Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Íslendingar hafa verið tjóðraðir við einstaklega heimskulega sögu, hálfgert skrípó“

„Íslendingar hafa verið tjóðraðir við einstaklega heimskulega sögu, hálfgert skrípó“
„Myndin er ekki af afa. Þetta eru íslenskir tog­ara­sjó­menn lík­lega um það leyti sem afi fór í land. Á mynd­inni er ekk­ert athafna­skáld.“

„Afi minn var alla ævi á sjó, kom í land gam­all maður með lúnar fætur. Hann missti son sinn á sjó og líka son­ar­son. Amma var sjó­manns­kona og sá um allt í landi meðan afi var í löngum túrum, oft við Grænland og Nýfundna­land og oft í sigl­ingum. Amma var hörku­tól, eins og gjarnt var um konur í þess­ari stöðu, á meðan afi var blíð­astur allra í landi. Bræður mínir voru lengi á sjó, einn nán­ast alla starfsæv­ina og annar næstum hálfa. Hálf­bróðir okkar hefur verið far­maður alla sína tíð og ég fór sjálfur á tvær ver­tíðar og pabbi reyndi fyrir sér á skaki. Ég gæti talið upp fleiri í ætt­inni, t.d. Óla Karls sem var vís til alls og var alla ævi á síðu­tog­urum.“ Svona byrjar mögnuð Facebook-færsla Gunnars Smára Egils­sonar, sós­í­alista­for­ingja.

Færsluna skrif­aði Gunnar í til­efni af sjó­manna­deg­inum sem hald­inn var hátíð­legur um allt land í gær. Þar fer hann yfir sögu for­feðra og mæðra sinna og hvernig þau háðu „stór­kost­leg­ustu mann­rétt­inda­bar­áttu Íslands­sög­unnar“ með því að sækja sér „kosn­inga­rétt, verk­falls­rétt og samn­ings­rétt og rödd.“ Segir Gunnar Möggann og auð­valdið hafi end­ur­skrifað sög­una með því að segja að „athafna­skáld hafi komið með nútím­ann til Íslands.“ Restina af hinu mögn­uðu færslu má lesa hér að neðan.

„Margt af mínu fólki byggði upp sjáv­ar­út­veg á Íslandi, sótti sjó og vann í landi í salt­fisk og í síld. Ef ég rek mig aðeins aftur í ættir finn ég þar fólk sem flutti úr sveit í bæinn til að gera einmitt þetta, að byggja hér upp sjáv­ar­út­veg. Sem var for­senda fyrir efna­hags­legum fram­förum sem aftur lögðu grunn­ur­inn að öfl­ugra sam­fé­lagi. Þau fyrstu sem komu úr sveit­inni voru líka fólkið sem stofn­aði fyrstu verka­lýðs­fé­lögin og háðu stór­kost­leg­ustu mann­rétt­inda­bar­áttu Íslands­sög­unnar, rétt­laust almúga­fólk sem sótti sér kosn­inga­rétt, verk­falls­rétt, samn­ings­rétt og rödd. Sem síðan mót­aði allt sem ein­hvers virði er í hinu form­lega sam­fé­lagi millum okkar; orlofs­rétt, veik­inda­rétt, atvinnu­leys­is­trygg­ingar, almanna­trygg­ingar, eft­ir­laun, örorku­bætur, rétt­inn til náms og svo áfram enda­laust.Við minn­umst þessa fólks sjaldan. Mogginn og auð­valdið hefur end­ur­skrifað sög­una svo að þar er sagt að ein­hver svokölluð athafna­skáld hafi komið með nútím­ann til Íslands, efna­hags­legar fram­farir, aukin rétt­indi og betri kjör. Og að síðan hafi braut­ryðj­endur, athafna­menn og frum­kvöðlar fylgt á eftir og leyft okkur að njóta afrakst­urs hyggju­vits síns og dugn­aðar. Bjargað okkur frá sinnu­leysi og ves­öld. Og þess vegna ættum við að vera þakk­lát fyrir að fiski­miðin okkar séu í dag eign Þor­steins Más í Samherja og Guð­mundar í Brim. Að fisk­inum sé best komið fyrir hjá þeim vegna þess að fólk sé almennt svo heimskt að það kunni ekki með neitt að fara. Kunni bara að kvarta. Okkur er sagt að fólki farn­ist best að vera sem vinnu­hjú á bæjum þess­ara manna. Í sömu aðstæðum sem for­feður mínir og -mæður einmitt flúðu fyrir fjórum kyn­slóðum eða svo.Það er hægt að stjórna fólki með því að ná yfir­ráðum yfir sögu þess. Sagan skil­greinir hvað fólk er, hvers það er megn­ugt og hvaða kosti það hefur. Íslend­ingar hafa verið tjóðraðir við ein­stak­lega heimsku­lega sögu, hálf­gert skrípó. Sem virð­ist bara ætla að versna.Ég held það sé kom­inn tími til að hrista þessa sögu af sér. Hún er lygi.Gleði­legan sjó­manna­dag allir sjó­menn og afkom­endur sjó­manna. Við ættum að nota dag­inn til að rifja upp sög­una, ekki til að gleyma henni.Myndin er ekki af afa. Þetta eru íslenskir tog­ara­sjó­menn lík­lega um það leyti sem afi fór í land. Á mynd­inni er ekk­ert athafna­skáld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð