, staf­ræna umferð­ar­stýr­ingu og „sér­tækar örygg­is­að­gerðir.“

Um 60-70 manns voru á Morg­un­fundi Varðar. Aðsend/GL

Betri samgöngur annast framkvæmdir

Betri sam­göngur var stofnað 2. októ­ber 2020 og er opin­bert hluta­fé­lag um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins segir: „Ríkið, Reykja­vík­ur­borg, Kópa­vogs­bær, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður, Garðabær, Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes­bær und­ir­rit­uðu sátt­mála um sam­göngu­fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 26. sept­em­ber 2019. Ákveðið var að fram­kvæmd­irnar yrðu í höndum fyr­ir­tækis sem yrði stofnað í kringum þær. Ríkið og sveit­ar­fé­lögin leggja til þrjá millj­arða á ári og fyr­ir­tæk­inu er ætlað að fjár­magna það sem eftir stendur. Annars vegar með þróun Keldna­lands­ins, sem ríkið leggur fyr­ir­tæk­inu til, og hins vegar með inn­heimtu flýti- og umferð­ar­gjalda, verði ákveðið að leggja þau á.“

Vanáætlun upp á 50 milljarða

Marta Guð­jóns­dóttir sagði í ræðu sinni að þau sveit­ar­fé­lög sem mælt hafa með því að end­ur­skoða sátt­mál­ann færðu fyrir því tvenns rök. Þau benda á að upp­haf­leg kostn­að­ar­á­ætlun sátt­mál­ans hafi verið mjög van­á­ætluð auk þess sem að alvar­legar van­efndir á fram­kvæmdum sátt­mál­ans.

Hún útskýrði hvernig að í upp­færðri kostn­að­ar­á­ætlun frá Betri sam­göngum hafi komið fram að tölu­legur heild­ar­kostn­að­ur­inn hafi hækkað úr 120 millj­örðum í 170 millj­arða eða um 50 millj­arða.

Marta sund­ur­lið­aði van­á­ætlun helstu fram­kvæmda:

  • Mislæg gatna­mót á Sæbraut höfðu breyst í Sæbraut­ar­stokk sem þar með hækk­aði úr 2,2 millj­örðum í 17,7 millj­arða.
  • Kostn­að­ar­á­ætlun vegna teng­ingar Arn­ar­nes­vegar við Breið­holts­braut hafði hækkað úr 1,6 millj­arði í 4,9, millj­arða.
  • Miklu­braut­ar­stokkur fór úr 21.8 millj­arði og var kom­inn upp í 27,1 millj­arð.
  • Fyrsti áfangi Borg­ar­línu úr 17.1. millj­arði í 28.1.millj­arða.

Þá sagði hún: „Það sem ekki síst vekur athygli mína við þessa upp­færðu kostn­að­ar­liði eru kostn­að­ar­liðir hinna sex áfanga Borg­ar­línu. Samkvæmt upp­færðum kostn­að­ar­liðum Betri sam­gangna hækkar fyrsti áfang­inn lang, lang mest, úr 17,1 millj­arði í 28,1 millj­arð, eða um tæp 65 pró­sent. Aðrir áfangar Borg­ar­lín­unnar hækka hins vegar miklu minna, hlut­falls­lega, áfangar tvö og þrjú hækka til dæmis ekki nema um 24 pró­sent, enda er mun lengra í þær fram­kvæmdir.“

Hún sagð­ist hafa spurst fyrir um hina upp­færðu kostn­að­ar­á­ætlun og að fátt hafi verið um svör: „Ég meðal ann­ars krafði borg­ar­stjóra og borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans um skýr­ingu á þessu, í ræðu minni í borg­ar­stjórn og ekk­ert þeirra gat gefið við­un­andi skýr­ingu. Þá datt mér í hug að upp­færa sjálf, upp­færslu Betri sam­gangna, og gera ráð fyrir að kostn­að­ar­liðir áfanga tvö, þrjú, fjögur, fimm og sex, hækk­uðu hlut­falls­lega á við fyrsta áfanga, eða um tæp 65 pró­sent. Og þá kemur í ljós að sam­eig­in­legur kostn­aður við alla sex áfanga Borg­ar­línu fer ekki úr 49.6 millj­örðum í 68,6 millj­arða, eins og Betri sam­göngur gera ráð fyrir, heldur úr 49,6 millj­örðum í 81.7 millj­arða. Upp­færður kostn­aður Borg­ar­línu
myndi með öðrum orðum hækka um rúma 13 millj­arða. Upp­færður heild­ar­kostn­aður sátt­mál­ans færi þá ekki í 170 millj­arða, heldur í 183 millj­arða.“

Marta Guð­jóns­dóttir á laug­ar­dags­fundi Varðar í Valhöll í morgun. Aðsend/GL

Ekki er öll sagan sögð

Marta Guð­jóns­dóttir benti jafn­framt á að: „Inn í þess­ari áætlun Betri sam­gangna er hvergi gert ráð fyrir kaupum á öllum þessum „hágæða, fram­úr­skar­andi, lúxus, grænu og umhverf­is­vænu“ vögnum Borg­ar­lín­unnar. Það er heldur hvergi gert ráð fyrir öllum þessum stór­glæsi­legu stoppi­stöðvum og skipti­stöðvum Borg­ar­lín­unnar í þessum kostn­aði. Betri sam­göngur eiga eflaust eftir að koma með ein­hverja skýr­ingu á þessu. En við eigum þá líka eftir að meta það hversu sann­fær­andi þær skýr­ingar verða.“

Vanefndir á sáttmálanum

„Samkvæmt sátt­mál­anum átti að flýta tíu fram­kvæmdum en þrjár lyk­ilfram­kvæmdir voru þó settar í algjöran for­gang. Reykja­vík­ur­borg átti strax að skipta út úreltum, gömlum
klukku-umferð­ar­ljósum, fyrir snjall­ljósa­stýr­ingu. Reykja­vík­ur­borg átti að ljúka við mis­læg gatna­mót Bústað­ar­vegar og Reykja­nes­brautar árið 2021, og Reykja­vík átti að tengja Arn­ar­nes­veg við Breið­holts­braut árið 2021. Nú, árið 2023, hefur enn ekki verið haf­ist handa við þessar fram­kvæmdir,“ benti Marta á í ræðu sinni.

„Ekkert bólar á nýj­ustu tækni í ljósa­stýr­ingum enda vilja borg­ar­yf­ir­völd ekki standa við þann hluta samn­ing­ins. Borg­ar­yf­ir­völd og Betri sam­göngur leyfa sér að halda því fram að ekk­ert hafi verið stað­fest um yfir­burði tölvu­stýrðra ljósa sem senda þó stöðugar upp­lýs­ingar sín á milli, auka umferð­ar­flæði til muna og flokka og safna stöðugt upp­lýs­ingum í mik­il­vægan umferð­ar­gagna­grunn. Þetta eru því fáheyrðar yfir­lýs­ingar í ljósi þess að slík ljós er löngu komin í notkun í flestum stór­borgum Evrópu. Samkvæmt skýrslu Samtaka iðn­að­ar­ins er áætl­aður stofn­kostn­aður af snjall­stýrðum ljósum í borg­inni um 1,5 millj­arðar króna (miðað við verð­lag 2019). Áætlaður ávinn­ingur af slíkum ljósum er tal­inn vera um 15% tíma­sparn­aður fyrir fólks­bíla, 50% minni bið­tími öku­tækja í bið­röðum og 20% meira flæði almenn­ings­sam­gangna. Það er mat Samtaka iðn­að­ar­ins að 15% minni umferð­ar­tafir í höf­uð­borg­inni, með snjall­ljósa­stýr­ingu, muni skila um 80 millj­örðum í ábata fyrir fyr­ir­tæki og heim­ili á líf­tíma fjár­fest­ing­ar­innar. Eru þá ótaldir aðrir ábata­þættir á við mun minni loft­mengun, styttri við­bragðs­tíma fyrir við­bragðs­að­ila og sparnað í öðrum akst­urs­kostn­aði. Það er hins vegar ekki að sjá að borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn hafi áhuga á því að færa sam­fé­lagi sínu 80 millj­arða ábata fyrir einn og hálfan millj­arð króna. Frekar vilja þau ganga á bak orða sinna og brjóta samn­inga, og ekki í fyrsta sinn,“ benti Marta Guð­jóns­dóttir á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð