Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig Anna rífur leiðtogafundinn í sig: „Það er hátt risið á hundaskítnum“

Sólveig Anna rífur leiðtogafundinn í sig: „Það er hátt risið á hundaskítnum“
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

„Í til­efni leið­toga­fundar sendi ég heitar bar­áttu­kveðjur til alþýðu þeirra landa sem sjálfs-upp­hafn­ing­arnir sem að nú kom saman í Reykja­vík stýra.“ Svo byrjar langur reiði­lestur Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur verka­lýðs­hetju Eflingar á Facebook í dag. Þar fer hún afar hörðum orðum yfir ýmsa stjórn­mála­hópa á Íslandi en hún kallar þá meðal ann­ars nars­issista.

Sólveig hét áfram:

„Ég óska þess að þau sem þar eru arð­rænd af auð­valdi í sam­vinnu við “leið­toga” vinni mikla sigra í bar­átt­unni fyrir því að lifa frjáls undan oki for­hertrar auð­stéttar og stjórn­valda í hlut­verki fram­kvæmda-nefndar hennar. Ekki verður lengur við það unað að ójöfn­uður, stétt­skipt­ing og mis­skipt­ing auk­ist stöðugt vegna þess að svo­kall­aðir „leið­togar“ vernda hin ríku og standa með þeim í þeirra her­skáu stétta­bar­áttu hvar og hvenær sem er, á kostnað vinn­andi fólks. Enda er það svo að alls­staðar sjáum við verka­fólk og annað vinn­andi fólk, þau sem að hafa ekk­ert að selja nema sitt dýr­mæta vinnu­afl, þá ein­stöku vöru, end­ur­vekja raun­veru­lega verka­lýðs­bar­áttu með verk­föllum, í þeim til­gangi að berj­ast gegn afætu-eðli upp­safn­aðs kap­ít­als og eig­enda þess. Verka­fólk ein­fald­lega verður að stunda harða verka­lýðs­bar­áttu vegna þess að stjórn­völd, hér og ann­ars staðar, eru vinir auð­valds og óvinir vinnu­afls. Svo­kallað vinstra fólk, kratar, miðju­fólk, íhald og ný-fas­istar; öll eiga það sam­eig­in­legt að vera blinduð gagn­vart veru­leika alþýðu-fólks og hel­tekin af veg­tyllu-græðgi og nars­iss­isma. Ekkert er aug­ljós­ara á vorum dögum.“

Sendi hún svo alþýðu Evrópu „heitar bar­áttu­kveðjur“:

„Ég sendi heitar bar­áttu­kveðjur til alþýðu Evrópu um leið og ég les nið­ur­stöður Vörðu fyrir Eflingu, unnar úr könnum sem fram­kvæmd var hjá aðild­ar­fé­lögum ASÍ og BSRB. Nið­ur­stöð­urnar eru sönn­unin á því að íslensk stjórn­völd eru full af stétta­andúð gagn­vart vinnu­afli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Ekkert mark­vert“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, leið­togi og for­sæt­is­ráð­herra, um aðstæður félags­fólks Eflingar, ísköld og áhuga­laus um örlög sam­borg­ara sinna í vetur sem leið, en ég ætla að vera 100% ósam­mála henni þar; það er allt mark­vert sem hægt er að lesa í könnun Vörðu um aðstæður Eflingar-fólks. Hún er lýs­ing innan úr efn­is­legum raun­veru­leika höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, leik­velli veru­leikafirrtrar íslenskrar valda­stéttar.“

Því næst kom hún með sorg­legar stað­reyndir um stöðu fátækra á Íslandi.

„60,1% Eflingar-fólks á nokkuð til mjög erfitt með að ná endum saman. 50,6% Eflingar-fólks geta ekki mætt óvæntum 80.000 króna útgjöldum án þess að stofna til skulda. Ef að við skoðum Eflingar-konur geta 55,4% þeirra ekki mætt 80.000 króna óvæntum útgjöldum án þess að stofna til skulda. 19,7% Eflingar-fólks metur fjár­hags­stöðu sína mun verri en fyrir ári og 29,3% nokkuð verri en fyrir ári síðan. 51,1% Eflingar-kvenna búa við nokkuð til mun verri fjár­hags­stöðu en fyrir ári síðan. Þar birt­ist hið ískalda áhuga­leysi póli­tískrar og efna­hags­legrar valda­stéttar gagn­vart til­veru­skil­yrðum lág­launa­kvenna, þeirra kvenna sem að ekki eru verð­ugar til að njóta ein­stak­lings­rétt­inda-geisla meg­in­straums femín­ism­ans á Íslandi, vegna þess að þær eru ýmist ómennt­aðar, inn­flytj­endur eða flótta­konur. Þetta er árángur sá sem kven­leið­togi lands­ins, for­sæt­is­ráð­herra, hefur náð á sinni valda­tíð.

35,2% Eflingar-fólks hefur ekki efni á árlegu fríi með fjöl­skyldu sinni. 21,5% Eflingar-fólks hefur ekki efni á því að reka bíl. Þegar að staða Eflingar-fólks er skoðuð í sam­an­burði við önnur félög mælist hún í öllum til­fellum verst. Hugsið ykkur ef að vinnu­mála­ráð­herra flokks­ins sem að kennir sig við vinstri-stefnu, VG, Guð­mundur Ingi, hefði í stað þess að flýja land til að þurfa ekki að hitta full­trúa Eflingar síð­asta vetur og í stað þess að standa með rík­is­sátta­semj­ara í vas­anum á auð­vald­inu, tekið sér stöðu með vinnu­afli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Sýnt hug­rekki og getu til að vera eitt­hvað annað en hvers­dags­legur evr­ópskur ann­ars­flokks veg­tyllu-póli­tíkus. En það gerði hann ekki. Hann flúði land og svo hélt VG lands­fund þar sem að full­trúa úr for­ystu­sveit SGS var boðið sér­stak­lega til að kalla okkur í Eflingu Sjálf­stæð­is­menn, sek um hat­urs­orð­ræðu, ver­andi nokk­urs­konar mein­semd i sam­fé­lag­inu. Fyrir þennan mál­flutn­ing upp­skar sá „leið­togi“ mikið lófatak for­ystu­sveitar VG.

Ég held áfram: Mun hærra hlut­fall Eflingar-fólks getur ekki mætt kostn­aði vegna félags­lífs barna sinna en hjá öðrum félögum. Til dæmis gátu 27% Eflingar-kvenna ekki greitt kostnað vegna afmæl­is­boða hjá vinumeða bíó­ferða fyrir börnin sín. 27,8% Eflingar-kvenna gátu ekki séð börnum sínum fyrir nauð­syn­legum klæðn­aði. Stað­reyndir úr reyk­vískum veru­leika. Stað­reyndir kvenna allt í kringum ykkar. Eiga þær að gera það sem for­sæt­is­ráð­herra og auð­valdið vill og bera harm sinn í hljóði?Rúmlega helm­ingur félags­fólks Eflingar býr við þunga byrði vegna hús­næð­is­kostn­aðar. Ef að við skoðum aðeins kon­urnar eru það 53,8% sem að búa við þunga byrði vegna hús­næð­is­kostn­aðar. Hátt í helm­ingur Eflingar-fólks býr í leigu­hús­næði en aðeins 18,8% þeirra sem að til­heyra öðrum stétt­ar­fé­lögum innan ASÍ eða BSRB. Ef að við skoðum stöðu þeirra sem að leigja eru það 57,2% sem að búa við þunga byrði vegna hús­næð­is­kostn­aðar. Það eru nú aldeilis gott að SA, SGS og stjórn­völd komu í veg fyrir að Eflingar-fólk gæti fengið sér­staka fram­færslu­upp­bót vegna hús­næð­is­kostn­aðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ekki satt?

50% Eflingar-kvenna búa við slæma and­lega heilsu. Helm­ingur. Í sjálfri jafn­réttispara­dís for­sæt­is­ráð­herra, í hinni heims­frægu femínista-borg. Nýfrjáls­hyggju-Pótemkín-tjaldið sem að okkur hefur verið troðið inní er orðið ansi mölétið og myglað. Það er mann­úð­ar­mál að Eflingar-konum verði sleppt út úr því. Kannski að við leitum á náðir Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir hönd reyk­vískra lág­launa­kvenna?“

Í loka­orð­unum seg­ist Sólveig Anna vona að það fari að „fjara undan auð­valdi“ og að „tími alþýðu­fólks renni upp“.

„Ég sendi heitar bar­áttu­kveðjur til alþýðu Evrópu. Ég vona að fjara fari undan auð­valdi og póli­tískum ónytj­ungum hér og þar, og tími alþýðu­fólks renni upp. Ég myndi segja póli­tískri yfir­stétt sem að sjálfs-upp­hefur eins og aðall fyrir alda akkúrat núna í Hörpu að skamm­ast sín fyrir að vilja frekar búa í Spegla­salnum en í sam­fé­lagi venju­legs fólks. En ég veit að það þýðir ekki neitt. Ég ætla frekar að gera orð mömmu að mínum, sem hún mælti þegar að oflæti og fárán­leg-heit hinna og þess­ara fóru langt fram yfir öll vel­sæm­is­mörk: „Það er hátt risið á hunda­skítnum“. Það er á end­anum það eina sem hægt er að segja þegar við neyð­umst til að horfa og hlusta á útsend­ing­una á 3. flokks tragík­ó­medíu sam­einaðrar valda­stéttar hinnar gömlu og grimmu heims­álfu sem sett hefur verið upp í Hörpu.“

Hægt er að lesa færsl­una í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð