Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristrún boðar stórátak: „Á Suðurnesjum hefur fólk upplifað sig landlaust í heilbrigðiskerfinu“

Kristrún boðar stórátak: „Á Suðurnesjum hefur fólk upplifað sig landlaust í heilbrigðiskerfinu“
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar boðar tugi opinna funda um heil­brigð­is­mál; hún fór á fyrstu opnu fund­ina á Suð­ur­nesjum í vik­unni, en Kristrún er þó ekki hætt í fæð­ing­ar­or­lofi.

Fyrstu fund­irnir fóru fram á Suð­ur­nesjum í vik­unni þar sem Kristrún mætti til leiks, þrátt fyrir að vera í fæð­ing­ar­or­lofi; fund­irnir eru opnir öllum og eru fyrsta skrefið í nýju og viða­miklu mál­efna­starfi sem Kristrún kynnti á flokks­stjórn­ar­fundi á dög­unum.

Það sætir tíð­indum að íslenskur stjórn­mála­flokkur blási til því­líks fjölda opinna funda um einn til­tek­inn mála­flokk og það á miðju kjör­tíma­bili.

Þetta gefur vís­bend­ingu um áherslur Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir næstu Alþing­is­kosn­ingar en flokk­ur­inn hefur nú ítrekað mælst stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins í skoð­ana­könn­unum.

„Heil­brigð­is­málin og öldr­un­ar­þjón­ustan verða í for­grunni hjá okkur núna og alveg fram á haust. Við byrjum vinn­una með hátt í fjöru­tíu opnum fundum með fólk­inu í land­inu og okkur fannst við hæfi að hefja funda­ferð­ina á Suð­ur­nesjum — þar sem heil­brigð­is­málin hafa svo sann­ar­lega brunnið á íbúum,“ segir Kristrún eftir fyrstu fund­ina sem voru í Reykja­nesbæ, í Garði og í Grinda­vík.

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar heim­sótti Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja (HSS) í síð­ustu viku og fékk mynd með fólk­inu á gólf­inu. Suð­ur­nesin eru fyrstu við­komu­staður í funda­ferð Sam­fylk­ing­ar­innar um heil­brigð­is­mál.

Á hverjum fundi verða full­trúar úr stýri­hópi Sam­fylk­ing­ar­innar um heil­brigðis- og öldr­un­ar­þjón­ustu auk for­ystu­fólks flokks­ins, bæði á Alþingi og í sveit­ar­stjórnum.

„Ég hélt sjálf fjölda opinna funda um land allt á síð­asta ári sem höfðu mikil áhrif á mig. Svona viljum við gera þetta og við tökum vinn­una alvar­lega. Nú und­ir­búum við breyt­ingar á sviði heil­brigð­is­mála enda ekki van­þörf á,“ segir Kristrún.

Kristrún vill „opna flokk­inn“ Kristrún leggur áherslu á að öllum sé vel­komið að mæta á fund­ina og taka þátt. Ekki verði spurt um flokks­skír­teini fólks.

„Við viljum opna flokk­inn og leggja áherslu á að taka sam­tal við fólkið í land­inu. Fólk með sér­þekk­ingu í heil­brigð­is­málum eða reynslu af gólf­inu er auð­vitað sér­stak­lega vel­komið en sama gildir um alla almenna borg­ara sem vilja breyt­ingar til hins betra í heil­brigð­is­málum á Íslandi,“ segir Kristrún og bætir við að þetta sam­talið sé aðeins upp­hafið að viða­meiri vinnu.

„Þetta er bara byrj­unin. Stýri­hóp­ur­inn sem leiðir vinn­una mun einnig eiga fjölda funda með fólki af gólf­inu og öðrum sér­fræð­ingum úr heil­brigð­is­kerf­inu.

Ég fór með á slíka fundi á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja og á Hrafn­istu fyrir helgi. Ég bind miklar vonir við þessa vinnu og hlakka til að kynna þá stefnu sem við munum leggja fram næsta haust í þessum mik­il­væga mála­flokki.“

Kristrún heim­sótti einnig Hrafn­istu á Nes­völlum í Reykja­nesbæ og spjall­aði meðal ann­ars við Arnbjörn Hans Ólafsson, gamlan krata úr Keflavík.

Þó að það verði aldrei allir sam­mála um viða­mik­inn mála­flokk á borð við heil­brigð­is­mál segir Kristrún að það teikn­ist fljótt upp skýr mynd eftir sam­töl við almenn­ing.

„Þetta var mín reynsla af fund­unum í fyrra. Maður fer af stað með stóra mála­flokka og heldur að það sé erfitt að finna rauðan þráð. En það er fljótt að teikn­ast upp ákveðið þema,“ segir hún og bætir við að eftir fyrstu fund­ina á Suð­ur­nesjum sé strax farin að teikn­ast upp skýr mynd af raun­hæfum vænt­ingum fólks til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar:

„Fólki finnst vont að eiga ekki ein­hvern fastan punkt í lífi sínu þegar kemur að í heil­brigð­is­þjón­ustu. Það veldur óör­yggi að eiga ekki fastan tengilið eða teymi sem þekkir til aðstæðna manns og jafn­vel sjúkra­sögu. Á Suð­ur­nesjum hefur fólk upp­lifað sig land­laust í heil­brigð­is­kerf­inu og þetta á auð­vitað við víðar um land. Ég held að fólk sé að kalla eftir heil­brigð­is­þjón­ustu sem hefur kost á að veita fólki þessa örygg­is­til­finn­ingu sem gæti feng­ist með meiri nánd og tíma fyrir per­sónu­legri þjón­ustu.“

Af opnum fundi um heil­brigð­is­mál í Kiwanishúsinu í Garði síð­ast­liðið mánu­dags­kvöld.

Þetta nefnir Kristrún sem dæmi en tekur þó fram að það séu fleiri atriði sem hafi komið fram á öllum opnu fund­unum til þessa.

Kristrún seg­ist þó ekki vera snúin til baka úr fæð­ing­ar­or­lof­inu.

„Nei, ég er enn í orlofi. En mér finnst skipta máli að fylgja þessu verk­efni vel úr hlaði. Þess vegna mæti ég þar sem ég get og tek sam­talið við heima­menn. Og ég hugsa að dóttir mín sé löngu orðin vön svona fundum úr móð­ur­kviði. Auðvitað fylgist ég líka vel með og gæti haft sitt­hvað að segja um fjár­mála­á­ætlun til dæmis — en félagar mínir í þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar standa þá vakt og munu halda rík­is­stjórn­inni við efnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð