Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segja MAST ekkert gera vegna illrar meðferðar á kindum: „Þetta er bara aðför að okkur“

Segja MAST ekkert gera vegna illrar meðferðar á kindum: „Þetta er bara aðför að okkur“
Hrafnar sveima yfir kind­unum. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Árið 2003 var ábú­and­inn á bænum Höfða í Þver­ár­hlíð í Borg­ar­firði sak­felldur fyrir að van­rækja umhirðu og fóðrun á búfé. Hlaut bónd­inn fyrir það sekt. Um fjögur hund­ruð kindur voru annað hvort flutt til slátr­unar eða í fóðrun á næstu bæi en bónd­inn var ekki sviptur leyfi til að hafa dýr. Nú, tutt­ugu árum síðar virð­ist sem ástandið á bænum hafi ekk­ert lag­ast.

Ljósmynd af dauðu lambi sem sagt er vera frá Höfða en það lá dautt á Grjót­hálsi.

Ljós­myndir og mynd­bönd af illa förnum og illa hirtum kindum hafa verið á dreif­ingu á Facebook und­an­farið en þær eru við bæinn Höfða í Þver­ár­hlíð í Borg­ar­firði. Er talið að fjöldi þeirra sé tals­vert yfir þús­und en pláss er í fjár­hús­inu fyrir um 300 kindur. Sveit­ungar bónd­ans eru ugg­andi yfir ástand­inu og telja Mat­væla­stofnun ekki hafa gert nóg til að stöðva þessa með­ferð á dýr­unum.

Dýralæknir gagnrýnir MAST

Mannlíf rædd við Gunnar Gauta Gunn­ars­son dýra­lækni um málið. Minnist hann dóms­ins fyrir tutt­ugu árum er bónd­inn fékk sekt en fékk að halda áfram búskapnum. „Bæði í lögum um dýra­hald, dýra­vernd og búfjár­hald, þar er talað um að menn þurfi að hafa hús­pláss fyrir sín dýr. Það var alveg úti­lokað að dýrin kæmust fyrir á bænum, þarna inn­an­dyra, sam­kvæmt lögum. En hann fékk bara sekt. Það kom ekk­ert fram í dómnum að hann þyrfti að fækka svo hann hefði pláss en nei, hann fékk bara sekt. En þegar maður fór að grennsl­ast fyrir um það þá fékk hann bara sekt en ekki þyngri dóm af því að hann hafði ekki fengið dóm áður. Þetta er eins og að ef þú dræpir mann og kæm­ist upp með það því þú hafðir ekki drepið mann áður. Fárán­legt argu­ment.“ Segir Gunnar að þetta ástand hafi verið svona í fjöldi ára á bænum. „Þetta hefur við­geng­ist þarna ára­tugum saman, þetta er bara sorg­legt. Ég er búinn að vera hérna í fjöru­tíu ár. Fólkið á bænum hefur verið heilsu­laust í ára­tugi og sinnir þessu ekki. Þarna eru að bera úti í grjót­háls­inum, kindur sem hafa sloppið og ekki kom­ist frá burði. Ætli þær drep­ist ekki drottni sínum ein­hvers staðar í háls­inum?“

Gunnar er ósáttur við Mat­væla­stofnun: „Hún getur verið að skipta sér að ein­hverju sára­saklausu en þar sem kemur eitt­hvað svona stórt upp á, þá hafa þeir bara gef­ist upp. Þarna fyrir nokkrum vikum þá var þarna kálfur sem hafði verið bor­inn úti, þá kom Mat­væla­stofnun að því, að kálf­ur­inn væri ekki núm­er­aður. Og þá þurfti að gera leit og finna kálfinn og ná honum svo það fari í hann númer, það var aðal atriðið. Þetta á bara ekki að eiga sér stað.“

Gunnar hefur verið dýra­læknir síðan 1983 en í nærri tutt­ugu ár starf­aði hann sem hér­aðs­dýra­læknir. „Þá hafði maður þetta eft­ir­lits­hlut­verk á hendi. En svo voru ein­hvern­veg­inn dregnar úr manni víg­tenn­urnar með það að þegar dóm­stólar koma svona fram, að dæma ekki mann­inn til þess að þurfa að hafa pláss fyrir sín dýr sem stendur í lögum um búfjár­hald. Við gerðum skýrslu sem lögð var fyrir dóms­stóla, ætli það hafi ekki verið með myndum um 20 til 30 síður. Við sýndum fram á alvar­leika máls­ins en þá er tekið svona á þessu fyrir dómi. Þetta er til hábor­innar skammar.“

Ekki við bændurnar að sakast

Mannlíf ræddi einnig við heim­ild­ar­mann sem vildi ekki láta nafn síns getið en hann þekkir til máls­ins og hefur komið inn í fjár­húsið. „Þetta er bara hræði­legt. Mér finnst kjarn­inn í þessu máli vera auð­vitað Mat­væla­stofnun og við­brögð hennar. Bænd­urnir eru bara gam­alt fólk sem gengur ekki alveg heilt til skógar. Málið er að þetta hefur við­geng­ist í ára­tugi. Það er svo margt skrítið í þessu. Eins og þú kannski veist fá bændur greitt frá rík­inu eftir svokölluð gæða­stýr­inga­kerfi, þá þurfa þeir að upp­fylla ákveðin skil­yrði eins og skýrslu­hald og allt mögu­legt. Þetta fólk hefur aldrei gert það en alltaf fengið pen­ing­inn. Þau hafa gefið það upp að þau séu með eitt­hvað rétt undir 800 fjár að vetri. En það er algengt að það er ekki að heimt­ast hjá þeim 300 til 400 hausar eftir síð­ustu slátrun. Svo er þessu ekk­ert endi­lega slátrað á næsta ári þannig að þetta er örugg­lega vel yfir 1100, 1200 en þau segj­ast hafa 800.“ Aðspurður hvort sá fjöldi kom­ist fyrir í fjár­hús­inu á bænum svarar heim­ild­ar­mað­ur­inn neit­andi. „Nei, nei, nei, það er bara fyrir 300. Þeir ætla bara að troða þeim í fjár­húsin og hafa þetta bara á mörgum hæðum ein­hvern veg­inn og þeim troðið upp í jöt­unum. En svo er þetta bara úti lang mest. Og hey­skap­ur­inn, eins og í fyrra, þá var hann byrj­aður í októ­ber. Þú sérð það að það verður ekki gott hey úr því. En svo er ekki nóg að heyja, það þarf líka að gefa og það er eig­in­lega aldrei gert. Og það er líka lög­bundin skylda bænda að bólu­setja dýrin en það er ekki gert. Og þau hafa ekki merkt dýrin, nema bara brota brot. Svo gengur þetta mikið á ann­arra manna löndum og það er mikil óánægja með það.“

Hrafnar sveima yfir kind­unum.

Líkt og dýra­lækn­ir­inn, er heim­ild­ar­mað­ur­inn óánægður með þátt Mat­væla­stofn­unar í mál­inu. „Eins og ég segi, þá snýst þetta fyrst og fremst um það Mat­væla­stofnun og eft­ir­lits­að­ilar hefðu átt að vera búin að grípa inn í fyrir löngu síðan. Og það er stundum talað um að sam­fé­lagið sé með­virkt en það teng­ist þessu ekki. Það er ástæða fyrir því að Mat­væla­stofnun er til. Það er til þess að sam­fé­lagið þurfi ekki að ganga í svona mál. Svo segj­ast þeir ekki hafa heim­ildir en það er bara ekki rétt. Þeir gætu farið þangað og lokað þessu á morgun ef þeir vilja.“

Ekki nokkur fótur fyrir þessu

Þórunn Berg­þórs­dóttir, einn af ábú­endum á Höfða segir ekk­ert til í þessum ásök­unum og segir kon­una sem birt hefur gagn­rýnt þetta hvað mest á Facebook vera „bil­aða“. „Það er eng­inn fótur fyrir þessu og þessi kona er biluð. Hún er athygl­is­sjúk og það er bara eng­inn fótur fyrir þessu. Ég á bara erfitt með að koma orðum að þessu sko. Mat­væla­stofnun er búin að skoða allt hjá okkur og það er allt í fínu lagi.“ Aðspurð hvort þau séu ekki með of mörg dýr á bænum, svarar Þórunn því neit­andi. „Nei, nei, alls ekki, við erum alveg undir control eins og við megum hafa. Þetta er bara aðför að okkur. Við erum full­orðin sem búum hérna og þetta er bara aðför, ekk­ert annað. Það er bara ekk­ert að. Ekkert að kind­unum okkar.“

Varðandi það að kind­urnar séu farnar að ganga inn á önnur lönd segir Þórunn það eðli­legt í sveit­inni. „Það ger­ist bara í sveit­inni. Það eru allar girð­ingar ónýtar og það eru allir að fara að sleppa núna en það er algjör óþarfi að taka okkur svona fyrir. Þetta er bara ill­girni og þessi kona er bara biluð, hún ætti bara að vera lokuð inni á Kleppi,“ sagði hún um kon­una sem hefur verið dug­leg að deila á bænd­urnar á Höfða. „Þetta er allt að fara í eyði og það er nýtt fólk að kaupa upp jarð­irnar og það vill ekki hafa neitt og þá dembist allt á okkur. Ég er búinn að sitja undir ámæli hjá þess­ari konu, hún keyrir um hérna og reynir að finna eitt­hvað og hjá fleirum. Hún þyk­ist vera eitt­hvað en er bara ekki neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ