Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Var bannað að bjóða sig fram á síðustu stundu: ,,Skrýtið hvernig Samfylkingin stóð að þessu”

Var bannað að bjóða sig fram á síðustu stundu: ,,Skrýtið hvernig Samfylkingin stóð að þessu”
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu.

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga, segir fólk almennt ekki vita mikið um fang­els­is­mál eða þá reynslu að sitja í fang­elsi. Guð­mundur er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar.

Þar segir hann skrýtið að líta um öxl og hugsa til þess að hann hafi verið í fang­elsi stóran hluta ævi sinnar.

,,Það ætlar sér eng­inn að enda inni í fang­elsi. Ég man að mán­uði áður en ég end­aði sjálfur í fang­elsi keyrði ég fram­hjá Litla Hrauni og horfði á bygg­ing­una og hugs­aði með mér hvernig það væri eig­in­lega að enda þarna inni. Ég eins og flestir vissi ekk­ert mikið um hvað væri í gangi á bak­við þessa veggi. Það er í raun ennþá þannig að fólk almennt veit mjög lítið um lífið í fang­elsum þó að það hafi ein­hverjar hug­myndir úr bíó­myndum.

Ég er ekki þessi týpíski fangi og sagan mín bar það ekki með sér að ég myndi enda í fang­elsum. Einhvern vegin byrj­aði ég að feta þessa braut og eftir að ég fór sjálfur í meiri neyslu lá það ein­hvern vegin bein­ast við að fara í inn­flutn­ing fíkni­efna til að fjár­magna neysl­una. Ég flækt­ist í slæman félags­skap og svo leiddi eitt af öðru, en þegar ég horfi til baka sé ég ekki sjálfan mig sem hefð­bund­inn fanga.” Segir Guð­mundur, sem seg­ist í grunn­inn hafa verið frekar við­kvæmur ungur maður og það hafi verið honum áfall að vakna upp við það að vera kom­inn í fang­elsi með þungan dóm á bak­inu.

,,Ég varð ofboðs­lega veikur þegar ég fór fyrst í fang­elsi. Ég var settur í ein­angrun og það var engin nið­ur­tröppun eða neitt verið að fylgj­ast almenni­lega með manni. Svo er ég líka sam­kyn­hneigður og ótt­að­ist það út frá stað­al­myndum sem maður hafði, en sá ótti reynd­ist síðan óþarfur.” Guð­mundur Ingi segir að þó að margt hafi verið gert ágæt­lega á Íslandi skorti mikið upp á í fang­els­is­málum í heild. Aðallega sé allt of lítið gert til að vinna með föngum til að skila þeim betri út í sam­fé­lagið eftir fyrsta dóm:

,,Flestir sem enda í fang­elsum hafa orðið fyrir áföllum og svo er stór hluti fanga með alls kyns grein­ingar og rask­anir. Sumir fæð­ast inn í þannig aðstæður að það er nán­ast borð­leggj­andi að við­kom­andi muni enda inni í fang­elsi. Það er hræði­legt að sjá sögur sumra sem enda í fang­elsum og við sem sam­fé­lag verðum að bæta veru­lega úr því að bæta end­ur­hæf­ingu og veita við­eig­andi með­ferðir inni í fang­els­unum,” segir Guð­mundur og heldur áfram:

,,Fang­elsin sem slík eru ekki endi­lega slæm á Íslandi og það er eðli­legt að slæmir hlutir geti gerst í fang­elsum, þó að verið sé að vinna hlut­ina vel. Þarna safn­ast saman fólk sem er á slæmum stað í líf­inu sem fær litla aðstoð. Það getur auð­vitað endað illa. En stefnan í heild á Íslandi er langt á eftir því sem ger­ist í nágranna­lönd­unum. Aðbún­að­ur­inn skiptir auð­vitað máli, en það hvernig er unnið með fólki sem kemur inn í fang­elsum er miklu mik­il­væg­ara. Fólk fer í fang­elsi af því að það er eitt­hvað að og ef það er ekki unnið með það, eru yfir­gnæf­andi líkur á að þú fremjir annað brot. Það tapa allir á því. Það getur verið erfitt að koma í veg fyrir að ein­stak­lingur brjóti af sér í fyrsta skipti, en við sem sam­fé­lag getum komið í veg fyrir að við­kom­andi brjóti af sér í annað, þriðja eða fjórða skipti. Þannig erum við að koma í veg fyrir að það verði til ný fórn­ar­lömd, minnka kostnað, auk þess sem það er ein­fald­lega mann­úð­legt.

Við erum langt langt á eftir nágranna­löndum okkar þegar kemur að stefn­unni í heild sinni. Sú end­ur­hæf­ing og vinna sem þar á sér stað hefur gefið mjög góða raun.”

Nýleg skýrsla Amnesty International sýnir að á Íslandi er miklu algeng­ara að grun­aðir ein­stak­lingar séu settir í ein­angrun en í öðrum Evr­ópu­löndum. Guð­mundur segir löngu tíma­bært að setja þrýst­ing á íslensk stjórn­völd til að breyta þessu.

,,Við beitum ein­angr­unum mun meira en löndin í kringum okkur og lög­reglan virð­ist hafa frítt spil. Það er sér­stakt að dóm­stólar virð­ast sam­þykkja nán­ast allar beiðnir um ein­angr­anir, hler­anir og fleira, bara eftir pönt­unum lög­reglu. Við erum lengi búin að vita að þetta er öðru­vísi á Íslandi en í lönd­unum í kringum okkur, en það ger­ist lítið. Það skemmir fólk að sitja lengi í ein­angrun og getur valdið var­an­legum skaða sem ekki er hægt að taka til baka.“

Guðmundi var vikið úr próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á síð­ustu stundu, eftir að búið var að sam­þykkja að hann mætti bjóða sig fram. Hann segir und­ar­legt hvernig að því var staðið:

,,Þetta var kvöldið áður en próf­kjörið fór fram og mér fannst frekar illa að þessu staðið og hefði viljað að flokk­ur­inn hefði staðið betur með mér. Það var búið að sam­þykkja að ég mætti bjóða mig fram, en svo voru ein­hver öfl sem urðu til þess að mér var kippt út á síð­asta degi. Þetta er flokkur mann­rétt­inda og jafn­aðar og auð­vitað finnst mér að það hefði átt að láta reyna á þetta, en því var borið við að það væri ein­hver vafi á að ég mætti bjóða mig fram. En ég er ekki maður sem er fúll mjög lengi og ákvað fljótt að velta mér ekki of lengi upp úr þessu. En ég mun halda áfram að berj­ast fyrir því sem ég hefði barist fyrir í stjórn­mál­unum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð