Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Sara lætur hvatvísina leiða sig áfram: „Eins og að mála með garni“

Sara Matthíasdóttir er einn efnilegasti listamaður landsins
Sara Matth­í­as­dóttir er einn efni­leg­asti lista­maður lands­ins

Sara Matthíasdóttir er ekki þekkt nafn í lista­heiminum en hún er án nokkurs vafa ein sú mest spennandi í dag. Sara er á góðri leið með að skapa sér stöðu og stall í nútíma­list landsins með óhefðbundnum lista­verkum úr akríl, garni og ull. Í dag starfar Sara sem félagsfræði­kennari við Fjölbrauta­skólanum við Ármúla en hún ólst upp í Laugar­dalnum og býr þar ennþá með Pálmari, eigin­manni sínum, og drengjum þeirra tveimur. Mannlíf ræddi við Söru um lífið og listina.

„Ég byrjaði að vinna í listinni fyrir rúmlega tveimur árum, en þá var auðvitað Covid og ég var mikið heima hjá mér,“ sagði Sara um hvenær hún byrjaði að gera listaverk í þeim stíl sem hún er að gera þess stundina. „Ég er mikill brasari og elska að prufa mig áfram í alls konar handa­vinnum. Ég byrjaði að prjóna fyrir 5 árum þegar vinkona mín sagði mér að það væri „cool“ að prjóna. Hún fékk okkur vinkonurnar til að hittast og kenndi okkur að prjóna eftir uppskrift. Ég gjör­samlega fékk þetta á heilann og prjónaði þó nokkrar peysur. En gallinn við prjónið er að ég þurfti að vera með alla einbeitinguna í þessu og auk þess þá er ekki gott að gera mistök í pjóninu. Svo ég fór að skoða hvað annað væri í boði sem tengist prjóni og fann þar aðferð sem kallast á ensku Punch needle, þetta hefur verið kallað þrykkjanál og er það eflaust fín þýðing. Ég prufaði mig aðeins í því og fannst það æðislega skemmtilegt og í fram­haldinu fékk ég Tufting vélbyssu frá manninum mínum í afmælis­gjöf. En ég var búin að dreyma um að komast í þannig vél í einhvern tíma.“

Stílinn hennar Söru er nokkuð óhefðbundin en hvað fer í svona verk?

„Þetta er ákveðið ferli sem fer í að búa til verk, ég varð sem dæmi að smíða minn eigin
ramma sem ég vinn verkin mín á. Ég vinn með akríl, garn og ull. Þetta er smá eins og að
mála með garni.“

„Þetta er fyrsta sinn sem ég tel mig vera búa til eitthvað sem hægt er að kalla list,“ sagði Sara um hvort hún hafi verið mikil lista­maður í gegnum árin. „Ég er mikill brasari eins og ég nefndi áðan. Hef sem dæmi föndrað sjónvarps­skápinn heima, bólstrað gamla barstóla sem ég fékk í Góða Hirðinum, gert upp tekk kommóðu og margt fleira. En þetta byrjaði allt saman sem áhugamál og hef ég aldrei litið á mig sem listamann. Sú hugsun þurfti að breytast þegar hún Guðfinna, sem er í Endó samtökunum, hafði samband við mig og bauð mér að taka þátt í listaverka­uppboði til styrktar samtak­anna. Þá fengu mín verk að hanga með öllum hæfileika­ríku lista­fólkinu sem tók þátt. Það var rosalega stórt og er ég mjög þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í því.“

Listamenn eru oft feimnir við að tala um innblástur en Sara er mjög opin með það.

„Það var í byrjun þessa árs sem mig datt í hug að hanna forstofu­skápinn minn. Það var
ótrúlega skemmtilegt, ég er ekki viss hvaðan sú hugmynd kom, en ég fer oft af stað án þess að hugsa, vinn sem sagt mjög mikið með hvat­vísinni minni. Elska að sjá hvert hún leiðir mig. Annars er minn helsti innblástur bara mitt nánasta umhverfi. Fjöl­skyldan, vinnu­staðurinn og vinir.“

„Ég er með ótal hugmyndir en var þó lítið að hugsa út í sýningar, þá er kannski helsta ástæðan þekkingar­leysið. Lista­uppboð Endó vakti upp áhugann og er ég með ákveðna sýn hvernig ég myndi vilja hafa sýninguna mína, en það er á lang­tímaplaninu,“ sagði Sara um markmið og framtíðar­áætlanir hennar í lista­heiminum. „Ég er í fullri vinnu sem
kennari og ég dýrka það starf. Svo er ég með fjöl­skyldu og heimili svo það er helst kvöldin sem ég get unnið í minni list og þá finnst mér ég ná að nýta daginn mjög vel ef ég kemst í það. Annars er markmið mitt að setja upp vefsíðu sem gerist vonandi á þessu ári. Á meðan vefsíðan er ekki komin í loftið þá er hægt að sjá hvað ég er að gera á Instagram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Menning

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt