Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Félagið Ísland – Palestína sendir frá sér yfirlýsingu:„Fordæmum árásir og morð á almennum borgurum“

Félagið Ísland – Palestína sendir frá sér yfirlýsingu:„Fordæmum árásir og morð á almennum borgurum“

Félagið Ísland – Palest­ína sendi rétt í þessu frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu vegna stríðs­ins á milli Hamas og Ísraels.

Yfir­lýs­ing­una má lesa hér:

Yfir­lýs­ing frá Félaginu Ísland – Palest­ína

– Við for­dæmum árásir og morð á almennum borg­urum – und­an­tekn­ing­ar­laust!

– Við for­dæmum morð­árásir Ísra­els­hers á inni­lok­aða íbúa Gaza!

— Við for­dæmum morð og ofbeldi Ísra­els­hers gegn Palest­ínu­mönnum á Vest­ur­bakk­anum!

– Við for­dæmum svik alþjóða­sam­fé­lags­ins, sér­stak­lega for­ystu Vest­ur­landa, við Palest­ínu í ára­tugi!

Yfir­stand­andi hern­aður Ísra­els­hers, úr lofti, láði og legi, á inni­lok­aða íbúa Gazastrandarinnar er afleið­ing þess að stjórn­völd í Ísrael hafa í ára­tugi getað stundað þjóð­ern­is­hreins­anir og byggt upp ríki aðskiln­að­ar­stefnu og ofbeldis.

Í sjö­tíu og fimm ár hefur Ísrael brotið alþjóða­lög, lög gegn stríðs­glæpum, lög gegn land­ráni, lög gegn með­ferð á hernumdu fólki – án afskipta alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Allt tal um frið­ar­við­ræður og tveggja ríkja lausn er inni­halds­laust þegar Ísrael hefur frelsi til þess að taka allt það land sem þeim sýn­ist, byggja ólög­legan aðskiln­að­ar­múr og stela vatni Palest­ínu – sem er grund­völlur alls lífs.

Aðeins tvö Vest­ur­landa hafa við­ur­kennt ríki Palest­ínu, Ísland og Svíþjóð. Það er því tómt tal af hálfu Banda­ríkj­anna, Bret­lands, ESB ríkja ofl. að tala um tveggja ríkja lausn og við­ur­kenna ein­göngu til­vist Ísraels!

Allt tal um alþjóða­lög er inni­halds­laust þegar annar aðil­inn hefur frelsi til að brjóta þau að vild án við­ur­laga. Þórdís Kolbrún utan­rík­is­mála­ráð­herra hefur rætt um mik­il­vægi alþjóða­laga fyrir smá­ríki eins og Ísland. Er ekki aug­ljóst að beit­ing alþjóða­laga, sem er ætlað að vernda þjóðir og minni­hluta­hópa, eru grund­vall­ar­at­riði í bar­áttu Palest­ínu­manna. Allt tal um mik­il­vægi alþjóða­laga og alþjóð­legra sátt­mála, án þess að leit­ast við að beita þeim til að vernda Palest­ínu­menn, er hræsni.

Hernám Ísraels á landi Palest­ínu er búið að standa rúma hálfa öld. Ísrael hefur sölsað undir sig allt land nema litla skika hér og þar. Palest­ínu­menn geta ekki ferð­ast um í eigin landi nema að geð­þótta her­námsliðs­ins. Her­námsliðið hefur fang­elsað þús­undir Palest­ínu­manna, jafnt börn sem full­orðna. Mörg hund­ruð fanga er haldið án ákæru og á annað hund­rað börn sitja núna í fang­elsi fyrir að sýna her­námslið­inu andúð sína. Palest­ínu­menn eru fjórtán millj­ónir, helm­ingur þeirra eru flótta­menn víða um heim, m.a. hér á landi. Sjö millj­ónir lifa undir her­námi, her­kví og órétt­látum lögum Ísra­els­ríkis. Er ekki mál að linni?

Nú stendur yfir stór­felld árás á fólkið á Gaza, spít­alar eru yfir­fullir og Ísra­els­her hefur lokað fyrir vatn, raf­magn og stöðvað flutn­ing á mat, elds­neyti og lyfjum til inni­lok­aðra Gazabúa. Þessi aðgerð er stríðs­glæpur. Stjórn­völd Vest­ur­landa hafa nú náð nýjum hæðum í hræsni sinni og ætla að stöðva allan stuðn­ing við Palest­ínu – til þess að styðja árás Ísraels. Einhliða for­dæm­ing vest­rænna leið­toga á Hamas er í raun skot­leyfi á Palest­ínu­menn.

Við krefj­umst þess að árásum Ísra­els­hers á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum verði tafa­laust hætt!

Lifi frjáls Palest­ína!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð