Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Elín Lára elskar föt „Ég er alveg fatasjúk“

Elín Lára elskar föt „Ég er alveg fatasjúk“
Elín Lára Bald­urs­dóttir býr á Hótel Sögu – myndin er sam­sett

Elín Lára Bald­urs­dóttir, meist­ara­nemi í Hagnýtri Menn­ing­ar­miðlun við HÍ, er neyt­andi vik­unnar. Elín Lára er 26 ára og mun hefja störf sem aðstoð­ar­for­stöðu­maður í félags­mið­stöð­inni 105 í Háteigs­skóla í haust. Elín býr ein í stúd­íó­í­búð á stúd­entgörð­unum á Hótel Sögu.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Það fer algjör­lega eftir vör­unni! Sumir hlutir fljúga beint í inn­kaupa­körf­unum án þess að ég hugsi um það eins og nauð­synja­vörur en aðrir hluti get ég látið ég malla í hausnum í marga mán­uði og eru það yfir­leitt stærri kaup eins og t.d. hjól eða sófi. Þó á ég það alveg til að taka hvat­vís­is­á­kvarð­anir inn á milli.     

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni eins og ég get að versla aðeins í Bónus og gríp þar mikið til vöru­merkja eins og Euros­hopper. Ég hef tekið eftir því að í búðum eins og Krónunni er að finna ódýrar vörur líkt og í Bónus en þar verð ég svo auð­veld­lega heilluð af nýjum vörum og verð mjög spennt að prufa, en það getur hækkað körf­una mikið. Einnig versla ég ekk­ert kjöt og mjög lítið að mjólk­ur­vörum og spara þannig heilan hell­ing, sama á við sæt­indi og snakk ég sleppi því næstum alveg. Það má alveg segja að ég eyði mestum mínum tíma í græn­met­is­deild­inni, en kaupi þar mikið magn af græn­meti. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Á mínum 7 árum á leigu­mark­aðnum hef ég held ég aldrei keypt mikið nýtt í íbúð­ina, enda bý ég við þau miklu for­rétt­indi að eiga for­eldra sem eiga mikið af fal­legum hús­gögnum til að lána. Einnig elska ég Góða Hirðinn og er heppin að stíll­inn minn passar vel þangað inn. Ég tók einnig þá ákvörðun sem ung­lingur að versla aldrei föt nema þau séu „second hand“, nema nær­buxur og sokka. Ég hef staðið ágæt­lega við þessa ákvörðun frá því ég var ung­lingur en neyslu­mynstur mitt hefur breyst mikið síðan þá. Til dæmis á ég það alveg til að kaupa vand­aðan fatnað á meiri pen­ing þar sem þær flíkur end­ast lengur. Mitt helsta ráð til ykkar er að setja ekki of miklar kröfur á ykkur, ég á það til að setja mér alltof háleit mark­mið og ber mig niður ef ég stenst ekki við mark­miðin. Þannig geri líf mitt mun erf­ið­ara fyrir mig og ég enda alltaf á að hætta við mark­miðið. Settu þér frekar raun­hæf mæl­an­leg mark­mið eins og t.d. að minnka neyslu á ákveðnum vöru, ekki hætta „cold tur­key“. 

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Þegar ég kaupi mat reyni ég að kaupa íslenskt, þó ég standi alls ekki alltaf við það. Ég við­ur­kenni að ég ætti að horfa meira á verð­mið­ann en ég hef ekki enn komið því í rútín­una, ég skelli bara öllu í körf­una og fæ „sjokk“ þegar kemur að því að borga. Þegar ég kaupi fatnað þá reyni ég að kaupa „second hand“ og helst góð merki, ég hef mik­inn áhuga á tísku og þekki yfir­leitt merkin vel. Ég reyni að forð­ast alræmd „fast fas­hion“ merki eins og H&M, Shein ofl. En þær flíkur end­ast vana­lega ekki lengi. Ef ég er að kaupa mér dýr­ari flíkur reyni ég oft­ast að skoða efnin en allt sem er 100% „cotton“ á það til að end­ast betur t.d. eitt­hvað sem ég þarf virki­lega að taka mig á er að þó flíkin er gæða­merki og á góðu verði þá þarf ég ekki að kaupa hana, ég á ótal margar flíkur sem eru eitt­hvað dýrt merki sem ég fékk góðum díl á en ég hef notað flík­ina kannski einu sinni. Einnig þarf ég að passa mig á magninn­kaupum, fata­kaupin mín eiga það að fara út fyrir öll vel­sæm­is­mörk og mætti halda að það búa 10 manns inná heim­il­inu mínu meðað við skó­fjöld­ann… Allt samt „second hand!“ En já það er eig­in­lega ekki afsökun lengur í 20fm íbúð. Varðandi gjafir þá reyni ég að gefa upp­lif­anir, óska­skrín eða gjafa­bréf á ákveðna staði t.d. Einnig voru for­eldrar mínir með það trix að vera alltaf með gjafa­hillu heima en þar fóru gjafir sem var ekki fundið not fyrir eða annað ónotað dót á heim­il­inu sem hægt var að gefa áfram í neyð. Ég fæ enn að kíkja í hill­una ef ég er alveg „last minute!“ 

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Föt, föt, föt. Ég er alveg fata­sjúk en fata­skáp­ur­inn býður ein­fald­lega ekki uppá plássið. Rútínan mín er vana­lega þannig að versla versla versla og bóka svo bara bás í Extra­lopp­unni og byrja uppá nýtt. Ég hef alltaf notað það sem rök að þetta er hvort sem er allt „second hand“ en í raun­veru­leik­anum er þetta ekk­ert sér­lega umhverf­is­vænn hugs­un­ar­háttur. Mig langar alveg virki­lega að til­einka mér það frekar að kaupa tíma­laus, færri og vand­aðri föt. 

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já það gerir það alveg klár­lega. Mér var meira umhugað um þessi mál­efni sem ung­lingur en nú hef lært að gefa mér aðeins meira rými til að anda og vera ófull­komin líka. 

Annað sem þú vilt taka fram?

Mig langar bara virki­lega að minna öll á að við erum að gera okkar besta og ekki gef­ast upp! Settu þér raun­hæf mark­mið sem virkar fyrir þig og þína fjöl­skyldu. Við hugsum betur um jörð­ina okkar þegar okkur líður vel <3 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð