Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Ólga meðal íbúa í Breiðholti – Stigi í 8. sæti í hverfakosningu: „Kostaði 36 milljónir“

Ólga meðal íbúa í Breiðholti – Stigi í 8. sæti í hverfakosningu: „Kostaði 36 milljónir“
Myndin er sam­sett

„Ég spurði um þennan Vúlgar [slangur: ógeðs­lega, ljóta] stiga í Breið­holti sem lenti í 8. sæti í kosn­ing­unni Hverfið mitt og hvort verk­efnin sem voru í sæti 1 til 7 hefðu verið fram­kvæmd,“ skrifar Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi fyrir Flokk fólks­ins í nýút­gef­inni færslu í hverfagrúpp­unni, Íbúa­sam­tökin Betra Breið­holt.

Stiginn sem Kolbrún vísar til er svo­kall­aður þrek/himna­stigi sem tengir saman Efra-Breið­holt og Neðra-Breið­holt og var settur upp í kjöl­far íbúa­kosn­ingar inni á Betri Reykja­vík árið 2021.

Stiginn sem tengir nú saman Efra-Breið­holt og Neðra. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Kolbrún bendir á að þau verk­efni sem hlutu flest atkvæði í Breið­holti það árið vor: „Jólaljós í tré milli Efra og Neðra Breið­holts 1451 atkvæði; í öðru sæti nýjar rusla­tunnur í hverfið sem fékk 1400 atkvæði. Í þriðja sæti bætt lýs­ing í hverfið og í 4 sæti jóla­ljós við Seltjörn.“

Stiginn hlaut 8. sæti í hverfakosningu

Eins og komið hefur fram var smíði og fram­kvæmd þrek­stig­ans hvergi nærri því að vera í þremur efstu sæt­unum.

„Í 8. sæti með rúm 800 atkvæði var að reisa þrek­stiga úr Neðra Breið­holti í Efra Breið­holt sem búið er að fram­kvæma. Stiginn kost­aði 36 millj­ónir. Fjár­heim­ild (m.kr.) 130,0“, segir Kolbrún í færsl­unni.

Svar borgarinnar

Var fyr­ir­spurn Kol­brúnar vísað til umsagnar Mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu og var svarið svohljóð­andi:„Samanber reglum um raf­rænar kosn­ingar í Hverfið mitt er taln­ingu atkvæða háttað sem hér segir:1. Öll atkvæðin í við­kom­andi hverfi eru talin og verk­efnum raðað eftir fjölda atkvæða.2. Því verk­efni sem flest atkvæði hefur hlotið í við­kom­andi hverfi er stillt upp og kostn­að­ur­inn við verk­efnið dreg­inn frá heild­ar­fjár­heim­ild­inni.3. Það verk­efni sem næst­flest atkvæði hefur hlotið er tekið og borið saman við það sem eftir er af fjár­heim­ild­inni. Ef verk­efnið rúm­ast innan fjár­heim­ild­ar­innar er það sett á lista val­inna verk­efna. Ef það rúm­ast ekki innan heim­ild­ar­innar er því sleppt og þriðja atkvæða­mesta verk­efnið skoðað.4. Svona gengur þetta koll af kolli, þar til fjár­heim­ildin hefur öll verið notuð eða hún orðin of lítil fyrir nokk­urt þeirra verk­efna sem eftir eru.Eftir kosn­ingar fer fram ferli hönn­unar og útboðs allra þeirra hug­mynda sem hljóta kosn­ingu áður en þau eru fram­kvæmd. Leitast er við að hafa sam­ráð við hug­mynda­smiði og íbúa­ráð um fram­kvæmd verk­efna, sér­stak­lega í þeim til­vikum þar sem breyta þarf hug­myndum eða stað­setn­ingum þeirra. Einnig er hug­mynda­höf­undum boðið á sam­ráðs­fund með verk­efna­stjórn Hverfið mitt þar sem þeir geta útskýrt hug­mynd sína nánar. Fram­kvæmdum við verk­efnin sem höfn­uðu í sætum 1 til 7 er flestum lokið eða nán­ast lokið, sam­an­ber verk­efna­stöðu á fram­kvæmda­sjá Reykja­vík­ur­borgar“

Slysagildra fyrir hunda

Þrep stig­ans eru útbúin götum til að hleypa í gegn vatni. Vel þekkt slysa­gildra fyrir hunda sem margir hafa fest klærnar í göt­unum. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Viðbrögð Breið­hylt­inga og ann­arra með­lima hóps­ins leyna sér ekki og eru flestir sam­mála um að smíð­inn og útlit stig­ans séu hræði­leg. Í við­tali við Mannlíf gefur íbúi og hunda­eig­andi í hverf­inu stig­anum fall­ein­kunn. „Hönnunin er hægi­leg og ég skil ekki hvernig fólk á nota hann. Bert stál­virkið hentar illa til þrekæf­inga án mik­ils hávaða. Göngu­leiðin sem var áður var greið­fær – en í dag er leiðin ónot­hæf,“ þá útskýrir hann hvernig hönnun þrepana er skefli­leg fyrir litlar loppur sem auð­veld­lega get fallið á milli í grind­ar­gólfi stig­ans auk þess að svo kölluð vatns­göt séu gildrur fyrir klær til að fest­ast í. Mýmörg dæmi eru um hunda sem hafa stórslasað sig eftir að festa klærnar í göt­unum og rifið þær af í heilu lagi.

„Mig situr hljóðan og velti fyrir mér hvort verkið hafi verið boðið út enda kostn­aður hans óhóf­legur,“ bætir íbú­inn við í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Innlent

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra