Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Útvarpskonan Vala Eiríks ásökuð um að gaslýsa Svala: „Ég skammast mín ekki vitund“

Útvarpskonan Vala Eiríks ásökuð um að gaslýsa Svala: „Ég skammast mín ekki vitund“
Vala Eiríks útvarps­kona hjá Bylgj­unni fékk yfir sig skæða­drífu af ásök­unum eftir að hafa skrifað athuga­semd undir færslu hjá Svala. Myndin er sam­sett

Tals­verður hiti varð eftir færslu fjöl­miðla­manns­ins Sigvalda Kalda­lóns eða Svala, um það þegar sonur hans var rændur fyrir utan Bónus. Þar var útvarps­konan Valdís Eiríks­dóttir eða Vala Eiríks sökuð um að gaslýsa, spurð hvað væri að henni og sagt að skamm­ast sín eftir hún komment­aði undir svohljóð­andi færslu Svala:

„Ok litla Ísland eða hvað!!!! Sonur minn 15 ára rændur fyrir utan Bónus í Skeif­unni kl 21:30. 8 til 10 hetjur af erlendu bergi brotnar(já ekki íslend­ingar, ég sagði það)rændu svartri Rallph Loren úlp­unni sem hann var í. Hef mjög lengi verið klapp­stýra útlend­inga mála á Íslandi en set risa­stórt spurn­inga­merki við þessa hömlu­lausu inn­hleyp­ingu útlend­inga. Sorry, atburður kvölds­ins setur mig ekki á góðan stað varð­andi útlend­inga­sam­fé­lögin sem eru að mynd­ast. Svört Ralph Loren úlpa óskast í M stærð. Finn ykkur í fokk­ing fjöru.“

Athuga­semd Völu sem ætl­aði allt um koll að keyra var svohljóð­andi:
„Glatað að heyra! Vona að hann sé í lagi, á sál og lík­ama. <3
En Svali minn, þjóð­ernið við­kemur mál­inu ekk­ert. Ein­stak­ling­arnir gera það.“

Tölu­verður fjöldi sýnir athuga­semd Völu sam­mælis með því að líka við hana en Jóna María lýsir vissri undrun á athuga­semd­inni. Útvarps­konan Vala Eiríks stendur föst á sínu og svarar til útskýr­ingar að ekki sé hægt að hengja heilan hóp af fólki fyrir fáa rotna ein­stak­linga. Friðrik Gunnar Berndsen sæk­ist þá eftir svörum frá Völu og spyr:

„Af hverju ert þú að gera lítið úr hans [Svala] skoðun byggða á reynslu með því að reyna að gaslýsa hana?“

Þessu svarar Vala Eiríks:

„Ja hérna. Ég er aldeilis ekki að gaslýsa neinn og enn síður er ég að gera lítið úr þess­ari hræði­legu upp­lifun! ég get nokkurn veg­inn lofað þér því að Svali þekkir mig það vel að taka því ekki þannig frá mér. Þetta er það sem gerir sam­fé­lagið okkar hættu­legt. Reiði og aðskiln­aður. Við og þau. „við“ erum ekk­ert betri og minna hættu­leg en „þau“. Við erum öll ein­stak­lingar. Svo ein­falt er það. Ég sem ein­stak­lingur tek ákvarð­anir út frá mér. Þú átt ekki að vera gerður ábyrgur fyrir mínum ákvörð­unum bara vegna þess að við erum bæði Íslend­ingar, eða hvað?“

Þeir sem rita undir færslu skipt­ast í tvær fylk­ingar; þeir sem sjá fylgni milli inn­flytj­enda og þeir sem telja þjóð­ernið óvið­kom­andi. Vala situr ekki á skoðun sinni og bendir þeim sem eru á önd­verðu meiði á að ein­hverjir Íslend­ingar stundi líka glæpi og beiti ofbeldi en ekki megi setja alla undir sama hatt­inn.

Jóna María ritar þá seinna aftur til Völu og spyr:

„Valdís Eiríks­dóttir liggur þú bara á vakt­inni inn á þess­ari ömur­legu reynslu drengs­ins til að afsaka hæl­is­leit­endur? Ertu ekki búin að lesa færsl­una? Hvað er eig­in­lega að þér?“

Þessu svarar Vala:

„Ég fæ notification eins og allir aðrir þegar kommentað er á þræði sem ég hef kommentað á. Á frekar erfitt með að svara ekki, þegar mér finnst fólk vera órétt­látt. Það er það sem er að mér.❤️

Ég las sann­ar­lega færsl­una og kom með ábend­ingu til vinar míns um orða­lagið. Í kjöl­farið fór umræðan yfir í allt annað og það er það sem ég gagn­rýni hér.

Það má færa þau rök að fjöl­margir „liggi á vakt­inni“ út frá ömur­legri reynslu drengs­ins til að koma áleiðis eigin for­dómum.

Ekki allir, margir beina orð­unum aðeins að þessum hópi og almennum glæpa­hópum og það skil ég vel.“

Jóna María sakar þá Völu um að hafa leitt umræð­una við færsl­una á villi­götur og dregur Völu í dilka:

„Valdís Eiríks­dóttir já og fór í allt aðra átt út af ummælum. Eins og þínum hópi er einum lagið með að gera“.

Vala spyr því næst hvort hún beri ábyrð á ljótum orðum ann­arra og hver hennar hópur telj­ist vera. Jóna María er harð­yrt og svarar:

„Valdís Eiríks­dóttir ljótum orðum hver var með ljót orð? Hvaða helv. ábyrð á orðum hér er verið að tala um son Svala sem er ráð­ist á af vinum þínum hæl­is­leit­endum! Og það er bara als ekk­ert í lagi og að börnin okkar og við almennir borg­arar geti ekki orðið skott­ast í Bónus án þess að vera klæddur úr og rændur, heldur þú virki­lega að það verði engin eft­ir­mála með hans reynslu? Þú tekur þessa færslu upp á ömur­legt level og skammastu þín. Passaðu bara eigin orð. Hópurinn þinn! VIÐ VILJUM HÆLISLEITENDUR“

Vala útskýrir sig áfram og segir Jónu Maríu að hún skamm­ast sín ekki vit­und:

„Heldur þú virki­lega að ég sé að verja þessa menn? Þú ert greini­lega ekki að lesa/skilja það sem ég er að segja. Eina sem ég er að segja er að þó að þessir til­teknu hrottar séu erlendir, þýði það ekki að ALLIR erlendir séu ofbeld­is­menn. Mikið þykir mér leið­in­legt að þú sért að burð­ast með þessa reiði en ég frá­bið mér að verða fyrir henni bara vegna þess að ég er að biðja fólk að beina orð­unum að RÉTTUM aðilum. Ég skamm­ast mín ekki vit­und fyrir það að tala með mann­rétt­indum og almennri rök­hugsun. Góða nótt.“

Síðar ritar Helgi Skúlason til Völu:

„Það er fólk eins og þú sem hefur búið þetta vanda­mál til … Reyndu nú að skamm­ast þín …“

Vala Eiríks svarar Helga:
„Helgi Skúlason aftur, ég skamm­ast mín seint fyrir það að vilja sann­gjarnt og mann­legt sam­fé­lag. Samfélag þar sem allir koma vel fram við alla, inn­fæddir sem og aðfluttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð