Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hversu margir ofbeldismenn munu nýta sér þessi lög til að fá fullt forræði yfir börnum sínum?“

„Hversu margir ofbeldismenn munu nýta sér þessi lög til að fá fullt forræði yfir börnum sínum?“

Opið bréf til fem­inískra og sam­kyn­hneigðra and­stæð­inga trans fólks

Hans Alex­ander Mar­grét­ar­son Hansen og Anna Íris Pét­urs­dóttir skrifa:

„Það var að kom­ast í gegn frum­varp í Flórída sem leyfir yfir­völdum að taka börn af for­eldrum sínum ef grunur leikur á að þau hafi fengið kyn­leið­rétt­andi með­ferðir eða að þau muni mögu­lega verða útsett fyrir þeim í fram­tíð­inni.

Frum­varpið er orðað á óskýran hátt og eru ýmis atriði sem hægt er að túlka á ýmsa vegu eftir henti­semi.

Ef rík­is­stjóri Flórída, Ron DeSantis, skrifar undir verður þetta ritað í lög.

Þetta er ógn­væn­leg þróun og við komumst ekki hjá því að ótt­ast að þessi hat­urs­fulla hreyf­ing nái að skjóta rótum hér á landi eins og hún hefur nú þegar gert í Banda­ríkj­unum og fleiri stöðum.

Við viljum því nýta þetta tæki­færi til að ávarpa þann háværa minni­hluta sam­kyn­hneigðs fólks og meintra fem­inista sem hafa ákveðið að setja sig í and­stöðu við rétt­inda­bar­áttu trans fólks.

Nú hefur ykkar fylk­ing gert skoð­anir sínar nokkuð ljósar, meðal ann­ars með því að leggj­ast gegn banni bæl­ing­ar­með­ferða fyrir trans fólk og tala opin­skátt um að banna kennslu um þessi mál­efni.

En þótt ykkur sé fyr­ir­munað að sýna trans börnum sam­kennd, hugsið aðeins um hvernig svona frum­varp hefur áhrif á þá hópa sem þið til­heyrið, eða í til­felli sumra „fem­inista“, seg­ist til­heyra. Fem­inistar.

Það þarf bara að vera grunur um að barn fái kyn­leið­rétt­andi með­ferð. Það er ekki þar með sagt að hann þurfi að vera vel rök­studdur, því það er erfitt að sanna að eitt­hvað muni aldrei ger­ast. Hversu margir ofbeld­is­menn haldið þið að munu nýta sér þessi lög til að fá fullt for­ræði yfir börnum sínum?

Hitt for­eldrið getur lítið sem ekk­ert gert, því eins og við segjum, hvernig á það að færa sönnur fyrir því að barn muni ekki mögu­lega kannski ein­hvern tím­ann vera „útsett“ fyrir kyn­leið­rétt­andi með­ferðum? Og þyrfti þá að sanna að sál­fræði­með­ferð barns sé ekki tengd kyn­vit­und þess? Hvað ef ung stelpa fellur ekki að við­teknum hug­myndum um kven­leika?

Við gerum fast­lega ráð fyrir að sem fem­inistar viljið þið að (sís) konur fái að klæða sig eins og þær vilja, hafa alls konar áhuga­mál og tala opin­skátt.

Í mars voru önnur lög sett í Tennessee til þess að banna drag­sýn­ingar, sett fram af þess­ari sömu póli­tísku hreyf­ingu. Þessi lög setja blátt bann við því að karlar klæði sig sem konur og konur sem karlar í við­ur­vist barna. Bann sem hefur nú þegar orðið til þess að sís konur eru áreittar á almenn­ings­kló­settum og sak­aðar um að vera trans.

Það liggur ljóst fyrir að þessi hreyf­ing leggur öll frá­vik frá hefð­bundnum kynja­hlut­verkum að jöfnu við trans­leika. Það þarf ekki nema flökku­sögur um að þessi stelpa sé mögu­lega kannski trans til að hún sé tekin af for­eldrum sínum. Af því hún er ekki nógu kven­leg.

Hvernig getur það sam­ræmst fem­in­isma?

Í beinu fram­haldi af þessu, hverjar eru þessar við­teknu hug­myndir um kven­leika?

Samkvæmt feðra­veld­inu er það hlut­verk kvenna að elska karl­menn og vera und­ir­gefin þeim. Hvað verður þá um les­b­íur, sér­stak­lega butch les­b­íur? Það er vitað mál að þær urðu fyrir skelfi­legu ofbeldi síð­ast þegar lög um kyntján­ingu voru til staðar. Þeim var nauðgað, þær barðar og haldið í fanga­klefum fyrir það eitt að klæða sig „karla­lega“.

Haldið þið virki­lega að fólk­inu sem setur svona lög sé ekki drullu­sama hvort ein­hver er lesbía eða trans, ef hún klæðir sig og tjáir á hátt sem ekki sam­svarar þeirri mynd af konum sem þau hafa í huga? Munið, til þess að til­kynna for­eldra þarf bara að vera grunur. Og ungir sam­kyn­hneigðir strákar. Það er mjög nýtt að strákar fái að koma út, hafa áhuga á „stelpu­legum“ hlutum, eiga vin­konur og tjá sig „kven­lega“.

Lög eins og þessi setja þessa stráka í stór­hættu. Af því að nú spyrjum við, hvað haldið þið að taki við þessum börnum í löngu sprungnu fóst­ur­kerfi (sem á bara eftir að versna með banni þung­un­ar­rofs)? Ef við rembumst við að trúa á það besta í fólki getum við reynt að trúa því að þið haldið að þessi börn fái sál­fræði­með­ferð og… hvað? „Mann­úð­lega“ bæl­ing­ar­með­ferð langt í burtu frá öllu sem þau þekkja?

Raunin er sú að það sem bíður þess­ara barna, sem nú verða í fóst­ur­kerf­inu með engan nákom­inn til að berj­ast fyrir rétt­indum þeirra, er lang­lík­leg­ast for­dómar, ofbeldi, útskúfun og bæl­ing­ar­með­ferð.

Það er stað­reynd að ung­lingar eru sjaldnar ætt­leiddir en yngri börn, hvað þá ung­lingar sem kerfið hefur sagt að séu rangir og afbrigði­legir. Er þetta í alvör­unni betra en að leyfa börnum að njóta vafans undir hand­leiðslu sér­fræð­inga, í faðmi fjöl­skyldu sem elskar þau?

Þessi þróun í Banda­ríkj­unum byrj­aði ekki í tóma­rúmi, fyrst var lagður grunnur fyrir henni með rætnum áróðri sem kom að miklu leyti fram sem falskar áhyggjur af trans börnum – sem komu af stað raun­veru­legum áhyggjum hjá mörgum. Því við efumst ekki um að mörg þeirra sem hafa mælt gegn því að trans börn fái lækn­is­þjón­ustu trúi af öllu hjarta að þau séu að bjarga þeim.

Og gleymum því ekki hverjir það eru sem standa fyrir þessum laga­breyt­ingum.

Það eru ekki málsvars­menn fem­in­ism­ans eða rétt­inda sam­kyn­hneigðra.

Það er Repu­blikana­flokk­ur­inn, sama fólkið sem er að reyna að banna þung­un­ar­rof um gjörvöll banda­ríkin og vill banna aftur sam­kynja hjóna­bönd, sem stendur fyrir þessum laga­breyt­ingum.

Hér á Íslandi er það Mið­flokk­ur­inn sem hefur helst tekið upp þennan rotna mál­stað gegn trans fólki. Það er sá flokkur sem beitti sér gegn kyn­rænu sjálf­ræði og sá sem er núna að reyna að flytja inn hat­urs­fulla orð­ræðu frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi, en það er einmitt sá sami flokkur sem barð­ist ötul­ast gegn því að þung­un­ar­rof yrði heim­ilað til 22. viku.

Trans­fóbía helst alltaf í hendur við kven­fyr­ir­litn­ingu og hómó­fó­bíu. Þetta er fólkið sem þið hafið skipað ykkur í fylk­ingu með. Þeim er í besta falli drullu­sama um ykkar rétt­indi, og þeim er 100% drullu­sama um rétt­indi barna.

Að hóta að taka börnin af fólki vegna kyn­vit­undar þess er kúg­un­ar­að­ferð og leið til þess að beita börn ofbeldi í skjóli lag­anna. Þið eruð úti að aka ef þið haldið að þau muni hætta ef þeim tekst að útrýma trans fólki.

Hvaða hópur ætli verði næstur?

Hvaða hópur hefur sögu­lega verið sak­aður um „grooming“ og barn­a­níð?

Þetta er end­urunnin þvæla sem notuð var gegn sam­kyn­hneigðum. Þar sem áróður gegn hópi fólks þrífst, þrífst líka ofbeldi og mis­beit­ing valds. Þess vegna eru svona sterk við­brögð við pistlum sem „eru bara að taka umræð­una“. Því „umræðan“ er sá hluti áróð­urs­ins sem hægt er að treysta á að nái til fólks sem er ekki nú þegar orðið hat­urs­fullt.

Fólk sem vill börnum allt gott tekur þátt, því það hefur fengið óhugn­an­legar upp­lýs­ingar frá mis­traust­verð­ugum miðlum.

Ef þið bæruð hag barna í alvör­unni fyrir brjósti, þá mynduð þið ekki standa með fólki sem setur fram svona lög. Þið mynduð setja spurn­inga­merki við að fólk sem er fremst í flokki hinnar svoköll­uðu gender critical hreyf­ingar er stutt af nýnas­istum og stoltum ras­istum.

Þið mynduð hlusta á fólk sem hefur eytt ævinni allri í rétt­inda­bar­áttu, rann­sóknir og hags­muna­vörslu trans fólks.

Í stuttu máli: ef þið ætlið að halda áfram að rægja lækna, sál­fræð­inga og hags­muna­gæslu trans barna þá hlýtur ykkur að vera alveg sama um vel­ferð barna.

Allra barna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð