Haraldur Þorleifsson tísti í dag einhverju sem skilja mætti að hann sé hættur að vinna hjá samfélagsmiðlinum Twitter. Lausleg þýtt:
Tvö ár.
Lærði nokkra hluti. Hitti nokkra frábæra nýja vini. Skilaði af mér nokkrum góðum verkefnum. Hló mikið. Grét smá.
Engin eftirsjá.
Tjáknið sem Haraldur velur í lok færslu sinnar hefur áður verið notuð af starfsfólki Twitter.
Haraldur Þorleifsson var stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno. Salan á fyrirtækinu hans vakti athygli þegar hann valdi að greiða skattinn vegna sölunnar á Íslandi. Haraldur hefur gert góða hluti fyrir íslenskt samfélag og var valinn maður ársins hjá RÚV.































Athugasemdir