Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Harmleikurinn á Selfossi – Daníel í varðhaldi í fjóra mánuði

Harmleikurinn á Selfossi – Daníel í varðhaldi í fjóra mánuði

Vil­hálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður er afar ósáttur við lengd gæslu­varð­halds yfir skjól­stæð­ingi sínum en hann hefur setið í varð­haldi í fjóra mán­uði, án ákæru.

Daníel Andri Ein­ars­son, fæddur 1997, hefur setið í gæslu­varð­haldi í fjóra mán­uði án þess að honum sé birt ákæra. Hann er grun­aður um að hafa banað Sofiu Sarmite Kolesnikova sem fannst látin í heima­húsi þann 27. apríl á Selfoss. Bróðir Daníels var einnig hand­tek­inn á vett­vangi en honum var sleppt 4. maí.

Samkvæmt RÚV telur lög­reglan sterkan grun um að Daníel hafi kyrkt Sofiu en hún var með för á hálsi. Bráða­birgða­krufn­ing leiddi hins vegar ekki skýrt í ljós að kyrk­ing hefði verið bana­mein hennar en Daníel neitar stað­fast­lega háls­förin séu af hans völdum. Hann seg­ist hafa komið að Sofiu lát­inni á bað­her­berg­is­gólfi og talið hana hafa lát­ist af völdum fíkni­efna.

Sjaldgæf lengd á gæslu­varð­haldi

Lögmaður Daníels, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son er afar ósáttur við þann langa tíma sem Daníel hefur þurft að dúsa í gæslu­varð­haldi. Engin ákæra hefur verið gefin út á hendur fang­anum. Mannlíf spurði lög­mann­inn hvort þetta langt gæslu­varð­hald, án ákæru, 18. vikur, sé eins­dæmi hér á landi en hann sagð­ist ekki geta full­yrt um það. „Ég treysti mér hins vegar til að segja það að ef svo er, þá eru þau til­vik örfá og þetta er alveg skýr og ótví­ræð meg­in­regla um það að gæslu­varð­hald eigi ekki að vara lengur en 12 vikur nema það sé gefin út ákæra eða það séu brýnir rann­sókn­ar­hags­munir,“ segir Vil­hjálmur.

mjög fátæk­legur rök­stuðn­ingur

Vil­hjálmur segir að lögum um með­ferð saka­mála hafi verið breytt árið 2008. „Af gefnu til­efni, af því að menn höfðu verið látnir dúsa í gæslu­varð­haldi í langan tíma á meðan lög­reglan var að dunda sér við rann­sókn eða rann­sókn var lokið og ákæru­valdið var að hika við að gefa út ákæru í mál­inu. Og þess vegna er þessi regla sett.“

Enginn rökstuðningur

Vil­hjálmur ítrekar að gæta þurfi að mann­rétt­indum fólks í gæslu­varð­haldi.

„Í þessu til­viki er mjög fátæk­legur rök­stuðn­ingur fyrir því að þetta skil­yrði fyrir brýna rann­sókn­ar­hags­muni sé upp­fyllt. Það er í raun og veru nán­ast vísað í það að af því að lög­reglan segir það, þá séu brýnir rann­sókn­ar­hags­munir. Og það er bara eng­inn rök­stuðn­ingur í úrskurðum Lands­réttar,“ segir Vil­hjálmur.

Lög­mað­ur­inn segir að hér sé um grafal­var­legt mál að ræða og úrskurð­irnir séu bara stað­festir með vísan til for­sendna Hér­aðs­dóms. „Sem er að mínu mati grafal­var­legt mál um svona mik­il­vægt grund­vall­ar­at­riði þar sem verið er að víkja frá skýrri meg­in­reglu,“ segir Vil­hjálmur.

Hann segir að vikið sé frá grund­vall­ar­reglu sem eigi sér stoð í stjórn­ar­skrá og í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og lög­gjaf­inn hafi mælt fyrir um með skýrum hætti.

„Það er hlut­verk dóm­stóla að dæma eftir lögum. Og Alþingi hefur sett þessa laga­reglu og það er algjör­lega ólíð­andi að það sé þá ekki skýrt út af Lands­rétti hvað það er sem fellur undir brýna rann­sókn­ar­hags­muni.“

Ófullnægjandi útskýringar á töfum

Að lokum bendir Vil­hjálmur á áhuga­verða stað­reynd.

„Í nýjasta úrskurði Hér­aðs­dóms, sem Lands­réttur stað­festir með vísan til for­sendna, eru nokkrar línur um það að lög­reglan hafi ekki gefið full­nægj­andi útskýr­ingar á því, eða gengið á eftir því með full­nægj­andi hætti, af hverju þessar tafir eru á rann­sókn­inni. Þegar maður las þennan rök­stuðn­ing, taldi ég að hann væri að fara að hafna kröf­unni um gæslu­varð­hald en síðan er þetta sam­þykkt þrátt fyrir það að Hér­aðs­dómur, sem Lands­réttur stað­festi með vísan til for­sendna, telji að lög­reglan hafi ekki gefið full­nægj­andi útskýr­ingar á töfum á rann­sókn­inni.“

Stjúp­faðir Daníels Andra vildi ekki tjá sig um málið er Mannlíf hafði sam­band við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð