Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir slátrun framundan á Gaza: „Poppið og njótið þjóðarmorðsins“

Segir slátrun framundan á Gaza: „Poppið og njótið þjóðarmorðsins“
Gaza er í rúst eftir spreng­ingar Ísraela Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kristinn Hrafns­son segir stjórn­mála­menn og blaða­menn básúna óstað­festum fregnum úr ranni Ísra­els­hers, um hroða­verk Hamas-liða. Segir slátrun framundan á Gaza.

Rit­stjóri Wikileaks, Kristinn Hrafns­son skrifar kjarn­yrt­ann pistil á Facebook í dag þar sem hann talar um áróð­ur­staktík Ísra­els­manna. „Hryll­ing­ur­inn í útrás Hamas frá Gaza er ekki alveg talin duga til þjóð­ar­morðs á Palesínu­mönnum,“ segir hann og segir að vegna þess þurfi að „auka við hryll­ings­sög­una“ og nefnir dæmi um óstað­festar fregnir sem blaða­menn dreifi „af áfergju“. „Sögurnar af því að Hamas hafi skorið höfuð af börnum hafa nú farið á flug og eru heim­ild­ar­menn­irnir úr ísra­elska hernum. Blaða­menn hafa ekki séð nein slík ummerki, þó að þeir hafi fengið aðgang að vett­vangi voða­verk­anna og við­ur­kenna því (þeir heið­ar­leg­ustu) að þetta sé óstað­fest. Það skiptir engu máli – þessu er kastað í for­síðu­upp­slætti með stríðs­fyr­ir­sögnum,“ skrif­aði Kristinn og hélt áfram: „Stjórn­mála­menn Vest­ur­landa eta þetta upp og básúna, allt til Hvíta húss­ins. Biden Banda­ríkja­for­seti vís­aði til hrylli­legra sagna af slátrun barna sem minntu á óhæfu­verk ISIS.“

Og Kristinn segir að sam­an­burð­ur­inn við ISIS sé ekki nægur og því hafi þurft að draga inn eitt­hvað enn verra og nefnir orð Banda­ríkja­for­seta um að um sé að ræða versta mann­skaða Gyðinga á einum degi síðan í Hel­för­inni, sem dæmi. Þá hafi það ekki heldur verið nóg, heldur hafi hátt­settur aðili í Ísra­els­hers sagt að nú væru Ísraelar að upp­lifa bæði þeirra 11. sept­em­ber og þeirra Pearl Harbour. Þá segir Kristinn að alls hafi 1200 Ísraelar verið drepnir síðan á laug­ar­dag­inn og 1500 Palest­ínu­menn. „Það mun ekki duga. Sé miðað við tölu lát­inna á lið­inum árum verður að drepa a.m.k. 20 Palest­ínu­menn fyrir hvern og einn Ísraela.“

Næstu orð rit­stjór­ans eru hroll­vekj­andi: „Hundruð þús­unda her­manna hafa raðað sér upp í kringum gadda­vírs­girð­ing­una sem umlykur Gaza og bíða eftir grænu ljósi til að gera alls­herj­ar­árás á svæðið þar sem yfir 2,2 millj­ónir manna búa – helm­ing­ur­inn börn. Slátrun er í und­ir­bún­ingi, bara spurn­ing hvenær, því fyrst á að svelta fólkið. Þar er nú vatns­laust og matur á þrotum.“ Segir hann síð­ustu „stór­slátrun“ á fólki á Gaza hafi verið árið 2014 þegar 2250 Palest­ínu­menn, þar af 2/3 óbreyttir borg­arar, voru drepnir á móti 71 Ísraela. „Munið að í hugum stjórn­enda Vest­ur­landa skiptir líf Palest­ínu­manns a.m.k. tutt­ugu sinnum minna máli en líf Ísra­els­manns.“

Kristinn segir slátrun framundan: „Við getum því farið að und­ir­búa okkur undir hroða­lega slátrun sem verður miklu mann­skæð­ari en 2014. Ofaná sveltið verður áfram beitt loft­árásum og hús jöfnuð við jörðu. Þetta verða það sem einn rit­stjóri kall­aði „hlið­rænar aðferðir“ sem honum þótti greini­lega hugn­an­legri leið til mann­drápa en víg með hand­vopnum, byssum eða hnífum. Það er ríkj­andi við­horf.“ Og áfram hélt hann: „Við höfum van­ist því að það sé skárra að senda eina stóra sprengju úr öruggri fjar­lægð á fjöl­skyldu­fagnað eða brúð­kaup sem tætir í sundur lík­ama tuga eða hund­ruð manna, en að senda her­lið á stað­inn til að valda sama mann­tjóni „óhlið­rænt“. Það er álitið dýrs­leg grimmd og ólýs­an­legur skepnu­skapur sem við bregð­umst við á inn­sog­inu. Fjar­spreng­ingar eru bara tækni­leg jöfn­un­ar­að­gerð. Við erum hárs­breidd frá því að kalla það frið­ar­spreng­ingar. Þegar kemur að Palest­ínu­mönnum líkja Ísraelar fjölda­slátr­unum við grisjun og tala um að „slá blett­inn“.“Að lokum segir Kristinn að þegar við höfum öll fylgst með „slátr­un­inni á Gaza“ og tala lát­inna verður kunn­gjörð, muni það ekki „kalla á nokkra samúð hjá þeim sem klifa á því að Ísraelar hafi rétt á að verja sig … og hefna fyirir ISIS, 11. sept­em­ber, Pearl Harbour og Hel­för­ina.“ Bætti svo við: „Því verður fagnað með því að draga ísra­elska fán­ann við hún á opin­berum bygg­ingum. Poppið og njótið þjóð­ar­morðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð