„Forsætisráðherra segir að þjóðin verði að ná sátt í áfengismálum. Það verður aldrei sátt um sölu áfengis. Bindindismenn eru alla jafna á móti sölu áfengis. Óvirkir fíklar er einnig mjög á móti öllum breytingum á sölu áfengis nema til að banna sölu þess. Svo eru enn til botnfreðnir sósíalistar, sem enga ólyst hafa á áfengi, en geta bara ekki hugsað sér að afnema einkarétt ríkisins á nokkru. Með þeim í liði eru nokkrir framsóknarmenn sem líta enn upp til Hriflu-Jónasar,“ segir Brynjar Níelsson aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrum þingmaður í nýrri færslu á Facebook. Þar kemur hann sjónarmiðum sínum um sölu áfengis í matvöruverslunum en mikið hefur verið fjallað um málið eftir að Costco opnaði fyrir áfengissölu til almennings.
Brynjar er hlynntur enda gallharður Sjálfstæðismaður er hefur flokkurinn lengi stefnt að breytingum og rýmka fyrir sölu áfengis og gera aðgengilegra. Hann les bindindismönnum og fólki með fíknivanda óvægan pistillinn og telur þá fremstu hindrun og mótstöðu breytinganna:
„Lengi hefur verið vitað að maðurinn er ekki fullkominn og ræður misvel við lífið. Mikið væri leiðinlegt ef við værum öll fullkomin. Við höfum mörg tilhneigingu til að ánetjast einhverju sem fer ekki vel með okkur. Fíkn í áfengi er ekki eina vandamálið. Sumir glíma við spilafíkn, kaupfíkn eða kaupæði, tölvuleikjafíkn sem herjar einkum á ungmenni og svo má ekki gleyma kynlífsfíkn sem hefur þó tilhneigingu til að lagast með aldrinum. Áfengið, búðirnar spilin, tölvuleikirnir og kynhvötin er ekki sökudólgurinn heldur við sjálf.“
Hann snýr svo umræðunni að sjálfum sér og setur sig undir sama hatt og vinstri menn, sem hann kallar gáfumenn. Brynjar kveðjst laus við kaupfíkn og kemur svo rétt inn á kynlífsiðkun sína:
„Sjálfur hef ég enga ólyst á áfengi, ekki frekar vinstri gáfumenn. En ég er alveg bólusettur fyrir kaupfíkn og þjáist af vanlíðan í hvert sinn sem Soffía dregur mig inn í búð. Ef ég væri ekki kvæntur ætti ég engin föt og klæddist laufblaði eins og Adam forðum. Þá er ég of tregur til að læra á tölvuleiki og spilakassa. Hef verið hófsamur í kynlífsiðkun, einkum í seinni tíð.“
Brynjar kveður kvæði sínu í kross og segir að manneskjur þurfi almennt að bera ábyrgð á lífi sínu sjálft:
„Við vitum að alltaf munu einhverjir missa fótanna og þá er mikilvægt að í boði sé hjálp vilji menn hana. Ef við tökum alla ábyrgð af fólki og sjúkdómsvæðum alla vitleysu sem við gerum þá batnar ástandið ekki.“
Hér að neðan má sjá færslu Brynjars í heild:































Athugasemdir