Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eignaðist dóttur með einn sjaldgæfasta taugasjúkdóm sem fyrirfinnst – CBD gjörbreytti öllu

Eignaðist dóttur með einn sjaldgæfasta taugasjúkdóm sem fyrirfinnst – CBD gjörbreytti öllu

Sigurður Hólmar Jóhann­es­son seg­ist hafa lært að lifa í núinu eftir að dóttir hans greind­ist með afar sjald­gæfan tauga­sjúk­dóm. Sigurður, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir öll við­horf í líf­inu gjör­breytt eftir að veg­ferð Sunnu dóttur þeirra hófst. Hún fær krampa- og löm­un­ar­köst flesta daga árs­ins:

„Við vissum auð­vitað ekk­ert hvað var að ger­ast þegar þetta byrj­aði fyrst. Hún var sex mán­aða þegar fyrstu köstin komu, en það var ekki fyrr en hún var orðin eins árs sem hún fær kast sem var miklu alvar­legra en áður. Hún missti and­ann og það þurfti að hringja á sjúkra­bíl og það var móment sem ég man alltaf eftir. Þegar hún er orðin blá í framan og ég að hlaupa niður stig­ann á móti sjúkra­bílnum,“ segir Sigurður, sem segir að fyrst um sinn hafi þetta verið greint sem floga­köst, en hann og kon­una hans hafi verið farið að gruna að þetta væri eitt­hvað allt annað en bara venju­leg floga­köst:

„Okkar tauga­lækni var eins og okkur farið að gruna að það væri ekki verið að greina hana rétt, en þessi sjúk­dómur er svo sjald­gæfur að það er ekki skrýtið að það hafi tekið tíma að kom­ast til botns í þessu. Á þessum tíma höfðu ekki nema 200 börn í heim­inum öllum greinst með þennan sjúk­dóm, sem heitir AHC og er í raun stökk­breyt­ing í geni. Það eru til alls konar tauga­sjúk­dómar með alls kyns ein­kenni, en þessi sjúk­dómur hefur í ein­kenni þeirra allra. Það er hreyfiskerð­ing, þroska­skerð­ing, ein­hverfa, þrá­hyggja, fín­hreyf­ingar og allt sem teng­ist öðrum tauga­sjúk­dómum. Það er margt sem getur ýtt undir köstin og allt áreiti er slæmt. Til­finn­inga­við­brögð virð­ast geta kallað fram köstin líka, eins og hlátur. Hún er alveg rosa­lega glað­lynd stelpa, en má ekki hlæja. Allt til­finn­inga­legt hefur áhrif líka, bæði reiði og sorg. Sól­ar­ljós og birta geta haft áhrif og hiti og kuldi.“

Vegferð Sigurðar, kon­unnar hans og Sunnu hefur tekið á og það hefur tekið langan tíma að finna út hvernig er best að haga dag­legu lífi. Eitt af því sem hefur hjálpað gríð­ar­lega í veg­ferð Sunnu er CBD olía, sem sló algjör­lega á flöga­köstin, sem voru algeng ofan á önnur ein­kenni sjúk­dóms­ins:

„Þegar hún var sjö ára fór hún að fá floga­köst sem hún hafði ekki fengið áður. Ég mundi eftir að hafa heyrt um CBD og að það gæti hjálpað, en var samt ragur við að prófa af því að fyrir mér var kanna­bis bara eit­ur­lyf. Að ef maður byrj­aði á því væri maður bara kom­inn í kókaín dag­inn eftir og krakk eftir viku. En eftir að hafa ferð­ast til Banda­ríkj­anna og kynnst fyr­ir­tæki sem var að fram­leiða olí­una tók ég með mér flöskur heim og við prófum að gefa Sunnu. Það varð strax mikil breyt­ing og á aðeins nokkrum vikum fækk­aði köst­unum mikið og á end­anum hurfu þau alveg,“ segir Sigurður, sem fór í kjöl­farið á fullt í að reyna að fá CBD lög­leitt á Íslandi. Í dag rekur hann verslun sem selur meðal ann­ars mikið af CBD vörum og hann segir að við­horf fólks í sam­fé­lag­inu hafi breyst gíf­ur­lega á und­an­förnum árum.

„Nú er CBD olía notuð af fólki á öllum aldri, sem er jafn­mis­jafnt og það er margt. Sumir nota CBD til að hjálpa til við svefn, aðrir til að slá á skjálfta vegna Park­in­son´s eða verki. En ég hef ekki tölu á fólk­inu sem hefur komið til mín og fundið mik­inn bata af alls kyns kvillum og náð að stór­bæta lífs­gæði sín.“

Sigurður starf­aði sem flug­um­ferð­ar­stjóri í 27 ár og elskaði þá vinnu. En örlögin tóku í taumana og álagið við að ann­ast lang­veikt barn tók mik­inn toll. Hann klessti á vegg og neydd­ist til að skilja við fer­il­inn sem flug­um­ferð­ar­stjóri og leita á önnur mið:

„Tauga­kerfið mitt var á end­anum bara algjör­lega í rúst. Ég var stans­laust með svima og sjón­trufl­anir. Ég hafði lík­lega verið í „fight or flight“ stöðu nán­ast stans­laust í fleiri fleiri ár og á end­anum gaf kerfið sig bara. Við höfðum verið með hana mikið inn og út af spít­ala og þurfti að leggja mig mörgum sinnum á dag. Ég hef alltaf verið rosa­lega aktívur og vil hafa það þannig og þetta var mjög erfitt tíma­bil. Að geta ekki gert það sem maður er vanur. En þá þarf maður að finna leiðir og ég gerði allt til þess að ná mér til baka og það tókst á end­anum. Eitt af því sem hjálp­aði mér mikið var CBD olían og þess vegna ákvað ég að fara að flytja hana inn og selja hana.“

Sigurður segir að hann og konan hans hafi fengið algjör­lega nýja inn­sýn inn í æðru­leysi og að lifa einn dag í einu í kringum veg­ferð dóttur þeirra:

„Við lifum í alvöru bara einn dag í einu. Þetta er eitt­hvað sem margir tala um, en það er annað að lífið sé í alvör­unni þannig. Við gerum auð­vitað okkar áætl­anir, en þær klikka oft­ast. En það góða við að lifa svona er að við bíðum aldrei með hlut­ina. Ef við höfum tæki­færi til að gera eitt­hvað í dag, þá gerum við það núna, af því að við vitum ekki hvernig morg­un­dag­ur­inn verður.

Staðan er bara sú að maður þarf að setja sjálfan sig algjör­lega í annað sæti og læra að lifa í mjög miklu æðru­leysi. Ég og konan mín ákváðum það strax að vinna með stöð­unni eins og hún væri, fara fulla ferð í þetta og við erum frá­bært teymi og höfum á ákveð­inn hátt verið leið­andi í vinnu í heim­inum hvað varðar þennan sjúk­dóm. Við höfum til­einkað okkur að sjá það fal­lega í líf­inu og höfum lært að meta litlu hlut­ina og finna þakk­lætið.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Sigurð og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð