Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yfirlýsing vegna Lindarhvols og birtingu skýrslu setts ríkisendurskoðanda

Yfirlýsing vegna Lindarhvols og birtingu skýrslu setts ríkisendurskoðanda
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd/ Bára Huld Beck

Íslands­deild Transparency International sam­þykkti í gær­kvöldi ályktun vegna Lind­ar­hvols og birt­ingu skýrslu setts rík­is­end­ur­skoð­anda. Lesa ámá álykt­un­ina hér að neðan.

Stjórn Íslands­deildar Transparency International þakkar Sigurður Þórð­ar­syni, settum rík­is­end­ur­skoð­anda, fyrir heið­ar­leika og elju­semi í störfum sínum í Lind­ar­hvols­mál­inu í þágu gagn­sæis og hags­muna almenn­ings. Þá vill stjórn sömu­leiðis þakka Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata, fyrir birt­ingu skjals­ins sem stjórn­ar­liðar hafa árum saman falið fyrir almenn­ingi þrátt fyrir óhagg­andi rétt hans til upp­lýs­inga um hvernig farið er með hags­muni sam­fé­lags­ins.

Skýrsla setts rík­is­end­ur­skoð­anda, sem nú hefur verið birt, afhjúpar til­raunir stjórn­valda og stjórn­kerf­is­ins til að draga úr gagn­sæi við með­ferð opin­berra eigna þrátt fyrir end­ur­teknar yfir­lýs­ingar um hið gagntæða og skýrar starfs- og siða­reglur Lind­ar­hvols í 134 liðum sem kveða á um hlut­lægni, gagn­sæi, jafn­ræði og heið­ar­leg vinnu­brögð. Skýrsla Sigurðar bendir á áleitnar spurn­ingar sem ekki hafa feng­ist svör við sökum kerf­is­bund­innar yfir­hylm­ingar.

Við lestur skýrslu Sigurðar skal haft í huga að hún er saga yfir­hylm­ingar skrifuð af manni sem fjar­lægður var frá verk­inu eftir bar­áttu um aðgang að gögnum og upp­lýs­ingum svo standa megi vörð um almanna­hag. Skýrslan er lýs­ing á því hvernig gang­verk leyndar gegn­um­sýrir ferlið þrátt fyrir yfir­lýs­ingar og fyr­ir­heit um að allt skuli upp á borði, gagn­sætt og fag­legt. Hún inni­heldur ekki nið­ur­stöðukafla enda var settur rík­is­end­ur­skoð­andi fjar­lægður áður en verk­efn­inu lauk og vinnan falin ofan í skúffu.

Skýrsla setts rík­is­end­ur­skoð­anda vekur einnig upp spurn­ingar um það hvort skýrsla Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda um Lind­ar­hvol ehf., sem birt var árið 2020, sé nokkuð annað en hvít­þvott­ar­skýrsla sem end­an­lega hafi átt að kveða niður athuga­semdir og spurn­ingar Sigurðar Þórð­ar­sonar og blekkja almenn­ing.

Skýrslan, sem nú er fram komin og almenn­ingur getur nú lesið með eigin augum, afhjúpar einnig hversu blygð­un­ar­laust og langt for­seti Alþingis og stjórn­ar­liðar voru reiðu­búnir að ganga gegn lög­mætum rétti almenn­ings til þess að sjá og meta öll gögn máls­ins, þ.m.t. skýrsla Sigurðar Þórð­ar­sonar, setts rík­is­end­ur­skoð­anda. Í skýrsl­unni má lesa hvernig sam­skipti Rík­is­end­ur­skoð­unar við Lind­ar­hvol, Seðla­banka Íslands, Fjár­mála­ráðu­neytið og slita­stjórnir versnar eftir því sem vinnu Sigurðar mið­aði àfram. Á end­anum mætti honum þögnin ein..

Opinber skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar frá apríl 2020 hundsar fjölda athuga­semda setts rík­is­end­ur­skoð­anda og stang­ast veru­lega á við það sem kemur fram í vinnu Sigurðar. Þá getur stjórn ekki annað en vakið sér­staka athygli á þeim yfir­drifið jákvæða tón sem slegin er í hinni opinerru skýrslu og er í engu sam­ræmi við þau sam­skipti sem lýst er í skýrslu setts rík­is­end­ur­skoð­anda.

Í skýrslu setts rík­is­end­ur­skoð­anda má finna áhuga­verðar upp­lýs­ingar um hvernig stjórn Lind­ar­hvols ehf. gerir til­raunir til að stöðva eft­ir­litið með umkvört­unum um launa­kostnað og umfang eft­ir­lits­ins. Þá koma einnig fram upp­lýs­ingar í skýrsl­unni sem benda til þess að stjórn félags­ins hafi raunar aðeins stimplað ákvörðun fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um ráðn­ingu ”fram­kvæmda­stjóra” sem aug­ljós­lega gerir allt tal um ”arms­lengd” að hlægi­legum áróðri.

Verulega má draga í efa sjálf­stæði Lind­ar­hvols sem og burði og inn­viði til að sinna verk­efn­inu sínu. Skýrslan lýsir þannig félagi sem er lítið annað en skúffa en ekki félag burð­ugt til einka­væð­ingar á hund­ruð millj­arða af eignum almenn­ings.

Eig­in­lega er það með ólík­indum eftir kerf­is­bundið banka­hrun 2008 og alla við­leitni síðar til þess að auka gagn­sæi og fag­leg vinnu­brögð innan stjórn­kerf­is­ins að fram­kvæmda­valdið, (fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra) skuli bera ábyrgð á jafn geð­þótta­legum og ófag­legum vinnu­brögðum 15 árum eftir banka­hrunið og sýni­lega hafa verið við­höfð á hans vegum innan Lind­ar­hvols sem fara átti með eignir almenn­ings (rík­is­ins) fyrir opnum tjöldum eins og fram kemur í reglu­verki Lind­ar­hvols og upp­haf­legum fyr­ir­mælum Alþingis.

Settur rík­is­end­ur­skoð­andi hefur ritað bréf til Rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins og óskar rann­sóknar. Stjórn Transparency International á Íslandi lítur svo á að skýrsla setts rík­is­end­ur­skoð­anda kalli á rann­sókn­ar­vinnu á vegum Alþingis, sem eitt getur veitt slíkri rann­sókn víð­tækt umboð til að afla allra þeirra gagna sem slita­stjórnir bank­anna, Lind­ar­hvoll, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Seðla­bank­inn hafa ekki látið settum rík­is­end­ur­skoð­anda í té. Þetta hlýtur Alþingi að skoða sér­stak­lega þegar ljós verða afdrif máls­ins hjá rík­is­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð