Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kemur fram að tveir menn séu í haldi í þágu rannsóknar á andláti karlmanns á fimmtugsaldri. Maðurinn fannst í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í nótt.
Tilkynning vegna málsins barst lögreglu á sjötta tímanum og hélt hún þegar á vettvang, en hinn látni var meðvitundarlaus utandyra þegar að var komið. Reynt var að endurlífga manninn en það bar ekki árangur. Í kjölfarið voru tveir karlar handteknir í tengslum við málið, annar í húsi við vettvanginn og hinn þar nærri.
Lögreglan segir rannsókn málsins vera á frumstigi og ekki sé hægt að veita frekar upplýsingar að svo stöddu.
Lögreglan mun senda frá sér frekari upplýsingar um málið eftir því sem rannsókn þess vindur fram.
Fréttin verður uppfærð































Athugasemdir