Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gísli upplifði sig aldrei einan á sjó: „Ég var í töluverða stund að jafna mig eftir þetta atvik“

Gísli upplifði sig aldrei einan á sjó: „Ég var í töluverða stund að jafna mig eftir þetta atvik“
Gísli Gíslason.

Sjó­mennskan var aðal­starf Gísla Gísla­sonar í ára­tugi. Hann hefur upp­lifað ýmis­legt á hafi úti sem mætti kannski tengja við annan heim. Heiminn að handan. Eitthvað óút­skýr­an­legt.

Hann ólst upp á Akranesi. Fjaran heill­aði. Var leik­völl­ur­inn. Einn af þeim.

„Ég var að sulla og vaða og veiða síli. Þegar maður varð aðeins eldri þá fengum við að veiða á bryggj­unni. Það var okkar líf og yndi. Svo var spenn­andi að vera í kringum trillukarl­ana þegar þeir voru að koma í land. Ég fór sem smá­polli niður á bryggju að sníkja í soðið og það var nú ekki leið­in­legt að draga stein­bít heim til ömmu sem steikti hann með lauk og var með kart­öflur og brúna sósu með. Það var ekki dóna­legt.

Þetta lað­aði mig bara ein­hvern veg­inn að sér. Það er eitt­hvað við sjó­inn sem kallar. Ég veit ekki hvað það er en ég finn ofboðs­lega mik­inn frið við sjó­inn og í fjör­unni. Þetta er mjög gef­andi. Maður fyllist bara vellíðan. Það er ein­hver hrein­leiki í nátt­úr­unni; þetta er svipað og að fara til fjalla. Það ger­ist það sama þar. Fólk finnur bara frið.“

Einveran

Gísli byrj­aði að læra raf­virkjun en sjór­inn lokk­aði enn og lað­aði. Honum bauðst að ger­ast háseti á Sig­ur­borg­inni og þáði það boð og fór á neta­veiðar. Og hann var á sjónum í tæp 30 ár.

Þegar kafl­anum á neta­bátnum lauk fór hann á trillu með föður sínum, Loga Jóhanns­syni. Flatey kall­að­ist trillan og þeir feðgar reru saman í nokkur ár. „Svo ákvað ég að fara á tog­ara og varð háseti og var þar í nokkur ár og svo byrj­aði ég með eigin útgerð; fyrst á hand­færi og svo á línu. Það var mjög gaman.“

Hvað er eft­ir­minni­leg­ast? „Ég hef lent í því að það hefur drep­ist á vél undir bjargi en við vorum sóttir og vorum aldrei í neinni hættu af því að hjálpin barst. Ég var síðan einn á trillu í mörg ár í alls konar veðri og ég hef aldrei fundið fyrir beyg fyrir utan í eitt skipti. Það var þannig að ég var á lít­illi trillu sem var um tvö tonn og var að koma af hand­færa­veiðum og sat í stýr­is­hús­inu í róleg­heit­unum og var að reykja mína pípu þegar mér var litið út um glugg­ann. Þá horfði ég í augun á háhyrn­ingi sem var að stökkva upp úr sjónum. Það lá við að ég skiti í bux­urnar en háhyrn­ingnum brá jafn­mikið og mér og fór gjör­sam­lega í kuð­ung og fór undir bát­inn. Þetta er í eina skiptið sem mér hefur brugðið svona mikið og ég var í tölu­verða stund að jafna mig eftir þetta atvik.“

Gísli er spurður hvað hafið sé í huga hans. „Frelsi. Það fylgir því mjög hent­ugur vinnu­tími að vera á sjó en gall­inn er að maður er lengi í burtu. En þegar maður er heima þá er maður heima.“

Hann talar um dýra­lífið. Fugla­lífið. „Þetta voru vin­irnir. Þegar maður var á hand­færum þá voru þeir allt í kringum bát­inn og biðu eftir lifr­ar­bita. Eins var það á lín­unni en þá eltu þeir bát­inn og tíndu beit­una sem datt í sjó­inn. Það er alltaf mikið dýra­líf í kringum mann þegar maður er á sjó þannig að maður er svo sem aldrei einn. Ég upp­lifði það ekki þannig og ein­hverju sinni ákvað ég að fara á grá­sleppu og þá komst ég að því hvað ég var vanur ein­ver­unni.

Það var maður sem ákvað að fara með mér á grá­sleppu og tveimur dögum seinna ákváðum við að fara aftur til að draga grá­sleppu­netin. Þegar við höfðum gert það frá því um klukkan sjö um morg­un­inn og fram undir þrjú þá varð mað­ur­inn allt í einu ösku­reiður, kastaði neta­tein­unum á borðið og hálf­öskr­aði: „Þú talar aldrei neitt, maður.“ Það var þá sem ég upp­götv­aði að ég var svo vanur að vera einn með sjálfum mér; mann­leg sam­skipti voru eitt­hvað sem þurfti ekki að hafa nema bara ein­staka sinnum í gegnum tal­stöð­ina. Sjálfum sér nógur er maður alveg.“

Nærveran

Einn eða ekki einn.

„Við erum aldrei ein úti á sjó. Og þó við sjáum ekki berum augum þá sem með okkur eru þá er alltaf ein­hver. Ég get ekki sagt að ég hafi séð neitt en ég hef ein­hvern veg­inn fundið fyrir nær­veru. Maður hefur séð eitt­hvað skjót­ast út undan sér og það er eng­inn þegar maður lítur við,“ segir Gísli sem hefur þá verið einn um borð. „Þannig að ég held að það sé alltaf ein­hver með okkur öllum stundum sem lítur til með okkur. Ég get sagt þér sögu af því.

Það var þannig að þegar við pabbi vorum með fyrsta bát­inn okkar, Flateyna, þá vorum við ein­hverju sinni að gera netin klár og lágum undir stórum neta­báti. Allt í einu rak maður höf­uðið út um kýraugað á bátnum og sagði við okkur: „Þið eruð ekki bara tveir á þessum bát.“ Svo skellti hann aftur kýraug­anu og ég sá hann ekki meira. Pabbi þekkti þennan mann og sagð­ist hafa heyrt að hann væri skyggn. Svo var þetta ekk­ert rætt meira.

Við fórum stuttu síðar að leggja grá­sleppu­net vestur á Mýrum. Það var blanka­logn og það hreyfði ekki vind. Pabbi var inni á stím­inu og ég var aftur á að gera klárt. Ég var með á neta­borð­inu bauju sem átti að fara á næstu trossu. Og allt í einu datt baujan í hafið sem er með ólík­indum vegna þess að bát­ur­inn hreyfð­ist ekki og það var blanka­logn. Ég skildi ekk­ert í þessu.

Þegar ég sá baujuna rúlla út af borð­inu og út fyrir lunn­ung­ina og detta í hafið þá garg­aði ég á pabba: „Snúðu, snúðu, baujan datt í hafið.“ Akkúrat þegar hann sneri stýr­inu beygði bát­ur­inn fram hjá gömlu neta­trolli sem var á floti. Ef við hefðum ekki misst baujuna í sjó­inn þá hefði bát­ur­inn farið beint í þetta og við fengið í skrúf­una. Þetta hefði getað eyði­lagt gír­inn af því að við vorum á fullri ferð. Þannig að ég vil meina að þessi sem var með okkur hafi ýtt baujunni í sjó­inn.“

Taumurinn slitnaði

Gísli talar um að hann hafi almennt farið til veiða sam­kvæmt eigin til­finn­ingu að morgni og valið það svæði sem hann ætl­aði að veiða á en í þau skipti sem hann hafði skipt um skoðun og ákveðið að fara annað hafi veiðin verið dræm.

„Ég var ein­hverju sinni á leið­inni á miðin og einn af félögum mínum var á svip­uðu róli og hringdi í mig og sagði að það hafi verið svaka­lega mikið fiskerí í Fláka­kant­inum og spurði hvort ég vildi ekki koma með og fara í Fláka­kant­inn og við gætum bara lagt hlið við hlið í von um góðan dag. Ég sagð­ist ekki vilja það þar sem ég væri búinn að ákveða að fara suður fyrir á Bervík­ina og leggja þar. Ég var alveg harður á því. En þegar ég byrj­aði að leggja og allan tím­ann á meðan ég var að leggja balana sem voru 32 þá lóð­aði ekki neitt og þar af leið­andi ekki neitt útlit fyrir fisk. En þrátt fyrir það varð ég að standa með mínum ákvörð­unum og klára að leggja. Síminn hringdi þegar ég var búinn að draga og þá var það þessi félagi minn sem sagði að þetta hafi verið hálf­gerð Bjarma­lands­för hjá sér. Hann hafði fengið tvö og hálft tonn en ég var með 32 bala og 13 tonn. Þannig að ef ég hefði ekki hlustað á sjálfan mig þá hefði ég fengið lít­inn fisk þann dag­inn. Þannig að það er ákveðið traust sem maður hefur á svona.“

Gísli talar um eitt und­ar­legt atvik í við­bót sem hann seg­ist ekki geta útskýrt. „Ég fór út á Baulurif, sem er út af Akranesi, á milli lægða. Við vorum ekki með marga bala og ég vissi að það var að koma snar­vit­laust veður. Ég lagði balana og svo byrj­uðum við fljót­lega að draga. Við urðum að hafa hraðar hendur til að draga og kom­ast heim áður en veðrið skylli lá. Og ég dró frekar hratt. Ég teygði fram aðra hend­ina sem ég not­aði til þess að stjórna spil­inu og í því fór krókur á kaf í hend­ina og ég gat ekki stoppað spilið og hendin dróst að því. Svo heyrð­ist smellur og slitn­aði taum­ur­inn áður en hann fór í slít­ar­ann. Þannig að ég get ekki útskýrt þetta en þetta gerð­ist og ég held að ein­hver hafi lagt mér lið. Þetta var mjög skrýtið af því að ef ég hefði farið í spilið þá hefði farið mjög illa með hend­ina á mér.“

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð