Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Alma leigufélag lét bera áttræðan mann og hreyfihamlaðan son hans úr íbúð þeirra – Sjáðu myndböndin

Alma leigufélag lét bera áttræðan mann og hreyfihamlaðan son hans úr íbúð þeirra – Sjáðu myndböndin
Auðunn Snævar Ólafsson Mynd: Frettin.is

Öldruðum manni og hreyfi­höml­uðum syni hans var hent út úr íbúð sinni eftir að Alma leigu­fé­lag lét sýslu­mann og lög­reglu fram­kvæma útburð í fyrra­dag.

Það var frettin.is sem sagði frá mál­inu og birti mynd­bönd af útburð­inum. Þau má sjá neðst í frétt­inni.

Ólafur Snævar Ögmunds­son, hinn átt­ræði leigu­taki sem um ræður, fékk íbúð­ina á leigu fyrir um þremur árum síðan. Ólafur skrapp til Spánar að heim­sækja son sinn sem þá bjó þar. Í heim­sókn­inni veikt­ist Ólafur heift­ar­lega og varð að leggj­ast inn á spít­ala í þrjár vikur og þurfti að greiða sjúkra­hús­kostnað á Spáni. Vegna veik­ind­anna hafði Ólafur ekki tök á á borga leigu í tvo mán­uði og fékk því sent inn­heimtu­bréf frá Ölmu leigu­fé­lagi. Leitaði hann þá til Umboðs­manns skuld­ara sem gekk í málið og hafði sam­band við leigu­fé­lagið og til­kynni þeim að skuldin yrði að fullu greidd. Að sögn Ólafs breytti það engu því Alma leigu­fé­lag sendi Ólafi útburð­ar­bréf, þrátt fyrir lof­orð Umboðs­manns­ins. Í því bréfi var þess kraf­ist að hann færi úr íbúð­inni og leigu­samn­ingnum yrði rift.

Ólafur fékk aðvörun 17. apríl þar sem honum er gert að tæma íbúð­ina fyrir 2. maí. Reyndi þá Ólafur að hafa sam­band við Félags­þjón­ust­una og óskaði eftir neyð­ar­að­stoð. Fékk hann þau svör að ekk­ert væri hægt að gera fyrir hann og að margra ára bið væri eftir íbúð hjá þeim.

Þeir Ólafur og sonur hans, Auðunn Snævar Ólafsson, sem er í hjóla­stól eftir umferða­slys, eru því nú orðnir heim­il­is­lausir en ætla að vera á hót­eli til að byrja með. Blaða­maður Frétt­ar­innar spurði sýslu­mann hvert menn­irnir ættu að fara og fékk þau svör að þeir gætu til að mynda farið í gisti­skýli.

Í mynd­bandi sem birt­ist hjá frettin.is segir Ólafur að hann hafi þurft að borga 220.000 krónur í leigu fyrir íbúð­ina en að hún sé í nið­ur­níðslu. Nefnir hann sem dæmi að hann hafi neyðst til að hafa ísskáp­inn inni í fata­skáp í for­stof­unni því hann hafi ekki kom­ist fyrir í eld­hús­inu. Þá segir hann að elda­vélin hafi aldrei virkað.

Alma leigu­fé­lag er afar umdeilt félag sem hefur verið gagn­rýnt harka­lega fyrir snarpar hækk­anir á íbúð­ar­leigu síð­ustu ár.

Í mynd­bönd­unum sem birt­ast hér fyrir neðan má sjá hvar átta verka­menn á vegum Ölmu leigu­fé­lags voru mættir til að tæma íbúð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð