Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristrún spurði Katrínu: „Kemur til greina að ná saman fyrir þinglok um leigubremsu?“

Kristrún spurði Katrínu: „Kemur til greina að ná saman fyrir þinglok um leigubremsu?“

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um vaxta­bætur og leigu­bremsu.

Katrín segir vaxta­bætur hafa hækkað í vetur og starfs­hópur skoði leigu­bremsu; Kristrún hvatti rík­is­stjórn­ina til dáða á Alþingi í dag og kall­aði eftir aðgerðum til að verja heim­ilin og stuðla að stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði.

Þá spurði hún for­sæt­is­ráð­herra hvort nýta mætti tím­ann fram að þing­lokum til að taka upp leigu­bremsu og auka stuðn­ing við fólk í gegnum vaxta­bætur.

Katrín svar­aði því til að skerð­ing­ar­mörk vaxta­bót hefðu hækkað um 50 pró­sent síð­ustu ára­mót og að inn­við­a­ráð­herra væri með starfs­hóp á sínum snærum sem eigi að skila til­lögum um hvernig megi skapa betri ramma um leigu­mark­að­inn.

Kristrún sagði meðal ann­ars:

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Kemur til greina að ná saman fyrir þing­lok um leigu­bremsu? Á að nýta tím­ann eða verður vorið bara látið líða svona, án frek­ari aðgerða? Ég vil stappa aðeins stál­inu í hæst­virta rík­is­stjórn.“

Katrín sagði meðal ann­ars:

Katrín Jak­obs­dóttir, Róbert Reyn­is­son.

„Hátt­virtur þing­maður talar hér um ein­hvers konar mis­tök sem ég ætla bara að hafna að hafi verið gerð. Lífið byrj­aði ekki í gær. Því að hér er rætt sér­stak­lega um verka­lýðs­hreyf­ing­una: Hún situr í hópi inn­við­a­ráð­herra sem er einmitt að fást við það hvernig megi skapa betri ramma um leigu­markað.“

Orða­skipti Kristrúnar og Katrínar um vaxta­bætur og leigu­bremsu eru hér í heild.

Svona var fyrri ræða Kristrúnar Frosta­dóttur:

„Virðu­legi for­seti. Þó að mis­tök hafi verið gerð — þá þýðir ekki að gef­ast upp. Og ég vil stappa aðeins stál­inu í hæst­virta rík­is­stjórn núna. Nú eru þrjár vikur eftir af þingár­inu — eða níu þing­fundir, sam­kvæmt starfs­á­ætlun Alþingis. Og það er ennþá verið að hækka vexti. Að öllum lík­indum fáum við hressi­lega vaxta­hækkun líka í fyrra­málið. Öll við­brögð við fjár­mála­á­ætlun sýna að aðgerðir hæst­virtrar rík­is­stjórnar gegn verð­bólgu eru of veikar. Og það eru kjara­samn­ingar í haust. En hvað getum við þá gert núna, áður en þingið fer í sum­ar­frí? Það er nefni­lega tími ennþá til stefnu. Á að nýta tím­ann eða verður vorið bara látið líða svona, án frek­ari aðgerða?

Ég er ekki bjart­sýn á að rík­is­stjórnin ráð­ist í aðgerðir til að vinna gegn þenslu — til dæmis með því að taka á þensl­unni þar sem hún er í raun, eins og við í Sam­fylk­ing­unni höfum talað fyrir. En verð­bólgu­þróun næstu mán­aða og næsta árs verður mjög háð þeim vænt­ingum sem verða hér í land­inu um kjara­samn­inga og nið­ur­stöðu þeirra. Og það er á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar að reka vel­ferð­ar­stefnu sem stuðlar að stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og kemur í veg fyrir að við göngum inn í enn eitt árið af verð­bólgu og vaxta­hækk­unum.

Ef rík­is­stjórnin er reiðu­búin að stíga upp núna og nýta tím­ann fram að þing­lokum, þá erum við í Sam­fylk­ing­unni boðin og búin að leggja okkar af mörkum. Vissu­lega hafa verið gerð mis­tök í hag­stjórn­inni — en það þýðir ekki að hengja haus yfir því. Núna þarf að horfa fram á veg­inn. Og því spyr ég hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra:

Kemur til greina að nýta tím­ann sem við höfum fram að þing­lokum til að ráð­ast í aðgerðir sem verja heim­ilin og stuðla að stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði? Kemur til greina að ná saman fyrir þing­lok um leigu­bremsu, í fyrsta lagi, og í öðru lagi auk­inn stuðn­ing við fólk í gegnum vaxta­bætur?“

Hér er fyrri ræða Katrínar Jak­obs­dóttur:

„Herra for­seti. Ég þakka hátt­virtum þing­manni fyr­ir­spurn­ina. Auðvitað er það mjög mik­il­vægt að þingið sinni störfum sínum allt þar til þing fer í hlé hér ein­hvern tím­ann í sumar. Og að sjálf­sögðu eru stór mál undir sem er verið að ræða og kannski eitt af þeim stærstu fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem svo sann­ar­lega eru boð­aðar aðgerðir, bæði á tekju- og gjalda­hlið, til að slá hér á þenslu. Og það er mjög mik­il­vægt.

Hátt­virtur þing­maður talar hér um ein­hvers konar mis­tök sem ég ætla bara að hafna að hafi verið gerð.

Við komum út úr heims­far­aldri með þá ein­stöku stöðu að kaup­máttur allra tekju­tí­unda jókst í gegnum heims­far­aldur. Við beittum rík­is­sjóði af fullum þunga — jafn­vel of mikið, segja menn núna — á sama tíma og við vorum gagn­rýnd fyrir að ganga ekki nógu langt. Síðan þá höfum við gripið til mark­vissra aðgerða til að kæla hag­kerfið, hægja á fjár­fest­ingu og boðum hér aukið aðhald á tekju- og gjalda­hlið.

Hátt­virtur þing­maður ræðir hér kjara­samn­inga og það sé mik­il­vægt að þeir verði vel­ferð­ar­samn­ingar. Ég ætla að fá að rifja upp fyrir hátt­virtum þing­manni að lífs­kjara­samn­ing­arnir sem voru gerðir 2019 voru gerðar með ríku­legri aðkomu stjórn­valda en lengi hafði sést. Þar voru ótal breyt­ingar boð­aðar og staðið við, hvort sem það var breyt­ing á skatt­kerf­inu og upp­taka þrepa­skipts skatt­kerfis, skatta­lækkun fyrir tekju­lægstu hópana, upp­bygg­ing á hús­næð­is­mark­aði, leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs og efl­ing barna­bóta­kerf­is­ins.

Ef hátt­virtur þing­maður hefur ein­hverjar áhyggjur af því að hér verði ekki áfram unnið í góðu sam­ráði við aðila vinnu­mark­að­ar­ins, sem við höfum gert hingað til og hyggj­umst gera áfram, þá þarf hún ekki að hafa áhyggjur af því. Þeir samn­ingar sem gerðir voru síð­ast voru skamm­tíma­samn­ingar vegna eðli­legrar óvissu um verð­bólgu­þróun. En haf­andi sagt þetta þá ætla ég bara að taka undir með hátt­virtum þing­manni. Brýnasta verk­efnið er að verð­bólga fari niður og hún mun fara niður. Við erum auð­vitað í þeirri stöðu hér að atvinnustig er mjög hátt, atvinnu­leysi mjög lágt. Umsvif í kerf­inu eru mjög mikil og það er að sumu leyti góð staða miðað við ýmis önnur ríki sem við berum okkur saman við.

En hins vegar er alveg aug­ljóst að verð­bólgan og vaxta­stig er auð­vitað það sem leggst mest á tekju­lægstu hópana og þess vegna höfum við boðað sér­stakar aðgerðir til að mæta þeim — meðal ann­ars sér­staka vörn fyrir öryrkja á miðju ári í anda þess sem rík­is­stjórnin gerði um leið og verð­bólga fór að láta á sér kræla.“

Hér er seinni ræða Kristrúnar:

Virðu­legi for­seti. Já, við virð­umst vera svo­lítið föst í for­tíð­inni, vegna þess að vand­inn sem við erum að tala um núna er vandi sem er að fara að birt­ast á næstu tveimur til þremur mán­uðum. Það er talað um að snjó­hengja lána, óverð­tryggðra lána sem eru að losna af föstum vöxtum, blasi við núna í haust. Við erum að sjá sögu­legar vaxta­hækk­anir, mögu­lega mikla vaxta­hækkun í fyrra­málið.

Við getum rök­rætt hér í allan dag um hvað hæst­virt rík­is­stjórn hefur gert hingað til. En spurn­ing mín til for­sæt­is­ráð­herra sneri að því hvort skila­boðin til almenn­ings þarna úti séu að við förum með óbreytt ástand inn í sum­arið; vit­andi það að nið­ur­staða kjara­samn­inga í haust er að fara að leggja grunn að verð­bólg­unni á næsta ári; vit­andi það sem verka­lýðs­hreyf­ingin í dag er að tala um varð­andi leigu­bremsu, varð­andi vaxta­bætur, varð­andi styrk­ingu á þessum kerfum. Þannig að ég ítreka mína spurn­ingu:

Verður ekk­ert meira gert en það sem birt­ist í fyrstu drögum að fjár­mála­á­ætlun og flestir eru sam­mála um að er ekki nóg til að vinna gegn verð­bólgu?“

Svo seinni ræða Katrínar:

„Herra for­seti. Fjár­mála­á­ætl­unin er auð­vitað til með­ferðar hér á Alþingi og verður áfram, eins og kom fram í mínu fyrra svari. Hátt­virtur þing­maður spurði hér áðan sér­stak­lega um vaxta­bætur og hús­næð­is­stuðn­ing og leigu­bremsu. Og þó að hátt­virtur þing­maður telji að það sem gerð­ist fyrir fjórum mán­uðum telji ekki, þá ætla ég nú samt að leyfa mér að rifja það upp fyrir hátt­virtum þing­manni að lífið byrj­aði ekki í gær.

Við hækk­uðum hér skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta um 50 pró­sent um ára­mótin, við hækk­uðum hús­næð­is­stuðn­ing. Og ég ætla að rifja það upp — því að hér er rætt sér­stak­lega um verka­lýðs­hreyf­ing­una: Hún situr í hópi inn­við­a­ráð­herra sem er einmitt að fást við það hvernig megi skapa betri ramma um leigu­markað. Og það er auð­vitað risa­stórt mál því að hér í raun og veru verið ónógur rammi um leigu­mark­að­inn, ónægar upp­lýs­ingar. Fyrsta skrefið var stigið hér á þingi fyrir ára­mót þar sem tekin var upp skrán­ing­ar­gjalda á til­teknu leigu­samn­ingum. Við erum á þess­ari veg­ferð. Þannig að, verður þetta tekið til umræðu? Já, ég veit ekki nákvæm­lega hvenær hópur inn­við­a­ráð­herra skilar af sér — en þar sitja aðilar vinnu­mark­að­ar­ins.

Og ég vil bara ítreka það, af því að hátt­virtum þing­manni er hér tíð­rætt um kjara­samn­inga: Hér er starf­andi þjóð­hags­ráð og þar er farið yfir þessi mál og það munu koma fram til­lögur þar hér eftir sem hingað til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð