Í gær voru liðin 23 ár frá hinu hryllilega slysi á tónleikum grugghljómsveitarinnar Pearl Jam á Hróarskeldu þar sem níu manns krömdust til bana fyrir framan sviðið. Birta Björnsdóttir, fréttakona Ríkisútvarpsins var ein af fjölmörgum Íslendingum sem var á tónleikunum.
Birta minnist hins sorglega atburðar í Twitter-færslu en hún var á tónleikunum ásamt systur sinni. Með textanum birti hún stutt minningarmyndskeið sem Pearl Jam setti á netið í gær.
„Þessir tónleikar gleymast aldrei Þegar Eddie Vedder brotnaði saman á sviðinu áttaði maður sig fyrst á alvarleika málsins. Það var eins og teppi sorgar, doða og óvissu legðist yfir hátíðasvæðið meðan við systur leituðum að tíkallasíma til að hringja heim og láta vita af okkur.“































Athugasemdir