Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tinna Þorvalds Önnudóttir í leikhússpjalli: „Áhorfendur eru svo mikill partur af verkinu“

Tinna Þorvalds Önnudóttir í leikhússpjalli: „Áhorfendur eru svo mikill partur af verkinu“
Tinna Þorvalds Önnu­dóttir Mynd: Aðsend

Tinna Þorvalds Önnu­dóttir, óperu­söng­kona og leik­ari fagnar nú 10 ára afmæli sviðs­lista­hóps­ins Spindrift en það er hópur sem sam­anstendur af konum frá nokkrum Norð­ur­löndum. Tinna sett­ist niður með Mannlífi og ræddi um Spindrift, Fringe Festival í Skotlandi, sviðs­listir og sitt hvað fleira.

Tinna Þorvalds Önnu­dóttir.

„Við erum ekk­ert smá spenntar,“ svar­aði Tinna aðspurð út í hátíð­ina Fringe Festival sem haldin verður í Skotlandi í ágúst en Spindrift hefur verið boðið að sýna leik­verk sitt THEM en alls sýna þær verkið 23 sinnum á hátíð­inni sem spannar mánuð. „Það er búinn að vera mik­ill und­ir­bún­ingur í gangi. Við erum bæði spenntar fyrir því að vinna mikið og sjá mikið af sýn­ingum, verða fyrir inn­blæstri. En það er verður alveg magnað að kynn­ast verk­inu á þennan hátt en verkið er alltaf mis­mun­andi eftir áhorf­enda­hópum. Áhorf­endur eru svo mik­ill partur af verk­inu og bara alltaf svo mik­ill partur af leik­verkum og lista­verkum.“ Aðspurð hvað hún ætti nákvæm­lega við svar­aði Tinna: „Það hefur svo mikil áhrif á verkið. Stundum er ein­hvern vegin hljóð­lát hlustun í gangi á meðan stundum er í gangi ein­hver létt­leiki og mik­ill hlátur í gangi, þá verður verkið hálf­gerð kómedía. Og það verður mjög áhuga­vert að kynn­ast verk­inu svona intens­íft. Maður kynn­ist því ein­hvern­veg­inn í gegnum áhorf­endur.“

– Nú á Spindrift-hóp­ur­inn 10 ára afmæli en þetta er alþjóð­legur hópur, ekki satt?

„Jú, eða fjöl­þjóð­legur. Það eru þrjár finnskar konur í hópnum, ein norsk og svo eru þrjár íslenskar.“

– En hvernig kom sam­starfið til?

„Fjórar þeirra byrj­uðu hóp­inn en þær voru að læra saman úti í London fyrir 10 árum. Ég kom svo inn 2017 og svo bætt­ust tvær aðrar við fyrir tveimur árum. En svo sá ég verk með þeim sem heitir Caroll: Ber­serkur þar sem maður gekk í gegnum Und­ar­land og ég upp­götv­aði eftir á að við áhorf­endur höfðum verið Lísa, Lísa í Undra­landi. Og mér fannst þetta svo geggjað verk. Þannig að þegar þær aug­lýstu eftir leikkonu á Íslandi árið 2017, þá bara sótti ég um og fékk vinn­una. En svo var ég form­lega hluti af hópnum 2018 eða 19, man það ekki.“

Spindrift

– En þegar þátt­töku Spindrift í Fringe-hátíð­inni lýkur í Skotlandi, er þá eitt­hvað fleira á döf­inni?

„Já, við erum með nýtt verk í vinnslu en vinnu­tit­ill­inn er We Could Be Heroes en við erum að skoða hetju­dáðir kvenna í gegnum sög­una, í gegnum þjóð­sögur og bara í gegnum hvers­dags­leik­ann líka.“

– Þannig að þið eruð í karla­þema í THEM og kvenna­þema í We Could Be Heroes?

„Já, það er ágætis athugun,“ svar­aði Tinna og hló. „En svo erum líka að fara í sam­starf við Útvarps­leik­húsið á RÚV með útvarps­verk á næsta ári.“

– En nú er þetta fjöl­þjóð­legur leik­hópur, eru verkin alltaf flutt á ensku?

„Stundum, THEM er á ensku og Heroes verður senni­lega á ensku, aðal­lega en við leikum okkur kannski eitt­hvað með tungu­málin,“ svar­aði Tinna og bætti við að hóp­ur­inn starfi á nokkrum starfs­stöðum, það sé „íslenska deildin“ og „finnska deildin“ og slíkt en að verkin taki mis­mik­inn tíma í und­ir­bún­ingi. Nefndi hún sem dæmi að THEM og We Could Be Heroes taki langan tíma í und­ir­bún­ingi og allur hóp­ur­inn sé meira og minna í því ferli en önnur verk taki minni tíma. „Íslenska deildin setti til dæmis upp óperu á síð­asta ári á Myrkum mús­ík­dögum, með ljóðum eftir Elísa­betu Jökuls og tón­listin var eftir Önnu Hall­dórs­dóttur. Og við vorum eð Júlíu Mogensen með okkur á selló. Þetta var bara ein rödd og eitt selló,“ sagði Tinna en hún er einmitt sú rödd en hún er menntuð óperu­söng­kona. „Útvarps­leik­ritið verður á íslensku en við munu svo lík­lega þýða það og þær svo flytja það í Finn­landi, sem sagt á finnsku. Finnska deildin hefur líka verið með sýn­ingu sem er í gangi núna síð­ustu mán­uði en það er sem sagt á finnsku en við munum svo örugg­lega þýða það yfir á íslensku og sýna hér.“

– Það er snið­ugt að vera með nokkrar deildir og þurfa ekki að treysta á að allur hóp­ur­inn kom­ist, þegar þið búið í mis­mun­andi löndum.

„Einmitt. Og þetta er svo­lítið svona flæði og sum verk­efni eru ein­hvern veg­inn stór og þung í vöfum, sem er bara í lagi, en þau eru hæg melt­andi en önnur minni og létt­ari.“

Tinna

– Nú er þekkt í borgum eins og Berlín, sem er mikil lista­manna­borg, svo­kall­aðar leik­hús­upp­lif­anir, þar sem sviðs­lista­hópar eru kannski ekki endi­lega að sýna leik­rit, með sögu­þræði, upp­hafi, miðju og enda, heldur meira upp­lif­anir. Er Spindrift eitt­hvað að snerta á þessu formi sviðs­listar eða er alltaf um að ræða hefð­bundin leik­verk?

„Já, til dæmis Caroll: Ber­serkur, sem ég tók ekki þátt í að gera en fór að sjá, þar var meira svona eins og þú talar um, leik­hús­upp­lifun því það var ekki ein saga, áhorf­enda­hópnum var skipt í hópa og maður fór á milli. Þar voru allir krókar og kimar Tjarn­ar­bíós not­aðir, meðal ann­ars undir stig­anum, uppi á bak við og víðar. Og verkið sem þær eru að setja upp í Finn­landi er ekki endi­lega með upp­haf og enda en draum­ur­inn hjá okkur varð­andi það verk er að bæta við fullt af fólki og hafa heilt hús, fullt af karakt­erum.“ Segir Tinna að nýlega hafi komið út bók í Finn­landi sem á ensku myndi heita Extra­or­din­ary Women of History en finnsku stall­systur hennar völdu nokkrar konur úr þeirri bók til að kynna í verk­inu.
„En svo er THEM meira hefð­bundið verk, ekki kannski einn sögu­þráður en upp­haf, miðja og endir.“

Talið barst aftur til Berlínar en þar hefur verið afar lif­andi og fersk leik­hús­menn­ing í gangi um langt skeið.

„Ég man eftir að hafa verið í Berlín fyrir mörgum árum og það var ekki svo dýrt að fara í leik­hús, það virt­ist vera ein­hvern veg­inn sjálf­sagður partur af líf­inu. Og þá var opið fyrir almenn­ing því þegar leik­húsmið­inn kostar fúlgur fjár, þá er þetta ekki fyrir alla. Þá er þetta ekki sam­tal við sam­fé­lagið, heldur bara sam­tal við einn afmark­aðan hóp. Samtal við sam­fé­lagið er miklu áhuga­verð­ara, þegar þrösk­uld­ur­inn til að búa til verk er ekki svo hár, og þrösk­uld­ur­inn til að fara að sjá verk er ekki svo hár. Þá verður þetta ekki eitt­hvað fínt sem sumt fólk gerir heldur bara eitt­hvað eins og að kveikja á Netflix. Það býr til áhuga­vert sam­fé­lag, skulum við segja. Og þá verður fólk líka opn­ara fyrir að sjá alls­konar. Ef fólk er að fara í leik­hús einu sinni til tvisvar á ári, þá fer það á eitt­hvað sem það veit að það mun njóta og tekur engar áhættur. Og þegar fólk er búið að læra á mið­il­inn er almenn­ingur meira til­bú­inn að sjá eitt­hvað öðru­vísi.“

Mannlíf óskar Tinnu og Spindrift til lukku með árin 10 og hlakkar til að fylgj­ast með fram­hald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ