Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eldsvoðinn í Eyjaberg – Lést er hann reyndi að slökkva eldinn

Eldsvoðinn í Eyjaberg – Lést er hann reyndi að slökkva eldinn
Mikinn reyk lagði frá Eyjaberg Mynd: Trausti Hafsteinsson

Í nóv­em­ber árið 1978 braust út eldur í fisk­vinnslu­hús­inu Eyjaberg í Vest­manna­eyjum. Eldurinn kvikn­aði á efstu hæð húss­ins en honum varð fyrst vart á neðstu hæð húss­ins þegar starfs­fólk tók eftir reyk koma niður stig­ann. Slökkvi­liðið var fljótt á stað­inn en fljót­lega kom í ljós að einn starfs­mann vant­aði, Vignir Sig­urðs­son vélsstjóra en hann hafði verið við vinnu á verk­stæði á efstu hæð­inni. Fannst hann ekki fyrr en 45 mín­útum eftir að slökkvi­liðið mætti á vett­vang en var hann þá lát­inn. Hafði hann ætlað sér að slökkva eld­inn
en skyndi­leg reyk­myndun lokað útgöngu­leiðum fyrir hann. Vignir var 44 ára er hann lést en hann lét eftir sig konu og þrjú börn.

Blessuð sé minnig Vignis

Morg­un­blaðið fjall­aði um hið hræði­lega slys þann 7. nóv­em­ber 1978:

Beið bana í elds­voða í EYJUM

Fisk­vinnslu­stöðin Eyjaberg stöðvast vegna reyk- og bruna­skemmda

Það hörmu­lega slys varð í Vest­manna­eyjum s.l. sunnu­dag að 44 ára gam­all maður, Vignir Sig­urðs­son vél­stjóri, beið bana í elds­voða sem upp kom í fisk­vinnslu­hús­inu Eyjaberg. Elds­upp­tök eru ókunn. Allt bendir til þess að Vignir hafi án þess að láta vita af sér, ætlað að reyna að slökkva eld­inn sem var laus á geymslu­lofti í hús­inu, en skyndi­leg reyk­myndun lokað fyrir honum leiðir út.

Þegar elds­ins varð vart var starfs­fólk húss­ins við vinnu á mið­hæð og neðstu hæð húss­ins, en Vignir var við vinnu á verk­stæði á efstu hæð. Eldsins varð fyrst vart á neðri hæð­unum þegar reykur kom niður stig­ana og var eld­ur­inn þá laus á geymslu­lofti fyrir ofan verk­stæðið og mik­ill reykur. Slökkvi­liðið kom á vett­vang laust fyrir kl. 5 og fannst Vignir ekki fyrr en um 45 mín. síðar uppi á geymslu­loft­inu en þangað hafði hann farið með slökkvi­tæki. Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður úr Reykja­vík var feng­inn til þess að kanna elds­upp­tök. Vignir Sig­urðs­son lætur eftir sig eig­in­konu og þrjú börn. Að und­an­förnu hefur verið unnið við síld­ar­fryst­ingu og flökun í Eyja­bergi, en fjár­hags­legt tjón af völdum brun­ans er mjög mikið og er ekki hægt að vinna í hús­inu eins og það er. Taldi Sigurður Þórð­ar­son for­stjóri Eyja­bergs að það myndi taka a.m.k. tvo mán­uði að gera húsið klárt fyrir vinnslu á ný. Húsið er stór­skemmt af sóti og .einnig þarf að fram­kvæma mikla smíða­vinnu, gera við þakið, smíða nýja kaffi­stofu og hreinsa og mála allt húsið í hólf og gólf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð