Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir erfitt að létta lund Assange – Markmiðið „leynt og ljóst að drepa Julian“

Segir erfitt að létta lund Assange – Markmiðið „leynt og ljóst að drepa Julian“

Kristinn Hrafns­son segir erfitt að stappa stál­inu í Julian Assange sem setið hefur í fjögur og hálft ár í harð­girtu fang­elsi í Bret­landi, fyrir það eitt að birta fréttir af stríðs­glæpum Banda­ríkja­hers.

Mannlíf ræddi við Kristinn Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks, um ástandið á Julian Assange, sam­starfs­fé­laga og vin Kristins en hann hefur mátt dúsa í fang­elsi í Bret­landi við slæma and­lega heilsu í á fimmta ár.

Kristinn byrj­aði á að útskýra stöð­una sem Julian er í.

„Julian hefur nú verið í nærri fjögur og hálft ár í mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands og beðið örlaga sinna. Að vera inni­lok­aður með þessa óvissu yfir höfði sér er gríð­ar­legt álag eins og fólk getur ímyndað sér. Ef hann er fram­seldur á hann yfir höfði sér alla hina röklausu hefnd­ar­reiði stór­veld­is­ins með ákæru­liði sem ekki er hægt að verj­ast með vísan til almanna­hags­muna þar sem ákveðið var að ákæra hann fyrir njósnir. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum full­yrða að hann eigi enga vernd vísa á grund­velli fyrsta við­auka stjórn­ar­skár­innar þar sem hann er útlend­ingur. Hann verður dreg­inn fyrir dóm í Virginíu stein­snar frá höfðu­stöðvum CIA og ann­ara stjórn­ar­stofn­ana. Rétt­ur­inn er kall­aður njósn­a­dóm­stóll­inn þvi þangað fer dóms­mála­ráðu­neytið með öll ákæru­mál á grund­velliu brota á njósn­a­lög­gjöf­inni. Þeir vita að kvið­dómur makkar rétt enda hafa dómar fallið gegn sak­born­ingum í öllum til­fellum. Sak­fell­ing­ar­stuð­ull­inn er 100%.“

Aðspurður um líðan Assange í fang­els­inu segir Kristinn það ekki auð­velt að létta lund hans.

„Það er ekki hlaupið að því að létta lund Julians þegar ég heim­sæki hann í fang­elsið. Það bætir ekki að fara sjálfur í gegnum nið­ur­lægj­andi ferli við það eitt að kom­ast í heim­sókn­ar­sal­inn. Eftir að fara í gegnum gegn­um­lýs­ingu, ítar­lega lík­ams­leit af tveimur, þrjár tvö­fall­dar klefa­hurðir, fingrafarask­ann á tveimur stöðum og hunda­sniff hefur dofnað yfir fas­inu sem maður ætl­aði fang­anum til upp­lyft­ingar. Reynir samt. Það er þungt að horfa upp á mann dofna upp í þessum kring­um­stæðum. Reyna að stappa í hann stál­inu. Tala um stuðn­ing­inn sem hann hefur utan múrs­ins en vit­andi líka að hann er full­með­vit­aður um alla þá sem grjót­halda kjafti og segja ekki orð til að mót­mæla þess­ari sví­v­irðu,“ segir Kristinn og bætir við: „Þessi póli­tíska hefnd­ar­að­gerð hefur leynt og ljóst það mark­mið að drepa Julian – helst að brjóta hann svo niður að hann taki eigið líf.“

Kristinn heldur áfram: „Hvað getur maður gert? Í þessum heim­sóknum tek ég utan um Julian þegar ég kem og aftur þegar ég fer – fast. Annars erum við í skikki til að sitja and­spænis hvor öðrum. Þegar ég fer í röð­ina til að vera hleypt út situr hann eftir. Ég lyfti kreftum hnefa í kveðju­skyni. Með hverjum skelli stál­hurð­anna á útleið­inni blossar reiðin upp að nýju. Fyrir utan dreg ég djúpt and­ann, horfi upp í him­in­inn sem Julian hefur bara séð í litlum skömmtum í meira en ára­tug. Öskra á hel­vítis múr­inn. Hugsa um hræsnar­ana sem tala sig hása um ill­mesku þess að fang­lesa blaða­menn í Rúss­landi og í Kína en neita að tjá sig um þá sví­v­irðu að verð­laun­aður blaða­maður situr í dýflisu í London sem póli­tískur fangi.“

Lokaorð Kristins eru sterk.

„Fólk á að hugsa um Julian Assange í hvert skipti sem velgju­leg inn­an­tóm orð­ræða heyr­ist um þessi háleitu vest­rænu gildi sem eiga að gera okkur svo miklu, miklu betri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð