Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þegar tunglið kom til Íslands

Þegar tunglið kom til Íslands
Frá æfing­unum.

Fyrir mið­bik 7. ára­tug­ar­ins varð fram­andi nátt­úra okkar Íslend­inga vett­vangur heim­sóknar ferða­langa sem voru að búa sig undir ferða­lag sem átti sér ekki hlið­stæðu í mann­kyns­sög­unni. Þessir ferða­langar voru geim­farar frá Geim­ferða­stofnun Banda­ríkj­anna, NASA, en áfanga­stað­ur­inn var eng­inn annar en tunglið.

Þjálfa þurfti geim­far­ana í að takast á við ýmsar áskor­anir og því var Ísland valið sem eitt af þeim stöðum þar sem þeir myndu und­ir­gang­ast þjálfun þar sem hraun­breið­urnar og það lands­lag sem eld­fjöllin okkar hafa skapað þótti kjör aðstæður til að venja geim­far­ana við lands­lag líkt og það sem myndi mæta þeim á tungl­inu.

Sér­stak­lega þótti svæðið í kringum Öskju heppi­legt til æfinga þar sem eld­fjalla­gígar og hrjóstrugt lands­lagið reynd­ust í raun ekki óáþekkt því sem fyr­ir­finnst á tungl­inu.

Meðal geim­far­anna var meðal ann­ars mað­ur­inn sem yrði sá fyrsti til að stíga fæti á tunglið, sjálfur Neil Arm­strong.

Tvær ferðir af þessu tagi voru farnar til Íslands, önnur árið 1965 en sú síð­ari 1967, og voru margir geim­far­anna sam­mála um að Ísland væri lík­ast yfir­borði tungls­ins en Harrison Schmitt sem var um borð í Apollo 17 sagði ,,Það lagði mikið til reynslu Apollo geim­far­anna að kom­ast í snert­ingu við lands­lagið á Íslandi þegar þeir voru að búa sig undir að kanna tunglið og æfa sýna­töku. Allar liðs­sveit­irnar högn­uð­ust á að kynna sér stein­mynd­anir sem minna á það sem finnst á yfir­borði tungls­ins. Könn­un­ar­leið­angrar Apollo 11, 12, 15 og 17 sem sner­ust um eld­fjalla­svæði höfðu öðl­ast inn­sæi í nýskapað eld­fjalla­grjót og sam­setn­ingar þeirra á Íslandi.“

Geim­far­arnir tóku sér þó sitt­hvað annað fyrir hendur þegar þeir voru hér við æfingar en í Tímanum, þann 21. des­em­ber segir að einn leið­ang­urs­mann­anna, Bill Anders, hafi rennt fyrir sil­ungi í Laxá í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu fyrir landi Hellu­vaðs í Mývatns­sveit en þar mun hann hafa dregið þrjá sil­unga, þar af einn sem vó 7 pund.

Nú þegar mann­kynið rennir hýru auga til frek­ari tungl­lend­inga og mann­aðra ferða til Mars ættum við að geta hreykt okkur af því að landið okkar hafi á sinn þátt í að mann­aðar ferðir til ann­ara him­in­tungla hafi orðið að veru­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð