Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Róbert var ástandsbarn: „Ég vissi að hann hefði verið tæknimaður í leyniþjónustu flughersins“

Sigl­firð­ing­ur­inn, sjó­ar­inn og athafna­mað­ur­inn Róbert Guð­finns­son er gestur Sjóarans að þessu sinni. Hann titlar sig ástands­barn þar sem blóð­faðir hans var tækni­maður í banda­rísku leyni­þjón­ust­unni en Guð­finnur Aðal­steins­son gekk honum í föð­ur­stað þegar hann var unga­barn.

„Já, blóð­faðir minn er Amer­ík­ani,“ svar­aði Róbert er Reynir spurði hann út í þá stað­hæf­ingu hans að hann sé „ástands­barn“. „Ég hitti hann ekki fyrr en ég var orð­inn fer­tugur. Þá eign­að­ist ég fjögur systk­ini í Banda­ríkj­unum. En ég vissi það alveg frá barns­aldri að ég ætti föður þarna úti en Guð­finnur var minn eini faðir, ól mig upp og allt það.“

Róbert segir að hann hafi alltaf upp­lifað sig sem öðru­vísi en aðrir krakkar þegar hann var að alast upp. „Svona eftir á að hyggja þá sé ég að ég átti fullt af erfða­efni frá Banda­ríkj­unum. Þegar maður lítur til baka þá var maður ekki alltaf eins og hinir.“

Aðspurður hvort hann hafi orðið fyrir ein­hverjum leið­indum frá Sigl­firð­ingum varð­andi það að vera ástands­barn sagði Róbert ekki svo hafa verið. „Nei, nei. Ég held að þeim hafi verið alveg sama. Ég held að þeir hafi haft meiri áhyggjur af því hvernig ég var heldur en hvaðan ég kom,“ sagði Róbert og skellti upp úr. „Ég held að það hafi verið meira vanda­mál.“

Reynir spurði Róbert hvernig hann hafi fundið blóð­föður sinn.

„Þetta var þannig að ég átti orðið tvær dætur og þú veist hvernig ræt­urnar eru, þú getur ekki skilið eftir tóma­rúm þarna. Ég vissi að hann hefði verið tækni­maður í leyni­þjón­ustu flug­hers­ins. Ég gúgglaði og fann fjóra með nafnið en aðeins einn þeirra var með tölvu­póst­fang á þeim árum. Og ég slengdi bara emaili á hann. Og hann kann­að­ist við málið.“ Róbert hitti blóð­föður sinn þremur mán­uðum seinna þegar hann átti leið til Mexíkó og kom við í Banda­ríkj­unum. „Það fór bara vel á með okkur.“

Reynir spurði hann hvort þeir feðgar væru líkir. „Já, við erum svo­lítið líkir. En það er svo skrítið að þegar ég var að fara að yfir­heyra hann um þetta, þá var bara lokuð bók,“ svar­aði Róbert og var þá að tala um starf föður hans hjá leyni­þjón­ust­unni. „Þetta var mjög skrítið, hann var löngu hættur og allt úrelt sem hann vissi en það skipti engu máli.“

Reynir spurði Róbert hvort sam­band þeirra hafi nokkuð verið feðra­sam­band. „Nei, en þetta var svona vina­sam­band. Þetta er svo­lítið merki­leg ætt. Þetta eru franskir Húgen­ottar (e. Hugu­en­ots), ætt­bálkur sem var hrak­inn 1650 og eitt­hvað frá Frakk­landi og yfir til Englands og þaðan yfir til Banda­ríkj­anna. Sá gamli rétti mér þetta í hend­urnar og sagði mér að ég yrði að kynna mér þetta. Hann var mjög stoltur af því að ættin ætti skjalda­merki, því ætt­fað­ir­inn sem var hrak­inn í burtu var mark­greifi af Poitiers í Frakk­landi. Húgen­ott­arnir, voru Lúth­ers­trúar og voru lagðir í ein­elti af Kaþ­ólikkum því þeir voru eig­in­lega betur mennt­aði hluti Frakka.“

Hægt er að horfa á allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð