Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðlaug klippir tannkremstúpurnar í tvennt – „Við Kalli gerum matseðil nokkra daga fram í tímann“

Guðlaug klippir tannkremstúpurnar í tvennt – „Við Kalli gerum matseðil nokkra daga fram í tímann“
Guðlaug Jóns­dóttir og Karl Kristján Ásgeirs­son. Mynd af Facebook síðu Guð­laugar.

Neytandi vik­unnar að þessu sinn heitir Guðlaug Jóns­dóttir. Guðlaug býr á Ísafirði með eig­in­manni sínum, Karli Krist­jáni Ásgeirs­syni, en synir þeirra búa í Reykja­vík. Hún er mat­reiðslu­meist­ari að mennt, með kennslu­rétt­indi og starfar við heim­il­is­fræði­kennslu í Grunn­skól­anum á Ísafirði. Árið 2012 kom út bók um mat og mat­ar­menn­ingu á Vest­fjörðum. Bókin heitir Boðið vestur og er eftir þau hjón. Haustið 2021 gáfu þau sjálf út bók­ina Í hug­anum heim, en Guðlaug skrif­aði hana. Í bók­inni segir Guðlaug frá æsku­árum sínum á Melum í Hrúta­firði. Í hug­anum heim var til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna 2021 í flokki barna- og ung­menna­bóka.

Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Já, ég geri það að ein­hverju leyti. En, eftir því sem árin fær­ast yfir gerir maður rík­ari kröfur til þess að verð og gæði hald­ist í hendur. Þetta á við bæði í sam­bandi við vörur og þjón­ustu. Í dag getur maður frekar leyft sér að kaupa það sem er vand­aðra. Ég er mjög löt við að fara búð úr búð til að bera saman verð og fagna því mjög til­komu inter­nets­ins þar sem í flestum til­fellum er hægt er að kalla fram upp­lýs­ingar um verð á vörum og þjón­ustu á örskots­stundu.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum?

Við Kalli, mað­ur­inn minn, gerum oft­ast mat­seðil nokkra daga fram í tím­ann og förum eina svona aðal­ferð í viku í Bónus. Við höfum minnkað kjöt­neyslu nokkuð og þótt það sé aðal­lega gert fyrir heils­una er það sparn­aður í leið­inni. Ég er sann­færð um að þetta fyr­ir­komu­lag við inn­kaupin hjálpar til við sparnað, það eru auð­vitað mun meiri líkur á því að ýmiss óþarfi detti í körf­una ef fólk er jafn­vel að fara á hverjum degi í búð, tala nú ekki um ef það er með tóman maga. Ég rækta mikið af græn­meti, sal­ati og krydd­jurtum. Við erum því sjálf­bær að nokkru leiti hluta árs­ins, sér­stak­lega eftir að við fengum okkur gróð­ur­hús núna fyrir tveimur árum. Fyrir utan alla gleð­ina sem rækt­unin veitir er hún auð­vitað líka að skila heil­miklum sparn­aði.

End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð til ann­arra?

Já, ég end­ur­nýti ýmis­legt. Ef ég horfi til fyrstu búskap­ar­ár­anna, þegar fjár­ráð voru afar knöpp, sé ég fyrir mér stór­rósótta sófa­settið sem við keyptum notað og dugði okkur fyrstu árin. Svaka­leg­asta dæmið var auð­vitað erma­lausi, rósótti kjóll­inn sem ég dró upp úr illa þefj­andi hrúg­unni í dósa­söfnun um árið. Kjólinn not­aði ég óspart í nokkur ár, þó aðeins heima við! Reyndar er þetta stór­merki­legt því ég hef prófað nokkrum sinnum að kaupa notuð föt en gengur afar illa að nota þau. Ég skamm­ast mín svo­lítið fyrir þetta og dáist að fólki sem hefur þennan lífs­stíl og sem betur fer fjölgar því hratt. Ég nýti alls­konar plast­dósir sem falla til við rækt­un­ina, bæði hér heima og í skól­anum. Sama plast­pok­ann nota ég oft nokkrum sinnum og nýti poka sem falla til. Annars er plast­poka­notk­unin auð­vitað orðin mun minni en var. Ég get verið hálf manísk á sumum sviðum og verð stundum aðhlát­ursefni sam­ferð­ar­fólks. Ég klippi til dæmis tann­kremstúp­urnar í tvennt og get þannig látið þær duga nokkrum dögum lengur. Sama geri ég við öll krem í plast­túpum, það er ótrú­legt hversu margir skammtar sitja eftir þegar þær hafa verið kreistar. Pítsuplast­brúsa saga ég oft í sundur og næ þannig að nýta alla sós­una. Nú er ég kannski komin út fyrir efni spurn­ing­ar­innar! Í starfi mínu sem heim­il­is­fræði­kenn­ari er mikið komið inn á flesta þætti sjálf­bærni og er end­ur­nýt­ing einn þátt­ur­inn. Börnin læra til dæmis að búa til ný kerti úr gömlum kerta­stubbum og við klippum niður gamlar sokka­buxur og notum sem teygjur í hárið. Ég legg líka mjög mikið upp úr því að kenna þeim góða nýt­ingu á öllu hrá­efni.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Þegar ég kaupi inn fyrir heila viku í einu þarf ég auð­vitað að passa upp á síð­asta sölu­dag á við­kvæmum vörum, útlitið á græn­met­inu og ávöxt­unum og slíkt. Ég kaupi alltaf mjólk­ur­vörur frá Örnu í Bol­ung­ar­vík. Bæði er það vegna gæð­anna en einnig vil ég styðja við mat­vöru­fram­leiðslu á svæð­inu. Fiskinn kaupi ég að sjálf­sögðu hjá honum Kára í Sjáv­ar­fangi. Ég kaupi mér ekki mikið af fötum en við­ur­kenni fús­lega að mér finnst gaman að eign­ast nýja, fal­lega flík. Ég reyni að vanda valið og er hætt að kaupa flíkur bara vegna þess að þær eru svo ódýrar. Ég man ófá dæmi um slíka kaup­hegðun og nota þau óspart til að fræða nem­endur mína. Mér finnst skemmti­leg­ast að gefa eitt­hvað mat­ar­kynns, eitt­hvað sem ég hef bakað, eldað eða búið til. Ég er orðin mun kröfu­harð­ari í sam­bandi við gjafir sem ég gef. Þá á ég ekki við að gjöfin þurfi að kosta svo og svo mikið heldur það að hún nýt­ist sem best, veki gleði og komi að notum. Hvað er betra en gleðja fólk í gegnum munn og maga?

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Súkkulaði. Hef ánetj­ast dökku súkkulaði og er reyndar ekk­ert á þeim bux­unum að draga úr neysl­unni enda er hún sjálf­sagt ekk­ert á neitt svim­andi háu stigi. Annars dettur mér helst í hug allt plastið. Það er ótrú­lega erfitt að reyna að sneiða hjá vörum í plasti og manni blöskrar allt það magn sem kemur frá tveggja manna heim­ili.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?

Já, hún skiptir mig máli. Auðvitað er hver ein­stak­lingur eins og agn­ar­smár maur og skiptir litlu í heild­ar­sam­heng­inu, sér­stak­lega ef við miðum við risa­stórar eit­urspú­andi verk­smiðjur, útblást­ur­inn frá flug­um­ferð­inni á heims­vísu, plastið í haf­inu og aðra slíka stóra þætti. Ég held samt og veit að hvert lítið skref sem hver ein­stak­lingur tekur í átt til meiri sjálf­bærni hefur áhrif til góðs. Við þurfum að fræða börnin og fara á undan með góðu for­dæmi.

Annað sem þú vilt taka fram?

Í gamla daga skamm­að­ist ég mín hálf­part­inn fyrir mömmu þegar hún skol­aði plast­pok­ana og hengdi þá upp til þerris. Mér fannst systir mín líka ægi­lega púka­leg þegar hún tók með sér tuðrur í mat­vöru­búð­ina. Nú geri ég hvoru­tveggja sjálf og er stolt af mömmu minni heit­inni og systur. Ég flokka sam­visku­sam­lega þó maður viti ekki alltaf hverju það breytir. Auðvitað er aðal­at­riðið að kaupa minna –  kaupa minna drasl! Kaupa bara það sem maður virki­lega þarf, ham­ingjan verður víst ekki fengin með því að sanka að sér dauðum hlutum.

Hér fylgir með upp­skrift að fiski­bollum úr bók­inni Boðið vestur. Fjöldi fólks hefur haft sam­band og dásamað boll­urnar! Aðal­at­riðið er að vera með glæ­nýjan og ferskan fisk, ýsu eða þorsk. Í upp­skrift­inni er talað um fisk­hakk. Sjálf geri ég alltaf boll­urnar í mat­vinnslu­vél. Mauka vel saman fisk, lauk og eggja­hvítur og bæti síðan öðru hrá­efni við.

Fiski­bollur – gam­all og góður hvers­dags­matur

800 g ýsu­hakk
stór laukur, saxaður fínt
eggja­hvítur
4 msk. hveiti
4 msk. kart­öflu­mjöl
2 tsk. aró­mat
½ tsk. salt
1/8 tsk. pipar
mat­ar­olía eða smjör/smjör­líki til steik­ingar.

Setjið hakk­aða ýsuna ásamt lauk og eggja­hvítu í hræri­vél­ar­skál eða góðan bland­ara og þeytið saman í svolitla stund. Bætið út í hveiti, kart­öflu­mjöli, arómati, salti og pipar.

Hitið olíu og/eða smjör/smjör­líki á pönnu og steikið boll­urnar þar til þær hafa náð fal­legum lit. Bakið í ofni á 130°C í 10-15 mín­útur.

Með boll­unum er til­valið að hafa kart­öflur og brúna lauk­sósu. Skerið heilan lauk niður í skífur og steikið í potti upp úr olíu og smjöri. Kryddið með salti og pipar. Bætið svolitlu hveiti út í pott­inn og leyfið því að rist­ast aðeins með. Bætið köldu vatni í litlum skömmtum út í og hrærið vel á milli. Kryddið til með krafti, salti og pipar. Sósuna má einnig þykkja á annan hátt. Kar­rísósa og hrís­grjón koma einnig vel til greina. Okkur finnst einnig nauð­syn­legt að hafa gott salat með eplum með fiski­boll­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ