Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Var kominn með annan fótinn í gröfina: „Dóttir mín bjargaði lífi mínu“

Var kominn með annan fótinn í gröfina: „Dóttir mín bjargaði lífi mínu“

Hlynur Jónsson, hót­el­stjóri og skemmti­kraftur seg­ist hafa verið kom­inn með annan fót­inn í gröf­ina áður en hann fór í með­ferð við áfeng­is­fíkn. Í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar seg­ist Hlynur hafa fundið nýtt líf eftir að hafa gef­ist algjör­lega upp. Hann þakkar dóttur sinni fyrir að vera gjör­breyttur maður:

„Ég skrap­aði botn­inn og kláraði allt saman. Hvort sem það var traust vina og fjöl­skyldu eða annað gott í líf­inu. Ég var orð­inn dag­drykkju­maður og var á end­anum algjör­lega búinn á lík­ama og sál. En ég þurfti að finna algjöran botn til þess að vera raun­veru­lega til­bú­inn að breyt­ast. Það getur eng­inn annar sagt þér að fara í með­ferð. Ef þú finnur það ekki hjá sjálfum þér er það ekki að fara að virka.“

Hlynur segir að „það tekur tíma að kom­ast á þann stað að átta sig á því að það er engum öðrum að kenna hvert maður er kom­inn. Það var í raun dóttir mín sem bjarg­aði lífi mínu. Hún var drif­kraft­ur­inn minn í þessu ferli. Ég fann djúpt innra með mér að ég ætl­aði ekki að bjóða henni upp á þetta úrhrak sem ég var orð­inn. Ég var ekki lengur mann­eskja sem gat hugsað um hana, þannig að það var annað hvort að fara í gröf­ina eða gjör­breyt­ast. Hún er prinsessan mín og ég lifi fyrir hana og hún hefur átt stærstan þátt í að ég er gjör­breyttur maður.“

Hann segir að ferlið hafi verið langt og strangt:

„Það var langt ferli að koma aftur inn í lífið sem ný mann­eskja og tíma­bilið eftir að áfengið fór úr kerf­inu var mjög þungt og erfitt. Það að losna við áfengið sem slíkt var bara fyrsta skrefið. Vogur er bara þurrkun, en svo tekur við vinnan við að mæta því sem var ástæðan fyrir drykkj­unni. Þá tók við tíma­bil af miklu þung­lyndi, gremju, sam­visku­biti og fleiri mjög erf­iðum hlutum. En smátt og smátt fór ég að finna að ég gæti komið til baka og gæti breyst. Fjöl­skyldan og vin­irnir létu mig vita að ég gæti komið til baka ef ég myndi breyt­ast og ég verð alltaf þakk­látur fyrir það.”

Hlynur, sem er mennt­aður í þjón­ustu­störfum og starfar nú sem hót­el­stjóri er frekar nýlega fluttur aftur til Íslands eftir að hafa búið um skeið á Kýpur. Þangað fór hann rétt áður en Covid far­ald­ur­inn byrj­aði:

,,Kýpur er bara draumur í dós og í raun falin perla Mið­jarð­ar­hafs­ins. Ég fór upp­haf­lega þangað til að setja upp bók­un­ar­kerfi fyrir hótel og starfa í þeim geira sem ég þekki. En svo kom Covid og þá lok­að­ist fyrir ferða­menn og ég varð að finna mér eitt­hvað annað að gera. Ég vildi ekki gef­ast upp, þó að það hafi verið mjög strangar reglur í kringum Covid og fleiri hindr­anir, þannig að ég end­aði á fara í sam­starf við fast­eigna­sölu og vann við það í tvö ár. Þetta var frá­bær tími og algjör­lega dásam­legt land í alla staði. Allt mjög afslappað, veðrið alveg frá­bært og í raun mikil lífs­gæði. Svo er þetta eitt örugg­asta land í heimi og verð­lagið er virki­lega hag­stætt.

En Íslend­ingar eru frekar vanaf­astir þegar kemur að ferða­lögum og þetta eina auka­flug virð­ist vefj­ast fyrir fólki. En ég seldi nokkrar fast­eignir til Íslend­inga og það búa núna nokkrir Íslend­ingar þarna núna eftir að hafa keypt af mér fast­eign.”

Það var á Kýpur sem Hlynur byrj­aði að setja út mikið af efni á sam­fé­lags­miðla. Síðan þá hefur hann vakið mikla athygli fyrir skemmti­leg innslög á sam­fé­lags­miðlum:

,,Ég ákvað strax að aðal­at­riðið væri að skemmta mér og öðrum og vera bara eins mikið ég sjálfur og ég mögu­lega gæti. Það fer bara jákvætt efni inn á mína miðla. Mér finnst alveg nóg af nei­kvæðni þarna úti án þess að ég þurfi að bæta við hana. Ég fæ fullt af skila­boðum um að ég sé kjána­legur og asna­legur og fleira þess háttar, en það er bara þannig og ég læt það ekki á mig fá. Ef það sem ég er að gera fer í taug­arnar á þér, en þú heldur áfram að skoða það, segir það meira um þig en mig. Ég er ekki að gera neinum illt og vil bara vera ég sjálfur áfram og njóta þess að vera til. Flestir eru í norm­inu á Íslandi, hvort sem það er klæða­burður eða annað og það vekur athygli ef fólk er öðru­vísi. Sumum finnst þeir verða að láta mann vita að maður eigi að vera öðru­vísi, en ég læt það sem vind um eyru þjóta. Ég ákvað á ein­hverjum punkti að vera bara ég og skemmta sjálfum mér og öðrum. Ég er í grunn­inn frekar feim­inn og lok­aður náungi, þannig að það sem ég er að gera á sam­fé­lags­miðlum er líka útrás og æfing í að koma út úr skel­inni.”

Hann segir að einu skiptin sem hann hafi aðeins dregið úr því að setja inn efni hafi verið þegar dóttir hans varð fyrir aðkasti:

,,Það kom tíma­bil þar sem hún varð fyrir aðkasti bara af því að hún er dóttir mín og þá breytti ég aðeins um takt. Þetta á bara að vera gaman og ef þetta skaðar dóttur mína hika ég ekki við að draga mig til baka. Maður stýrir víst ekki öðru fólki og börn eru börn, en sem betur fer var þetta bara stutt tíma­bil þegar mynd­böndin mín voru í mik­illi dreif­ingu á milli fólks. Í dag held ég að flestir sjái það að ég er bara að reyna að dreifa jákvæðni og á end­anum skilar það sér.”

Þáttinn með Hlyni og alla aðra þætti Sölva má nálg­ast inni á www:sol­vi­tryggva.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð