Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Seðlabankinn kyndir undir óstöðugleika: „Verðbólgan […] leiðir ekki til þyngri greiðslubyrði“

Seðlabankinn kyndir undir óstöðugleika: „Verðbólgan […] leiðir ekki til þyngri greiðslubyrði“
Marinó G. Njálsson gaf út nýja færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann telur fjár­mála­stöð­ug­leik­anum ógnað af Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. Myndin er sam­sett

Marinó G. Njálsson, fyrrum for­maður Hags­muna­sam­tök Heim­il­anna bendir á tví­skinn­ungs­hátt í stefnu Seðla­bank­ans og gagn­rýnir vinnu­brögð Seðla­banka­stjór­ans og segir bank­ann brjóta eigin lög í nýrri færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Telur Marinó þrá­látar vaxta­hækk­anir pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans ógna fjár­mála­stöð­ug­leik­anum. Marinó hefur færslu sína með til­vísun í orð fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar til þjóð­ar­innar:

„Fjár­mála­stöð­ug­leiki er ekki í hættu, en samt eiga allir að passa sig.
Nokkurn veg­inn þannig eru skila­boð fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar til þjóð­ar­innar. Vegna hækk­unar vaxta, þá eiga bank­arnir að vera góðir við lán­taka. Vegna þess að tíma­bil fastra vaxta er að renna sitt skeið, þá eiga heim­ilin að passa sig.“

Hann vísar í og leið­réttir yfir­lýs­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar um að verð­bólga og skarpar vaxta­hækk­anir leiði til þyngri greiðslu­byrði lán­tak­anda með lán á breyti­legum vöxtum:

„Err, nei, verð­bólgan ein og sér leiðir ekki til þyngri greiðslu­byrði lána með breyti­legum nafn­vöxtum. Það er skörp hækkun vaxta Seðla­bank­ans sem leiðir til þess­arar þyngri greiðslu­byrði.“

Marinó hvetur nefnd­ar­menn fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar, pen­inga­stefnu­nefndar og Seðla­banka­stjóra til að lesa við­tal sem birt­ist í fyrra­dag á Heim­ild­inni við Olav Guttesen, banka­stjóra Betri Banka í Færeyjum. Þar var banka­stjór­inn spurður hvernig rekstur bank­ans þyldi við að hafa nei­kvæða raun­vexti á útlánum sínum sem Olav svarar:

„Við lítum ekki á það þannig. Við borgum inni­stæðu­eig­endum vexti. Tekj­urnar okkar markast af vöxt­unum sem við fáum af útlánum. Við erum fjár­mögnuð af inni­stæðum.“

Marinó tekur undir orð Olavs og vill meina að það heila­þvott af hálfu Seðla­bank­ans þegar nefndur er skað­inn við hóf­sama vexti, og telur Marinó þann þvott halda áfram. Marinó bætir máli sínu til stuðn­ings:

„Það sem meira er, að verð­bólga er í nán­ast öllum löndum heims notuð til að draga úr skulda­byrði heim­il­anna sem hlut­fall af tekjum þeirra.“

Fjár­mála­stöð­ug­leik­inn
Marinó G. Njálsson kastar ljósi á að ógn við fjár­mála­stöð­ug­leik­ann hefur mynd­ast vegna þeirra óhóf­legu vaxta­hækk­ana sem settar hafa verið á undir stjórn Pen­inga­stefnu­nefndar og Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra. Marinó spyr því næst:

„Við núver­andi ástand er spurn­ingin hvort er meiri ógn, óstöðugt verð­lag eða skortur á fjár­mála­stöð­ug­leika?“

Marinó bendir á að lán­tökum er skylt sam­kvæmt lögum um hús­næð­is­lán að fara í greiðslu­mat við end­ur­skoðun fastra vaxta. Sá laga­liður mun hafa gríð­ar­leg áhrif á fjár­mála­stöð­ug­leik­ann enda hafa vaxta­hækk­an­irnar verið langt fram úr mörkum:

„Þá þurfa lán­takar að fara í greiðslu­mat, skv. 23. gr. laga nr. 118/2016 um hús­næð­is­lán til neyt­enda, hækki greiðslu­byrði lána um meira en 20%. Vaxta­hækkun úr 3% í 9% fer langt fram út þeim mörkum og líka þó hækk­unin verði „bara“ í 7%. Slík hækkun mun hækka hús­næð­islið vísi­tölu neyslu­verðs og óvissa um hvort lán­takar stand­ist greiðslu­mat mun hafa áhrif á fjár­mála­stöð­ug­leika. Auðvitað má redda þessu með því að breyta lög­unum, en standi lán­takar ekki undir hækk­un­inni, þá fjölgar van­skilum og fjár­mála­stöð­ug­leika er ógnað.“

Marinó vísar í lög Seðla­banka Íslands um að stofn­unin skuli stuðla að stöð­ugu verð­lagi, fjár­mála­stöð­ug­leika og traustri og öruggri fjár­mála­starf­semi og ritar:

„Mér sýn­ist sem tvennt þetta fyrra sé fokið út í verður og vind, traustið á fjár­mála­starf­semi í land­inu hefur nú ekki risið hátt í ein 15 ár og eftir að Seðla­bank­inn leyfði sölu á Borgun og Valitor til erlendra aðila, þá er spurn­ingin hvert öryggið er.“

Hann seg­ist þess viss að innan Seðla­bank­ans vinni vel mein­andi starfs­fólk sem hugsi um hags­muni þjóð­ar­innar, en að ofskömmtun þess með­als sem gripið hafi verið til geti leitt til ofskömmt­unar: „Ég er held nú sé kom­inn tími til að minnka skammt­inn og sjá hvort að sjúk­ling­ur­inn bragg­ist,“ skrifar Marinó.

Hann segir að ef horft sé til fram­tíðar að þá sé vaxta­stefna Seðla­bank­ans einatt að kynda undir óstöð­ug­leik­ann og sem nú þegar hefur stuðlað að miklum sam­drætti í upp­bygg­ingu á hús­næð­is­mark­aði og segir:

„ … þar sem engum heil­vita verk­taka dettur í hug að fjár­magna fram­kvæmdir sínar á 15% vöxtum og þaðan af verra, meðan mikil óvissa ríkir um hverjir geta keypt og hve langan tíma það gæti tekið. Íbúða­skortur er þegar orð­inn mik­ill og eykst með hverjum mán­uð­inum, meðan fólks­fjölgun hefur lík­lega ekki verið hrað­ari frá dögum Svarta vík­ings­ins.“

Spurningar til seðlabankastjóra

Undir lokin ber Marinó fram spurn­ingar til Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra:

  • „Hvernig ætlar bank­inn að losa um þann hnút sem hann hefur verið að hnýta?“
  • „Hvernig mun Seðla­bank­inn stuðla að því að hús­næð­is­fram­kvæmdir kom­ist á skrið án þess að hús­næð­is­verð hækki upp úr öllu valdi?“
  • „Eða ætl­ast Seðla­bank­inn til að ein­hverjir aðrir finni leið­ina út úr völ­und­ar­húsi aðgerða bank­ans?“

Marinó hefur litla trú á úrræðum rík­i­s­tjórn­ar­innar og bendir á hverjir eigi raun­veru­lega eftir að maka vaxta­krók bank­anna hlaupa undir bagga þessar gríða­legu hækk­ana:

„Ég veit, að til þess hóps telst ekki rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, miðað við að öll úrræði hennar eiga að koma seinna og eru hvorki fugl né fiskur. Ekki eru það atvinnu­rek­endur og hluta­fjár­eig­endur sem telja það heilaga­skyldu sína að maka krók­inn og hækka hagnað sinn. Þá eru bara launa­fólk og líf­eyr­is­þegar eftir!“

Hér að neðan má sjá færslu Marinós G. Njáls­sonar í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð