Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eyrún eldar fyrir nokkra daga í einu -„Fer ekki svöng í búðina“

Eyrún eldar fyrir nokkra daga í einu -„Fer ekki svöng í búðina“
Eyrún Arn­ar­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar heitir Eyrún Arn­ar­dóttir. Hún er hjúkr­un­ar­fræð­ingur í grunn­inn en hef bætt svo­lítið við sig námi í lýð­heilsu og í sál­gæslu. Eyrún starf­aði lengi á LSH en er því miður í veik­inda­ferli núna eftir örmögnun og kulnun en von­ast til að geta hafið störf við hjúkrun aftur. Hún býr ásamt sam­býl­is­manni sínum, Jónmundi og hund­inum Rósí í Reykja­vík. Eyrún opn­aði instagram reikn­ing fyrr á árinu sem heitir Bara aðeins auð­veld­ara (@baraadeinsaudveldara) þar sem hún deilir upp­skriftum og hug­myndum að því hvernig er hægt að auka græn­metis­neyslu, nýta vel það sem er til á heim­il­inu og benda á ódýr­ari og aðgengi­lega kosti.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Ég mætti vera dug­legri við það en mér finnst það oft of orku­kræft og flókið að halda utan um það, sér­stak­lega í mat­ar­inn­kaupum. Það er aðal­lega við dýr­ari hluti sem ég kaupi ekki oft, eins og and­lit­skrem og aðrar snyrti­vörur. Ég er svo­lítið vana­föst og nota lengi sömu kremin t.d. og þá fylgist ég með þegar það koma til­boð og kaupi þá kannski auka túpu. Sér­stak­lega á dögum eins og afslátt­ar­sprengju­dög­unum í nóv­em­ber eða tax-free dögum.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni að fara 1x í viku í Bónus og kaupa það helsta og ef eitt­hvað vantar eða bæt­ist við þá reyni ég að fá mér göngutúr í næstu lág­vöru­verslun í stað­inn fyrir að versla í kjör­búð­inni á horn­inu sem er tölu­vert dýr­ari.  Ég reyni líka að vanda mig við að velja tíma til að fara. Mér líður best að versla þegar ég er ekki of svöng, ekki of þreytt og þegar það er ekki of mikil traffík í búð­inni og ég finn að þetta hjálpar mér að gefa mér tíma til að skoða verð og gera sam­an­burð á vörum. En ef mér tekst ekki að fara á „besta“ tíma þá reyni ég að halda mig við að kaupa það sem ég kaupi venju­lega og helst með lista. Þetta sparar yfir­leitt óþarfa kaup og orku.

Ég er að venja mig á að kaupa líka inn sæl­gæti, ís og snakk í lág­vöru­verslun. Það hljómar kannski ein­kenni­lega en ég hef mikið unnið í því að bæta sam­band mitt við mat og því fylgdi að hætta að hugsa um mat sem hollan eða óhollan og fyrir mig virkar betur að hugsa um það hvernig ég bæti við nær­ing­ar­gildi eða orku frekar en að sleppa því að borða eitt­hvað sem mig langar í. Í stað­inn fyrir að „stel­ast“ út í búð­ina á horn­inu og kaupa súkkulaði þá reyni ég að kaupa það í bónus og spara mér hund­rað­kall­ana en ekki súkkulaðið.

Annað sem við reynum að gera á heim­il­inu er að elda mat fyrir nokkra daga í einu, t.d. lasagna, kjöt­súpu, dahl eða aðra pott­rétti. Sér­stak­lega ef það er mikið að gera eða fyr­ir­séð að dagar verði erf­iðir. Mér finnst það oft spara bæði orku og pen­inga að vera með plan, hvað ætla ég að gera ef að orkan mín klár­ast og ég þarf að borða. Er það ab-mjólk og korn­flex, hafra­grautur eða frosin pizza? Með því að vera með eitt­hvað backup plan þá eru minni líkur á að ég fari og kaupi skyndi­bita eða eitt­hvað slíkt. Annað lyk­il­at­riði við að spara útgjöld þegar það kemur að mat að reyna að útbúa nesti heima og taka með út í dag­inn.

Ég er mjög heppin með það að matur, elda­mennska og til­raunir í mat­reiðslu eru helsta áhuga­mál okkar litlu fjöl­skyldu svo að við erum yfir­leitt sam­stillt en það skiptir máli við séum sam­mála um hversu mikið (sirka) við ætlum að eyða og hvernig við ætlum að spara.

Svo verð ég að minna á að dýr­asti mat­ur­inn sem þú kaupir er matur sem fer til spillis eða endar í rusl­inu.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég end­ur­vinn, skila plasti, pappa, áli og gleri í grennd­ar­gám­inn.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég reyni að kaupa notað ef ég get en ég sér­stak­lega erfitt með að finna notuð föt. Mér finnst rosa­lega erfitt að róta á fata­mörk­uðum eða í loppum og finna flíkur sem henta mér og mínum lík­ama, ég vil geta mátað í róleg­heitum og helst prófa stærðir en fyrir vikið þá kaupi ég sjaldnar föt. Ég gef nán­ast ein­göngu börnum gjafir og fyrir nokkrum árum síðan þá átt­aði ég mig á hvað það er frá­bært úrval af bókum í Góða hirð­inum, svo að ég versla flestar gjafir þar. Um síð­ustu jól fann ég póní­hesta þar sem slógu í gegn hjá heilum krakka­sk­ara. Ég reyni líka að fara fyrst í Góða hirð­inn ef ég get og leita ef mig vantar eitt­hvað ákveðið áður en ég fer og kaupi nýtt, eins og gat­ara og kart­öflu­stapp­ara.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Kimchi frá súr­káls­kon­unni. Ég elska það, en það er of dýrt fyrir mig eins og er.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já mjög svo en mér finnst samt að það er of mikil ábyrgð sett á ein­stak­linga sem neyt­endur. Mér finnst að fram­leið­endur og stjórn­völd ættu að bera meiri ábyrgð og í sam­ráði við vís­inda­sam­fé­lagið finna góðar lausnir. Að því sögðu þá finnst mér auð­vitað skipta máli að velja umhverf­is­væna kosti, þegar það er hægt. Mér finnst mjög gott að geta elt vott­anir, svans­merkið, eco-cert og annað slíkt og svo það mik­il­væg­asta, að eyða/kaupa ekki óþarfa.

Annað sem þú vilt taka fram?

Það er rosa­lega flókið að ætla að hugsa um heils­una, heim­ilið, umhverfið og allan heim­inn og ég held að íslenskt sam­fé­lag megi heilt yfir tóna sig aðeins niður hvað varðar vænt­ingar og kröfur og ekki síður boð og bönn. Við erum allt eða ekk­ert þjóð og það endar oft í að ein­stak­lingar upp­lifi skömm eða sam­visku­bit. Við eigum að hjálpa hvert öðru að gera okkar besta með vellíðan í for­grunni.

Það væri kannski helst að ef þú vilt gera breyt­ingar í tengslum við þína neyslu, hegðun eða ákvarð­anir, próf­aðu þá að byrja af sam­kennd í eigin garð og að skoða hverju þú getur þægi­lega bætt við. Er það að bæta gúrku­bita við hádeg­is­mat­inn eða bæta við 10 mín­útum af hreyf­ingu á mánu­dögum? Byrjaðu smátt og með sveigj­an­leika til að bæta í ef þú vilt. Það gefst yfir­leitt betur en að ætla að taka allt með trompi.

Að lokum deilir Eyrún með okkur upp­skrift af stökku og bragð­miklu rósa­káli.

Stökkt og bragð­mikið rósa­kál – upp­skrift af instagram síð­unni

Frosið rósa­kál, 450 g fæst á 180 kr í Bónus. Rósakál er kannski ekki allra en mér finnst þessir bitru bögglar ótrú­lega góðir sér­stak­lega þegar þeir fá að verða extra krispí og frá­bært með­læti.

Hér er rósa­kálið sett beint úr fryst­inum í ofn­skúffu og inní ofn á meðan ofn­inn hitnar í 200°c með blæstri +5 mín sirka. Þetta er gert svo að kálið þiðni og mesta vatnið gufi upp. Þegar kálið er orðið heitt og það sést ekk­ert vatn bubbla að utan þá er það tekið úr ofn­inum og olía og krydd borið á. Ef olían er sett á áður en rósa­kálið þiðnar þá sýður kálið í graut. Mér finnst mjög gott að kremja böggl­ana og fletja þá út eins og er vin­sælt að gera við kart­öflur, þá verður þetta allt extra krispí. Hér setti ég salt, pipar, hvít­lauks- og lauk­duft, ólífu­olíu og svo parmesan (annar ostur eða nær­ing­ar­ger) yfir allt saman. Svo fer allt aftur inní ofn í 10-15 mín­útur þangað til allt er vel krispí og ost­ur­inn brúnn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð