Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigurvin: „Til að virða val ung­menn­is­ins skráðu for­eldr­ar barnið nauðbeygt í þjóðkirkj­una“

Sigurvin: „Til að virða val ung­menn­is­ins skráðu for­eldr­ar barnið nauðbeygt í þjóðkirkj­una“

Séra Sigurvin Lárus Jónsson er prestur við Frí­kirkj­una í Reykja­vík; hann segir að ferm­ing­ar­barni er fermd­ist í Graf­ar­vogs­kirkju í ár – stærsta söfn­uði þjóð­kirkj­unnar – hafi verið gert að skrá sig úr Frí­kirkj­unni og í þjóð­kirkj­una til að geta fermst þar.

„Til að virða val ung­menn­is­ins skráðu for­eldr­ar þess barnið nauð­beygt í þjóð­kirkj­una og leið­réttu síðan trú­fé­lags­skrán­ing­una dag­inn eft­ir í sam­ráði við ung­mennið.“

Þetta segir séra Sigurvin í skoð­ana­grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Séra Sigurvin bendir á í grein að ferm­ingin sé mik­il­vægur áfangi í lífi ungs fólks.

„Það dýr­mæt­asta sem full­orðið fólk get­ur miðlað ung­menn­um sín­um á ferm­ing­ar­dag­inn er víð­sýni og sam­staða með þeirri ákvörðun sem ung­mennið tek­ur. Í barna- og ung­linga­starfi voru börn sem til­heyrðu öðrum kirkj­um eða trú­ar­brögðum, jafn­vel mús­lím­ar og búdd­ist­ar, og á þeim árum var ekki gerð krafa um trú­fé­lags­að­ild til að vera með. Það er enda eðli þjóð­kirkju að þar sé vítt til veggja og hátt til lofts.“

Bætir við:

„Ástæðan var sögð fjár­hags­leg, að ung­mennið mætti ekki njóta þjón­ustu Grafar­vogs­kirkju án þess að vera skráð í trú­fé­lagið, en eng­in krafa var gerð um að for­eldr­arn­ir skiptu um trú­fé­lag,“ segir séra Sigurvin sem bætir því við að þessi breyt­ing sé hrein­lega dap­ur­leg.

„Ef prest­ar Grafar­vogs­kirkju líta svo á að ferm­ing­in sé viður­kenn­ing á trú­fé­lags­að­ild er það þröng sýn á ferm­ing­una. Ef kraf­an er trú­fræði­leg má benda á að játn­ing­ar­lega er eng­inn mun­ur á Frí­kirkj­unni og þjóð­kirkj­unni, þótt áhersl­ur og stjórn­skipu­lag séu annað. Ung­menni eiga ekki að vera sett í þá stöðu að velja á milli þess að fylgja fé­laga­hópn­um og fjöl­skyldu sinni í trú­fé­lags­að­ild. Þjóð­kirkj­an get­ur ekki sam­tím­is sagst virða trú­frelsi og fjöl­menn­ingu og gert þá kröfu að öll þau sem þiggja þjón­ustu séu með­lim­ir í trú­fé­lag­inu.

Þjóð­kirkj­an hef­ur það fjár­hags­lega for­skot á Frí­kirkj­una að laun þjóð­kirkju­presta eru greidd sam­kvæmt samn­ingi við rík­is­sjóð á meðan Frí­kirkj­an greiðir laun sinna presta ein­göngu af trú­fé­lags­gjöld­um með­lima sinna.

Þrátt fyr­ir það rukk­ar Grafar­vogs­kirkja 21.194 krón­ur fyr­ir ferm­ing­ar­fræðslu en ferm­ing­ar­fræðsla Frí­kirkj­unn­ar er öll­um að kostn­að­ar­lausu. Þá fylgja eng­in trú­fé­lags­gjöld með ferm­ing­ar­ung­menn­um fyrr en við 18 ára ald­ur.“

Segir að end­ingu:

„Viðkom­andi ung­menni átti fal­leg­an ferm­ing­ar­dag og er nú komið aft­ur í faðm Frí­kirkj­unn­ar en eft­ir sit­ur sú stað­reynd að hafa verið gert að skipta um trú­fé­lag, þvert á vilja ung­menn­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð