Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Viðskiptavinir flýja Fabrikkuna – Sýkingin áfall fyrir Þórólf

Þórólfur Gíslason og Fabrikkan. Myndin er samsett.
Þórólfur Gíslason og Fabrikkan. Myndin er sam­sett.

Eins og Mannlíf hefur fjallað um undan­farna daga veiktist fjölmennur hópur fólks eftir að hafa borðað á Fabrikkunni í Kringlunni. Fyrst var grunur um matar­eitrun en í dag er vinnu­tilgáta Heilbrigðis­eftirlits Reykja­víkur að um Nóróveiru sé að ræða. Talið er að um 100 manns hafi smitast.

Í samtali við Mannlíf í gærmorgun sagði María Rún Hafliða­dóttir, framkvæmda­stjóri Fabrikkunnar, að staðurinn myndi opna í hádeginu „Staðurinn opnar. Allt sótt­hreinsað hátt og lágt og starfs­menn hraustir sem eru mættir til vinnu og eldhúsið, búið að gera allar ráðstafanir þar.“ 

Þegar blaða­maður Mannlífs kíkti inn á staðinn í gær kl. 16:30 voru ekki neinir gestir sjáanlegir, hvorki inn í sal né úti á palli. Fabrikkan hefur verið einn af vinsælustu veitinga­stöðum landsins frá stofnun hans árið 2010 en staðurinn var seldur í fyrra. Nýir eigendur eru Kaupfélag Skagfirðinga, undir forustu Þórólfs Gísla­sonar, og Árni Pétur Jónsson og hlýtur þessi sýking að vera mikið áfall fyrir hina nýju eigendur. Fyrir eigenda­skipti var hagnaður félagsins sem rak Fabrikkuna tæpar 40 milljónir króna og verður fróðlegt að sjá hversu mikil áhrif þessi sýking mun hafa á rekstur staðarins. 

Ekki náðist í Maríu Rún Hafliða­dóttur, framkvæmda­stjóra Fabrikkunnar, eða Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur við gerð fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra