Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ávinningur og fylgikvillar offituaðgerða – Ísland á Norðurlandamet í ofþyngd

Ávinningur og fylgikvillar offituaðgerða – Ísland á Norðurlandamet í ofþyngd
Ekki gott ástand,

Vin­sældir offitu­að­gerða hafa auk­ist gríð­ar­lega með árunum. Bæði erlendar og íslenskar rann­sóknir sýna ávinn­ing að offitu­að­gerðum og litlar líkur á fylgi­kvillum. Ísland á Norð­ur­landa­met í offitu og er talið að 60% þjóð­ar­innar séu í ofþyngd sem setur stóran hóp fólks í áhættu­hóp fyrir fjölda sjúk­dóma. Árið 2021 voru 18% grunn­skóla­barna í ofþyngd og 7% þeirra glímdu við offitu. Notast er við BMI-stuðul sem reiknar saman hæð og þyngd, ef útkoman er 30 eða hærri er ein­stak­lingur sagður vera með offitu. Alvarleg offita er miðuð við BMI 35.

Hér á landi eru gerðar þrjár teg­undir offitu­að­gerða; maga­ermi, maga­hjá­veita og minni hjá­veita. Áður nutu svokölluð maga­bönd vin­sælda, en síðar kom í ljós að hætta á marg­vís­legum lík­am­legum kvillum fylgdi þeim. Í dag eru þrjár teg­undir aðgerða fram­kvæmdar til að aðstoða sjúk­linga við þyngd­ar­tap.

  • Magaermi

Magaermi er sú offitu­að­gerð sem mest er notuð í dag, en hún hefur verið fram­kvæmd í yfir tíu ár. Um 90% mag­ans eru fjar­lægð, sem gerir að verkum að sjúk­lingur getur inn­byrt tals­vert minna magn af mat og drykk en áður. Almennt þolir maginn um lítra af vökva og mat en í kjöl­far maga­ermis­að­gerðar verður magnið ekki nema um hund­rað millí­lítrar. Minni líkur eru á ýmsum lang­tíma­kvillum líkt og garna­flækju þegar geng­ist er undir maga­ermis­að­gerð frekar en maga­hjá­veitu. Einnig eru lík­urnar á svo­kall­aðri losun, „dump­ing syndrome“, tals­vert minni. Með því að fjar­lægja hluta mag­ans sem seytir þau hormón sem fram­kalla hungur er mat­ar­lyst þeirra sem und­ir­gang­ast aðgerð­ina skert til muna.

  • Maga­hjá­veita

Um 20 ára reynsla er á maga­hjá­veitu­að­gerðum. Maganum er skipt í tvo hluta, annar rúmar aðeins 20 millí­lítra. Mjógirni er tengt við minni pok­ann veitt fram hjá stærri hlut­anum, skeifu­görn og efsta hluta mjógirnis. Í ein­földu máli má segja að gerð sé styttri leið sem mat­ur­inn fer í gegnum, sem veldur því að lík­am­inn nýtir færri kalor­íur úr honum. Þessu fylgir hætta á nær­ing­ar­skorti.

  • Minni hjá­veita

Nýjasta afbrigði offitu­að­gerða er svokölluð minni hjá­veita. Hún er ein­fald­ari en hefð­bundin hjá­veitu­að­gerð og líkur á fylgi­kvillum eru taldar minni. Árang­ur­inn virð­ist svip­aður þeirri fyrr­nefndu, en ekki er komin nógu löng reynsla á minni hjá­veitur til þess að úrskurða um lang­tíma­á­hrif af þeim.

„Í byrjun árs 2020 gaf emb­ætti land­læknis út klínískar leið­bein­ingar um með­ferð full­orð­inna ein­stak­linga með offitu og er hægt að finna þær á vef emb­ætt­is­ins. Þar kemur fram: „Skurð­að­gerð ætti að íhuga fyrir ein­stak­linga á aldr­inum 18–65 ára með LÞS ≥40,0 eða þá sem eru með LÞS ≥35,0 og fylgi­sjúk­dóma sem tengj­ast offitu (syk­ur­sýki 2 og aðra efna­skipta­sjúk­dóma, hjarta- og önd­un­ar­færa­sjúk­dóma, kæfisvefn, alvar­lega lið­sjúk­dóma). Fyrir aðgerð á Land­spít­ala fara sjúk­lingar í sér­hæfða atferl­is­með­ferð á Reykja­lund eða á sam­bæri­lega stofnun til und­ir­bún­ings offitu­að­gerð.“ (Heil­brigð­isráðherra við fyr­ir­spurn frá Andrési Inga Jónssyni um offitu­að­gerðir.)

Aðgerðir gerðar á einkastofu

Fram til árs­ins 2017 voru offitu­að­gerðir ein­ungis gerðar á Land­spít­al­anum. Í dag hefur einka­rekna stofan Klíníkin heim­ild til þess að fram­kvæma offitu­að­gerðir og eru lang­flestar þeirra gerðar þar. Kostn­aður við slíkar aðgerðir er í kringum 1,2 millj­ónir. Margir leita út fyrir land­stein­ana í offitu­að­gerðir og má því telja að fjölgun þess­ara aðgerða sé tals­vert meiri en vitað er.

Hverfandi líkur á alvarlegum fylgikvillum

Samkvæmt grein Lækna­blaðs­ins frá árinu 2016 eru litlar líkur á að sjúk­lingar upp­lifi snemm­komna fylgi­kvilla þegar um maga­hjá­veitu­að­gerð er að ræða, það er á fyrstu þrjá­tíu dög­unum eftir aðgerð. Af þeim 775 sem geng­ust undir maga­hjá­veitu­að­gerð á árunum 2011 til 2015, fengu 4,8% snemm­komna fylgi­kvilla. Talið er að um 20% fái síð­komna fylgi­kvilla, en í fyrr­nefndri grein kemur fram að ávinn­ingur aðgerð­ar­innar fyrir heilsu­far sé mik­ill. Rann­sóknir sína að offitu­að­gerðir geti bætt lífslíkur sjúk­linga til muna, með þyngd­ar­tap­inu fylgir oftar en ekki bati hvað varðar ýmsa sjúk­dóma sem fylgja offitu. Aðgerðin minnkar líkur á syk­ur­sýki 2 og hefur jákvæð áhrif á háþrýst­ing, æða­sjúk­dóma. Kæfisvefn hættir og blóð­fituröskun hverfur. Rannsókn sem gerð var á ein­stak­lingum sem geng­ust undir offitu­að­gerð á Land­spít­ala árin 2000 til 2014 sannar að árang­ur­inn sé mik­ill.

Eitt andlát eftir offituaðgerð

Ekkert and­lát hefur orðið í kjöl­far offitu­að­gerða sem gerðar voru á Land­spít­ala á árunum 2010 til 2020. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Klínik­inni hafa aðeins 0,8% þeirra sem geng­ust undir offitu­að­gerð þar þurft end­ur­að­gerð á fyrstu þrjá­tíu dög­unum. Einn sjúk­lingur á þeirra vegum hefur látið lífið á fyrsta ári eftir aðgerð, en sagt er að und­ir­liggj­andi sjúk­dómar hafi haft umtals­verð áhrif. Engar rann­sóknir hafa verið gerðar hér­lendis á lang­tíma­á­hrifum maga­ermis­að­gerða, en erlendar rann­sóknir sína litlar líkur á alvar­legum fylgi­kvillum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ