Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Magnúsi leiðist í gæsluvarðhaldinu: „Ef ég hljóma hvass þá er ég ekki að reyna það“

Magnúsi leiðist í gæsluvarðhaldinu: „Ef ég hljóma hvass þá er ég ekki að reyna það“
Lögregla ræðir við Magnús í Hér­aðs­dómi í apríl

Líkt og fram hefur komið í fréttum í dag var aðal­með­ferð í svo­kall­aða Barða­vogs­mál­inu tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Þar var rætt við hinn ákærða, Magnús Aron Magn­ús­son, sem ákærður er fyrir að valda dauða Gylfa Begmanns Heim­is­sonar í júní í fyrra. Einnig var rætt við vitni í mál­inu sem og lög­regl­una sem kom að því.

Sagt var frá vitn­is­burði Magnúsar í morgun hjá Mannlífi en hér má lesa frek­ari vitn­is­burð hans fyrir dómi í dag.

Sjá einnig: Magnús lýsir deg­inum í Barða­vogi: „Hann reynir að taka í lapp­irnar en ég sparka í and­litið á honum“

Harkalegt bank

Sækjandi í mál­inu spurði Magnús frekar út í hné­spark sem hann sagð­ist hafa veitt Gylfa í átök­unum. Magnús hafði áður sagt að Gylfi hefði staðið er hann fékk höggið.

„Hné­sparkið. Hvernig fórstu að þessu ef hann stóð?“

Magnús svar­aði: „Hann beygði sig fram og greip í mig og hann hné­spark­aði í and­litið.“

„Slas­að­ist þú í átök­unum?“

Magnús svar­aði því til að hann hefði bólgnað aðeins og fengið blóð­nasir.

„Hvar varstu að vinna á þessum tíma?“ spurði sækj­and­inn Magnús sem svar­aði: „Af hverju viltu vita það? Neita að svara.“

Verjandi Magnúsar bað hann um að lýsa bank­inu frá Gylfa, sem hann hafði áður sagt frá.

Magnús: „Þetta var harka­legt bank.“

„Segir hann eitt­hvað?“

Magnús: „Hann stígur inn og segir „Við þurfum að ræða saman“. Ég var ekki búinn að segja neitt.“

„Geturðu lýst hver eigi fyrstu snert­ing­una? Mannstu það?“

Magnús: „Man ekki.“

„Varstu hræddur við Gylfa?“

Magnús: „Já. Ég meina, viltu vita meira um það akkurat? Sko, hann var ekki það stærri en ég en hann var í víðri skyrtu og virk­aði sterkur, hann var eldri og þroskaðri. Ég var smeykur við hann.“

„Varstu hræddur við það sem var að ger­ast? Verðurðu bara hræddur þegar hann er fyrir utan?“

Magnús: „Ég myndi segja hissa til að byrja með.“

„Þið fallið niður stig­ann, hvor fellur fyrr?“

Magnús: „Þetta var svona eins og snjó­bolti, þetta gerð­ist allt í einu. Ég ligg á bak­inu og hann er yfir mig og ég gríp í hann og toga hann til mín og við föllum niður stig­ann.“

„Hugs­að­irðu ein­hver­tím­ann að þú vildir bana honum?“

Magnús: „Nei.“

„Er hann ennþá með með­vit­und þegar þú átt síð­asta höggið? Veitirðu honum ein­hver högg eftir að hann rot­ast?“

Magnús: „Nei.“

„Hvað leið langur tími frá því að þú hringdir í neyð­ar­lín­una?“

Magnús: „Fór fyrst upp í föt.“

Deildi við annan nágranna

Magnús var spurður hvernig hann sæi fyrir sér fram­tíð­ina

Magnús: „Ég vil ekki svara per­sónu­legum spurn­ingum.“

Einn þriggja dóm­ara rétt­ar­ins spurði: „Hvað vildi Gylfi tala við þig um?“

Magnús: „Eins og ég hef óskýrt var eitt­hvað ósætti milli mín og manns á mið­hæð­inni.“

„Hvað ætl­aði hann að fara að ræða við þig? Svona nákvæm­lega?“

Magnús: „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara þessu.“

„Í hvaða ástandi var hann?“

Magnús: „Hann var skýr, pott­þétt ekki drukk­inn en ég er eng­inn sér­fræð­ingur. Hann var æstur, hann var ekki glaður að sjá.“

„Hafðirðu séð hann eitt­hvað áður?“

Magnús: „Ég hafði séð hann í gegnum glugga á lóð­inni en hef aldrei talað við hann. Finnst þér það skrítið?“

Dómarinn svar­aði því til að nei, það væri ekki skrítið en stundum væru sam­skipti á milli nágranna.

„Af hverju kom hann upp en ekki fólkið á mið­hæð­inni sem var að kvarta?“

Magnús: „Þekkirðu gæj­ann á mið­hæð­inni? Hann er ekki svona alpha, hann er svona nörd, ekki agressív týpa. Hann er ekki týpa til að vera með svona.“

„Út á hvað gekk þessi deila?“

Magnús: „Vand­ræða­legt að tala um þetta en þau voru að leggja mig í ein­elti. Fyrst þegar ég hitti hann þá spurði ég hvort hann væri nýji nágrann­inn, „heldur betur“ svar­aði hann og gekk inn. Spurði hann hversu gam­all hann væri. Hann sagði „54“ ára en hann var 26 ára á þessum tíma. Þau voru mikið að pæla í mér. Þegar vinir komu í heim­sókn voru þau að tala um mig.“

„Af hverju ætti þetta fólk að vera að tala um þig sem þú upp­lifir með nei­kvæðum hætti?

Magnús: „Æ þau vildu bara meina að ég væri skrít­inn. Ég hef enga samúð með þessum gæja. Arn­þrúður spurði mig áðan hvað ég var að gera á þessum tíma en ég var atvinnu­laus og gaur­inn á mið­hæð­inni var alltaf að væla yfir því.“

Sækj­and­inn spurði þá Magnús: „Tengdir þú komu Gylfa við sam­skiptin við mið­hæð­ina? Vissirðu af hverju hann var að koma?“

Magnús: „Ég tengdi þetta bara við deil­urnar. Sko, þau mamma hafði sagt mér að þau hafi verið í þessu hús­fé­lagi saman. Hann var svona með þeim í liði.“

„Var hann uppi­stand­andi þegar þú rot­aðir hann? Voru ein­hver átök eftir það?“

Magnús: „Nei.“

„Eftir að þið komuð út, fannst þér enn stafa ógn af Gylfa?“

Magnús: „Já, hann vildi ekki hætta. Hann sýndi það með því að fara ekki.“

Dómari: „Ég spurði þig varð­andi síð­asta höggið, hvort hann hefði verið liggj­andi eða stand­andi:

„Hann var stand­andi.“

Ósammræmi

Sækj­and­inn fékk orðið: „Það er ósam­ræmi í lýs­ingu hans í skýrslu­töku lög­reglu og svo hér. Í skýrsla­töku segir Magnús að Gylfi hafi „skokkað niður sjálfur“ stig­ann.“

„Ég var ekki í ástandi til að lýsa þessu, þetta var rétt á eftir. Lýsingin er ekki rétt.“

Fram kom í skýrsla­töku lög­reglu rétt eftir atvikið að Magnús seg­ist hafa sparkað ítrekað í and­litið á Gylfa. Í rétt­ar­salnum segir Magnús að upp­takan sem skýrslan er gerð eftir, sé allt önnur, það sé búið að „edita“ papp­ír­inn, hlut­irnir orð­aðir öðru­vísi.

Dómari spyr hvort þetta sé rangt í fyrstu skýrlunni.

„Ég vil bara taka fram að þetta er Microsoft pappír og búið að edita. Tja, það eru 10 mán­uðir síðan, ég man ekki eftir þessu.“

Verj­and­inn spurði: „Hvers vegna sagð­iru ekki rétt frá?“

„Af því að ég var ekki í ástandi. Var illa sof­inn. Ég tek fram, ég var ekki að reyna að bana honum.“

„Í skýrsl­unni sagð­istu hafa fundið fyrir prímat­ísku eðli þegar þú varst að slást við Gylfa. Hvað átt­irðu við?“

„Ég vil taka fram að ég man lítið eftir þessum skýrslum. Sko ég hef aldrei verið í svona aðstæðum áður og hef ekki lýst svona áður þannig að kannski var orða­forð­inn minn ekki nógu góður. En þetta var heima hjá mér og þess vegna var ég extra var­kár.“

Myndband var á þessum tíma­punkti sýnt í rétt­ar­salnum, af skýrsla­töku lög­reglu þar sem Magnús seg­ist hafa bæði kýlt og sparkað í Gylfa þar sem hann lá á jörð­inni.

Verjandi spyr: „Mannstu eftir sam­tal­inu í fanga­klef­anum? Mannstu eftir að hafa verið lát­inn vita að þú yrðir yfir­heyrður í fanga­klef­anum? Var þér bent á að þú þyrfir ekki að tjá sig? Mannstu eftir að þér hafi verið tjáð að þú ættir rétt á verj­anda? Mannstu hvort þú hafir verið spurður hvort þú værir í ástandi til að svara spurn­ingum?“

„Nei, ég man ekki eftir því. Ég man ekk­ert eftir þessu.“

Dómari: „Myndir af vett­vang­inum sýna að það var blóð á dyrakarm­inum í risi­búð­inni, get­urðu útskýrt það?“

„Var það? Nei.“

Magnús var þá spurður út í atvik sem gerð­ist milli hans og ann­ars manns í hús­inu, dag­inn fyrir þennan örlaga­ríka dag en hann neit­aði að tjá sig um það.

Leiðist í gæsluvarðhaldi

Dómari í rétt­inum spurði Magnús á þessum tíma­punkti hvernig honum liði eftir að hafa verið í gæslu­varð­haldi í marga mán­uði.

„Ekki vel. Leiðist,“ svar­aði Magnús. Aðspurður af hverju honum leidd­ist sagði hann tak­markað hægt að gera í gæslu­varð­haldi.

„Leið þér betur í ris­í­búð­inni með mömmu þinni?“ spurði dóm­ar­inn þá

Magnús: „Já, leið betur þar.“

„Hvað varstu að gera þegar þú varst heima?“

Magnús: „Var að horfa á sjón­varpið og fleira og á kvöldin fór ég út að ganga.“

Annar dóm­ari: „Þegar þú varst heima hjá þér, þér leið þokka­lega vel heima, ekk­ert sem var að plaga þig?“

Magnús: „Nei.“

„Hver sá um að versla í mat­inn og annað slíkt?“

Magnús: „Mamma.“

„Sástu um ein­hver hús­verk?“

Magnús: „Háa­loftið. Sótti stig­ann og fór með hann aftur upp. Fór með dót upp. Vaskaði upp.“

„Fórstu mikið út af heim­il­inu á dag­inn?“

Magnús: „Nei, mjög tak­markað.“

„Þegar þú varst yngri er sagt að þú hafir sparkað í hunda og ketti, get­urðu sagt eitt­hvað um það?“

Magnús: „Þetta var 2019.“

„Sóttirðu hjálp eftir það?“

Magnús: „Nei.“

„Óskað­irðu eftir hjálp?“

Magnús: „Nei.“

„Var það eitt­hvað sem þú þurftir hjálp í líf­inu áður en atvikið gerð­ist?“

Magnús: „Ég veit ekki hvort ég eigi að vera að tjá mig um það.“

„Nú kom fram í gögnum að það var tölu­vert mikið magn af áfengi í Gylfa.“

Magnús: „Bíddu, var hann drukk­inn?“

„Já, hann var drukk­inn. Hvarfl­aði aldrei að þér að flýja af vett­vangi?“

Magnús: „Ég var heima hjá mér og þá var ég extra var­kár.“

Dómari: „Hafði sjúkra­hús­lögn mömmu þinnar dag­inn áður ein­hver áhrif á þig?“

Magnús„Já, ég hafði áhyggjur af því. Ég fékk að vita allt í einu að hún væri komin á sjúkra­hús en ég hafði reynt að hringja í hana en hún svar­aði ekki.“

Magnús bað svo sér­stak­lega um orðið eftir spurn­ing­arnar og sagði: „Ég vil taka fram að ef ég hljóma hvass þá er ég ekki að reyna það, er ekki vanur svona aðstæðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð