Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Valdið segist vera að verja lýðræðið en notaði leiðtogafundinn til að þungvopna sig með leynd“

„Valdið segist vera að verja lýðræðið en notaði leiðtogafundinn til að þungvopna sig með leynd“
Þung­vopn­aðir lög­reglu­menn fyrir utan Hótel Borg. Mynd: Björgvin Gunnarsson

„Það er þakk­ar­vert að leið­toga­fund­ur­inn í Reykja­vík hafi gengið yfir án telj­andi mann­falls í vopn­uðum átökum sveita her­lög­regl­unnar og ….ein­hverra ann­ara.“ Þannig byrjar færsla Kristins Hrafns­sonar rit­stjóra Wikileaks frá því í morgun en hún er vel mar­íneruð í kald­hæðni.

Í færsl­unni dregur Kristinn ekk­ert undan í gagn­rýni sinni á leið­toga­fundi Evr­ópu­ráðs­ins sem hald­inn var í Hörpu síð­ustu tvo daga. Þá fá fjöl­miðlar á Íslandi einnig á bauk­inn fyrir að kafa ekki dýpra en í mat­seðil gala-kvöld­verðar leið­tog­anna.

Segir Kristinn að ekki einu orði hafi verið eitt í að finna leið til friðar í Úkraínu né hvernig verja megi mann­líf þar. Segir hann enn­fremur engar fréttir hafi borist af dag­skrár­liðnum „sam­eig­in­leg gildi“ sem var víst neð­ar­lega á lista yfir verk­efni fund­ar­ins. „Vita­skuld ekki orð um póli­tíska fang­ann og blaða­mann­inn Julian Assange. Þegar ég heim­sótti hann í Belmarsh fang­elsið í Lundúnum í gær, þar sem hann hefur verið í rúm fjögur ár, gat ég ekki fært honum neinar góðar fréttir frá Reykja­vík. Tjóna­skrá Úkraínu felur ekki í sér neina til­raun til að skrá tjónið á okkar mann­rétt­indum sem hafa látið veru­lega á sjá.“

Þá segir Kristinn að lög­reglan hafi notað leið­toga­fund­inn til að „þung­vopna sig með leynd – með eins ólýð­ræð­is­legum hætti og hugs­ast getur.“

Lesa má rest­ina af færsl­unni hér að neðan:

„Lít­il­lega var fjallað um fund­inn í heims­press­unni, aðal­lega svona „hverjir voru hvar“ fréttir (sem í dag er lík­leg­ast fremur „Vikan á Instagram“) og vakti einna helst athygli að breski for­sæt­is­ráð­herr­ann stopp­aði stutt við, heimt­aði að Evrópa hætti að amast við útflutn­ingi sinna flótta­manna til Rúanda – og fór.Hápunktur Reykja­vík­ur­fund­ar­ins fyrir utan mat­seð­il­inn á sam­eig­in­legum gala-kvöld­verði leið­tog­anna (bleikja, lamb og skyr) var sam­þykki fyrir því að taka upp sam­evr­ópskt tjóna­skrán­ing­ar­kerfi fyrir skað­ann af inn­rás Rússa í Úkraínu. Tjóna­skránna á síðan að nota til grund­vallar stríðs­skaða­bóta­kröfu þegar búið er að sigra stríðið í Úkraínu. Ekki orð um að finna leið til friðar og verja manns­líf. Þau virð­ast skipta minna máli en tjón á fast­eignum og innviðum.Það er reyndar verð­mæta­mat sem er býsna vel þekkt á Íslandi.Neð­ar­lega á lista yfir verk­efni fund­ar­ins var dag­skrár­lið­ur­inn „sam­eig­in­leg gildi“. Engar fréttir hafa borist af þeim lið í heims­press­una. Ekkert um þau gildi sem sótt er að í Evr­ópu­ríkj­unum, per­sónu­frelsi, tján­ing­ar­frelsi, fjöl­miðla­frelsi, Vita­skuld ekki orð um póli­tíska fang­ann og blaða­mann­inn Julian Assange. Þegar ég heim­sótti hann í Belmarsh fang­elsið í Lundúnum í gær, þar sem hann hefur verið í rúm fjögur ár, gat ég ekki fært honum neinar góðar fréttir frá Reykja­vík. Tjóna­skrá Úkraínu felur ekki í sér neina til­raun til að skrá tjónið á okkar mann­rétt­indum sem hafa látið veru­lega á sjá.Íslend­ingar fengu að minnsta kosti tveggja daga sýn­ingu á því hvert landið er að stefna með þung­vopn­aðri lög­reglu og hömlum á að geta mót­mælt í nánd við eigin leið­toga. Valdið seg­ist vera að verja lýð­ræðið en not­aði leið­toga­fund­inn sem til­efni til að þung­vopna sig með leynd – með eins ólýð­ræð­is­legum hætti og hugs­ast getur. A.m.k. sá ég að einn þig­maður hafði ekki hug­mynd um að risa­fjár­mögnun til örygg­is­gæslu hafði verið notuð til var­an­legra kaupa á árás­ar­vopnum. Fyrir her­lög­regl­una.Víg­væð­ing lög­reglu er til þess að verja fámenn­is­valdið enda er byssu­hlaup­unum beint gegn almenn­ingi, fjöld­anum. Ef þetta væri að ger­ast í suð­ur­álfum væru fréttir um und­ir­bún­ing á vopn­uðu valdaráni. Á Íslandi mændi pressan hins vegar bara upp í ginið á fámenn­is­vald­inu og sá ekk­ert annað en bleikju, lamb og skyr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð