Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Samfélagið brást Heiðrúnu: „Ég er fucked, mamma er bipolar og stjúppabbi minn var barnaníðingur“

Samfélagið brást Heiðrúnu: „Ég er fucked, mamma er bipolar og stjúppabbi minn var barnaníðingur“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Nið­ur­staða rann­sóknar Kol­brúnar Kol­beins­dóttur kynja­fræð­ings sem tók við­töl við átta konur sem eru heim­il­is­lausar og halda til í Konukoti, er ekki upp­lífg­andi: Sam­fé­lagið brást kon­unum þá og bregst þeim aftur núna.

Fimm af þessum átta við­mæl­endum urðu fyrir sifja­spelli eða barn­a­níði feðra sinna eða stjúp­feðra.

Kolbrún kemur fram í þætti Ásdísar Olsen, Undir yfir­borð­inu, sem er á dag­skrá Hring­brautar og verður sendur út í kvöld kl. 20.

Ásdís Olsen.

Í þætt­inum ræðir Ásdísi Olsen við Kolbrúnu, sem segir að það sé til hábor­andi skammar hvernig búið sé að þessum hópi kvenna í sam­fé­lagi okkar; þjón­usta við þær er ekki í sam­ræmi við ofbeldis- og áfalla­sögu þeirra; og þá er Konukot óvið­un­andi hús­næði.

Konurnar áður­nefndu eru á aldr­inum 25 til 60 ára; dvöld­ust þær í Konukoti á þeim tíma er rann­sóknin fór fram.

Allar kon­urnar nema ein, áttu börn, og sam­tals áttu þær 16 börn.

Kemur fram að af átta við­mæl­endum höfðu sjö glímt við vímu­efna­vanda. Þá ein­kennd­ust upp­eld­is­að­stæður kvenn­anna af alvar­legri van­rækslu, afskipta­leysi sem og ást­leysi. Allar glíma þær við skað­legan heilsu­far­s­vanda á full­orð­ins­árum; fíkn­sjúk­dóma, geð­sjúk­dóma, lík­am­leg veik­indi og úti­lokun frá fjöl­skyldum sínum.

Heiðrún tjáir sig um æsku sína í rann­sókn­ar­við­tal­inu:

„Ég bara fucked sko. Það var alveg þannig. Það var mik­ill alkóhólismi, mamma mín er bipolar, stjúppabbi minn var bara fáviti sko. Hann var barn­aníðingur, þegar ég lít yfir æsk­una mína, þá sé ég bara svart. …. æskan var bara ömur­leg sko, þannig séð, ég fór í þrjá skóla, ein­elti í tveimur, og svona, síðasti skólinn fínn. Svo náttúrulega ein­hvern veg­inn byrj­aði ég í neyslu beint eftir grunn­skóla og verð svo bara ólétt 16 ára sko. Svo er svolítið búið að vera downhill from there. …. þegar ég er, svona horfi til baka, þú veist, eins og þegar ég lít yfir æsk­una mína, þá sé ég bara svart. Þú veist, þetta er bara svona, þessi tími var bara hræði­legur.“

María ólst upp hjá föður sínum sem mis­notar hana kyn­ferð­is­lega frá 9 ára aldri. Þegar hún er beðin að meta hvað var erf­ið­ast í rann­sókn­ar­við­tal­inu, flæða tárin og hún tekur sér hlé til að jafna sig. Hún segir mis­notk­un­ina erf­ið­asta en það sé ekki lengur vont „bara hér í hausnum“ og bendir á höf­uðið, því þaðan hverfa ekki minn­ing­arnar.

Ásdís lýsir veik­indum móður sinnar, van­rækslu og óeðli­legri ábyrgð sem lögð var á hana sem barn:

„Mamma mín er rosa veik á geði. Ég vakna með litla bróður mínum, klæddi hann og labb­aði með hann í leik­skól­ann, labb­aði í skól­ann. Og svo var allur dag­ur­inn í skól­anum, þá var ég að hugsa hvernig ég ætti, hvort mamma myndi hleypa okkur inn klukkan fimm. Eða hvernig ég ætti þá að gefa honum að borða. Þetta var bara stans­laust, ein­hver ábyrgð sem ég kunni ekki að taka.“

Vert er að hvetja fólk til að horfa á þátt­inn, en hann er sem fyrr segir á dag­skrá Hring­brautar klukkan 20 í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ