Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

NÆRMYND: Albert Guðmundsson

NÆRMYND: Albert Guðmundsson
Albert Guð­munds­son

Hver er Albert Guð­munds­son?

Í gær var greint frá því að knatt­spyrnu­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son, leik­maður Genoa og íslenska lands­liðs­ins, hafi verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot. En hver er Albert Guð­munds­son?

Albert Guð­munds­son fædd­ist í Reykja­vík 15. júní árið 1997 og er því 26 ára gam­all. For­eldrar Alberts eru Guð­mundur Bene­dikts­son og Krist­björg Inga­dóttir og eru þau bæði fyrr. lands­liðs­menn í knatt­spyrnu. Þá er afi Alberts, hann Ingi Björg Alberts­son, einn besti sókn­ar­maður sem hefur spilað á Íslandi. Langaafi Alberts er svo Albert Guð­munds­son en hann spil­aði meðal ann­ars fyrir stór­liðin Arsenal og AC Milan og varð síðar fjár­mála­ráð­herra Íslands.

Snemma í yngri flokkum var ljóst að Albert væri hæfi­leik­a­ríkur knatt­spyrnu­maður en hann spil­aði með KR þar til hann gekk til liðs við hol­lenska liðið Heerenveen aðeins 16 ára gam­all. Árið 2015 gekk hann svo til liðs við hol­lenska stór­liðið PSV. Albert varð fljótt einn af mik­il­væg­ustu leik­mönnum vara­liðs PSV en náði aldrei að festa sig í sessi í aðal­liði PSV. Það var þá á þeim tíma sem Albert spil­aði sinn fyrsta A-lands­leik en hann hafði spilað tæp­lega 40 lands­leiki með yngri lands­liðum Íslands. Árið 2018 skipti Albert svo í hol­lenska liðið AZ Alkmaar þar sem hann blómstr­aði og var snöggur að kom­ast í byrj­un­ar­liðið. 

En þó að Alberti hafi gengið vel með félags­liði sínu þá átti hann sína gagn­rýnendur. Ronald de Boer, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður Hollands, gagn­rýndi hann harð­lega eftir að Albert mætti í við­tal eftir leik með dem­ants eyrna­lokka. „Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því en hann var búinn að setja á sig tvo dem­ants eyrna­lokka. Hann fór inn í bún­ings­klefa til að setja á sig eyrna­lokka án þess að fara í sturtu,“ sagði De Boer sem var einnig ósáttur að Albert, sem hann hafði þá búið í Hollandi i tæpan ára­tug, hafi talað ensku í við­tal­inu. „Hann talar ekki hol­lensku eftir sjö ár. Það segir sitt um hug­ar­farið í þessum strák. Ég hef það á til­finn­ing­unni að hann sé upp­tek­inn af öðrum hlutum. Ég fór sjálfur í við­tal á spænsku eftir fjóra mán­uði hjá Barcelona.“ 

Góður árangur Alberts með AZ og sýni­legir hæfi­leikar hans hafa þó ekki náð að skila sér í íslenska lands­liðið en flestir eru á því að Albert hafi aldrei náð að skína með því á sama hátt og hann hefur gert með félags­liðum. Albert komst svo heldur betur í frétt­irnar í fyrra þegar hann var ekki val­inn í lands­liðið af Arnari Þór Við­ars­syni, þáver­andi lands­liðs­þjálf­ara, og sagði þjálf­ar­inn á blaða­manna­fundi í sept­em­ber „Ég var mjög óánægður og svekktur með hug­ar­far Alberts.” Albert var aldrei val­inn aftur í lands­liðið meðan Arnar var lands­liðs­þjálf­ari en Albert hefur spilað 35 lands­leiki fyrir Ísland.

Í jan­úar 2022 var Albert svo keyptur til ítalska liðs­ins Genoa þar sem hann spilar ennþá í dag og hefur staðið sig það vel þar að hann vakti athygli stór­liðs­ins AC Milan, sem íhug­aði að kaupa hann í sumar. Genoa er sagt standa þétt við bakið á Alberti og rann­sókn máls­ins muni ekki hafa áhrif á spila­tíma hans með lið­inu. Reglur KSÍ eru hins vegar skýrar og mun Albert ekki vera val­inn í lands­liðið meðan rann­sókn máls­ins stendur yfir.

Albert er í sam­bandi með Guðlaugu Jóhanns­dóttur og eiga þau saman tvö börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð