Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hvíti, miðaldra forréttindapésinn

Hvíti, miðaldra forréttindapésinn

Í gærkveldi þegar ég kreisti fram síð­ustu ork­una til að klára síð­ustu tvö sperru­bilin af kúlupanil í kjall­ara­loftið heima hjá mér varð mér hugsað um for­rétt­indi. Búin vinna sleitu­laus alla helg­ina síðan ég kom heim úr vinn­unni á föstu­dag­inn.

Ég er búin að vera þarna svo oft áður, alveg frá því að ég var tví­tugur í fyrstu hol­unni sem ég keypti á Skeggja­göt­unni, í ein­hverju djöf­uls­ins verká­hlaupi. Síðan kom Grett­is­gatan, svo Bald­ers­gade og svo Gammel Jern­banevej og svo síð­ustu 9 ár er ég búin að end­ur­byggja Rauða­gerðið frá a-ö og er eig­in­lega að verða búin.

Það eru búnir að fara þús­undir af tímum í þetta verk­efni, þetta form sem skýlir mér og fjöl­skyld­unni minni gegn veðrum og vindum, rað­lægðum 8 mán­uði á ári.

Árið 2013 þegar ég kynnti Rauða­gerð­is­verk­efnið fyrir kon­unni minni útli­staði ég verk­hlutum fyrir henni eins og ég vissi nákvæm­lega hvað væri að fara að ger­ast. Það reynd­ist allt rangt nema eitt, ég áætl­aði að verkið tæki 10 ár og það reynd­ist rétt. En málið var að ég þurfti að að halda að ég vissi hvað ég væri að fara að gera, hvað ég væri að fara út í.

Það er alltaf þannig, ég þarf að halda að ég viti, þaðan sprettur trúin á eigin getu og mögu­leika. Svo kemur bara eitt­hvað allt annað í ljós og svo annað og annað og annað. En í trúnni felst sköp­un­ar­kraft­ur­inn og hún drífur mig áfram.

Í rúmt ár er ég búin að vera að leggja fyrir pen­inga fyrir þessu kjall­ara­verk­efni, smá­aura á hverjum mán­uði. Nú er pen­ing­ur­inn búin og ég hálfn­aður með verkið og það þýðir að ég þarf að ég þarf að halda áfram að leggja fyrir, mæta í vinn­una, afgreiða í búð­inni og smátt og smátt næ ég að klára þetta, ég veit það því ég er búin að sjá það nógu oft til að trúa því.

En málið er að ég er fast­eign­ar­eig­andi og margir tala um það sem for­rétt­indi og sumir meira segja tala um það eins og það sé eitt­hvað sem ég næstum á að skamm­ast mín fyrir, því ég hef það svo gott, horfa á mig og sjá for­rétt­inda­firrtan mið­aldra milli­stétt­ar­pésa með snjó­bræðslu. Þeir hinir sömu kvarta yfir að kom­ast ekki á fast­eigna­mark­að­inn og oft á tíðum telja sig fest­ast á leigu­mark­aði. Og don‘t get me wrong, fast­eignir eru sjúkt dýrar og leigu­mark­að­ur­inn hér á Íslandi rekin út frá frum­skóg­ar­lög­málum, I get it.

En hver eru for­rétt­indi mín spyr ég? Eru þau að ég eign­ast hús­næði úr vakúmi eins og ein­hver hafði dregið það upp úr galdra­hatti eða eru for­rétt­indi mín þau að ég hafði sam­fé­lags­legt leyfi til að segja Versl­un­ar­skól­anum að fokka sér eftir 3 mán­aða skóla­vist svo ég gæti lært tré­smíði í Tækni­skól­anum sem í þá daga hét Iðn­skól­inn? Eru for­rétt­indi mín þau að ég hef fengið að vinna við fagið mitt í nær 30 ár og öðl­ast djúp­stæða reynslu og tengsl innan heims sem svo margir ekki skilja? Er ég þeim for­rétt­indum gæddur að geta unnið á baki brotnu ár eftir ár með fullri vinnu í hvert skiptið og tekið hvert húsið eða íbúð­ina á fætur öðru í nefið, skrælt það og end­ur­byggt?

Ég held að það séu for­rétt­indi mín, að búa í sam­fé­lagi þar sem ég get einmitt unnið mig áfram og menntað mig áfram úr hvaða gildru sem er.

Þegar ég byrj­aði korter í tví­tugt átti ég 350 þús­und og það var árið 1996 og það var skrefið sem ég tók. Ég þekki fullt af mönnum og konum sem eru í sömu stöðu, dug­legt fólk sem byggir upp með mis­ljós mark­mið í huga. Sum þeirra eru mið­aldra á meðan önnur eru ung, já nákvæm­lega, meira að segja þekki ég ungt fólk í dag sem eru búin að nörla sér inn útborg­unum á mörgum árum svo kaupa þau sé sína fyrstu íbúð, ég sé að þetta er hægt.

Ég er for­rétt­indum gæddur, for­rétt­indi mín eru geta mín til að geta menntað mig, unnið og verið dug­legur. For­rétt­indi mín eru að hafa fæðst í sam­fé­lagi þar sem mér stendur til boða að vera kraft­mik­ill.

Fyrir for­rétt­indi mín er ég þakk­látur og ekk­ert að skamm­ast sín fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ