Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hvarfið á Látraströnd – Jörðin gleypti ítalskan ævintýramann

Hvarfið á Látraströnd – Jörðin gleypti ítalskan ævintýramann
Látra­strönd Mynd: Alvaro

Í maí­byrjun 2002 kom til lands­ins hinn 33 ára gamli Ítali, Davide Patie sem var lýst sem ljúfum en ein­rænum ævin­týra­manni. Ítalinn ferð­að­ist víða á land­inu milli þess sem hann fram­fleytti sér með vinnu á bóndabæ á Vest­ur­landi. Einn ágúst­dag hélt Patie af stað í enn eina ævin­týra­ferð­ina en þá fór hann frá Grenivík og var ferð­inni heitið að Látra­strönd. Lagði hann af stað þann 8. ágúst og ætl­aði að koma aftur í síð­asta lagi 13. ágúst en hann var ekki búinn fjar­skipta­tækjum né með mik­inn við­legu­búnað með sér. En hinn ungi Ítali kom ekki aftur þann 13. ágúst. Patie fannst aldrei aftur.

Morg­un­blaðið sagði svo frá leit­inni að Patie:

Víðtæk leit að ítölskum ferða­manni

LÖGREGLAN á Akureyri og hjálp­ar­sveitir hófu um hádegi í gær víð­tæka leit að ítölskum ferða­manni sem tal­inn er týndur á Látra­strönd, aust­an­vert við Eyja­fjörð. Stóð leit yfir fram í myrkur í gær­kvöldi. Skv. upp­lýs­ingum lög­regl­unnar á Akureyri er leit haldið áfram frá birt­ingu í dag. Verður leitin þá stór­efld og leitað nákvæmar á því svæði sem lík­legt er talið að mað­ur­inn hafi ætlað að fara um. Fundu ódag­setta bókun Maðurinn, sem heitir Davide Patie og er 33 ára, gaf sig fram við sund­laug­ar­starfs­mann á Grenivík fyrir viku og bað hann að gæta fyrir sig bún­aðar meðan hann færi í göngu á Látra­strönd. Var reiknað með að mað­ur­inn yrði kom­inn til baka innan tveggja daga. Bún­að­ur­inn var geymdur fyrir mann­inn en hans hefur ekki verið vitjað síðan. Björg­un­ar­sveit­ar­bif­reiðar voru sendar í gær á Flat­eyj­ar­dal og í Hval­vatns­fjörð til að grennsl­ast fyrir um mann­inn og björg­un­ar­bátar fóru með strönd­inni. Leit­ar­menn fundu bókun eftir mann­inn í neyð­ar­skýl­inu á Látrum en hún er ódag­sett. Björg­un­ar­sveit­ar­menn gengu yfir Uxaskarð í Keflavík í gær og sigldu auk þess með ströndum á svæð­inu. Leit­ar­svæðið er sein­farið og erfitt yfir­ferðar og er ein­göngu hægt að aka eftir slóða um mjög lít­inn hluta þess.

Daginn eftir að leit hófst af Paita, fund­ust vís­bend­ingar um ferðir hans en hann hafði skráð sig í gesta­bók á Látrum. DV sagði frá mál­inu:

60 björg­un­ar­sveit­ar­menn leita ferða­manns sem fór frá Grenivík fyrir átta dögum:

Ítalinn skráði nafn sitt í gesta­bók á Látrum

33 ára ítali, Davide Paita, sem leitað hefur verið að frá þvi í gær, skrif­aði nafn sitt í gesta­bók slysavama­skýlis við Látra­strönd, utan­vert í Eyja­firði, í lok síð­ustu viku. Eftir það hefur ekk­ert til hans sést og hafa um 60 björg­un­ar­sveit­ar­menn úr Eyja­firði leitað að honum frá því í gær. Átta dagar eru liðnir frá því að mað­ur­inn kom að máli við starfs­mann sund­laugar á Grenivík þar sem hann óskaði eftir að bak­poki hans, sem m.a. inni­hélt vega­bréf, og poki með öðrum far­angri yrði geymdur þar á meðan hann færi í göngu­ferð með tjald í Fjörðu­mar. ítal­inn hugð­ist ganga eftir Látra­strönd og vænt­an­lega irrn i Þor­geirs­fjörð og Hval­vatns­fjörð. Maðurinn hafði ekki mat­ar­forða til margra daga en lagði afstað á fimmtu­dag, fyrir átta dögum.

Þegar leit hófst í gær kom á dag­inn að Paita hafði ritað nafn sitt í gesta­bók slysavama­skýlis við Látra­strönd. Hann hafði skrifað nokkrar línur á eigin tungu­máli. Hvað það var lá ekki fyrir í morgun en þó var ljóst talið að mað­ur­inn ætl­aði að halda göngu sinni lengra áfram frá byggðum. Und­ir­skriftin var ekki með dag­setn­ingu. Hins vegar var dag­setn­ing síð­asta komu­manns á undan skráð þann 7. ágúst en sá sem kom næstur á eftir Italanum í sama skála rit­aði nafn sitt í gesta­bók­ina síð­ast­lið­inn sunnu­dag, þann 11. ágúst. Því er ljóst talið að ítal­inn hafi verið í skál­anum um eða undir síð­ustu helgi. Farið var að ótt­ast um ítal­ann á Grenivík þegar leið á vik­una en lög­reglu var til­kynnt um hann í gær – viku eftir að hann lagði afstað úr þorp­inu. Björg­un­ar­sveit­ar­menn vom reiðu­búnir að hefja leit strax um birt­ingu en þyrla var til taks á Reykja­vík­ur­flug­velli þegar DV fór í prentun. Flug­skil­yrði voru hins vegar óhag­stæð, lág­skýjað og strekk­ings­vindur fyrir norðan.

Ekkert bólaði á Ítalanum en þann 20. ágúst birti Morg­un­blaðið frétt þar sem honum var lýst sem ein­rænum en ljúfum ævin­týra­manni sem átti for­eldra og systur á Ítalíu sem voru í stöð­ugu sam­bandi við lög­regl­una og ítalska ræð­is­mann­inn á Íslandi.

Afdrif Davides Paita mönnum hulin ráð­gáta

Einrænn ævin­týra­maður

Davide Paita

ENN eru afdrif Ítalans Davides Paita mönnum hulin ráð­gáta, en hans hefur verið saknað í nærri hálfan mánuð og leitað svo dögum skiptir í Eyja­firði. Leit er í bið­stöðu og verður ekki fram haldið fyrr en nýjar vís­bend­ingar koma fram um afdrif hans. Málið sætir samt áfram rann­sókn lög­regl­unnar á Akureyri. Paita kom hingað til lands í maí­byrjun og hefur ferð­ast víða um landið milli þess sem hann hefur fram­fleytt sér með sveita­störfum á bóndabæ á Vest­ur­landi. Heima­fólk þar segir hann ljúfan mann og lög­reglan segir hann vanan ferða­mann sem hafi ferð­ast víða um lönd á eigin vegum. Paita er 33 ára gam­all og verður í fáum dráttum lýst sem ein­rænum ævin­týra­manni. Hann á for­eldra og systur á Ítalíu og hefur móðir hans verið í sam­bandi við ítalska ræð­is­mann­inn á Íslandi auk lög­reglu í báðum ríkjum. Ekki er vitað til þess að Paita hafi komið hingað til lands áður og þaðan af síður hversu lengi hann ætl­aði að dvelja hér. Leiðir hans hafa verið raktar mjög vel hér á landi en slóðin hverfur á Látra­strönd. Á ferða­lögum sínum um landið hefur hann ekki átt vanda til að hverfa svo dögum skiptir eins og nú er. Þrátt fyrir að Paita sé vanur ferða­maður var hann ekki búinn neinum fjar­skipta­tækjum þegar hann fór frá Grenivík út á Látra­strönd auk þess sem hann hafði lít­inn við­legu­búnað. Lög­reglan hefur ekki úti­lokað þann mögu­leika að Paita sé á lífi þótt hún telji óeðli­legt að hann sé ekki búinn að vitja far­ang­urs sem hann skildi eftir á Grenivík þegar hann lagði af stað í göngu­ferð um Látra­strönd hinn 8. ágúst. Ætlaði hann að koma til baka 11. ágúst eða í síð­asta lagi hinn 13. ágúst.

Þrátt fyrir gríð­ar­lega leit fjöldi fólks, fannst Davide Paita aldrei, það var líkt og jörðin hefði gleypt hann. Blessuð sé minn­ing hans.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 29. júní árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð