Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þrír miðaldra karlar leita svara við lífsins leyndardómum – Swing, karlmennska og þriðja vaktin

Þrír miðaldra karlar leita svara við lífsins leyndardómum – Swing, karlmennska og þriðja vaktin

Í nýjasta þætti Alkasts­ins sett­ust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdá­endum Þvotta­húss­ins kunn­ugur sem með­stjórn­andi þeirra rúm­lega hund­rað þátta sem hlað­varpið Þvotta­húsið gaf út á tveggja ára tíma­bili. Davíð er sannur þús­und­þjala­smiður, með ein­dæmum atorku­samur enda með marga bolta á lofti.

Þátt­ur­inn er ekki beint við­tals­þáttur heldur meira spjall þriggja mið­aldra manna sem allir eiga það sam­eig­in­legt að sinna skyldum sem feður og eig­in­menn í hröðu sam­fé­lagi en virð­ast eiga það sam­eig­in­legt að vera þrátt fyrir ald­ur­inn á margan hátt ennþá bara litlir strákar að velta steinum í leit að svörum. Hér fyrir neðan verður stiklað á stóru um umræðu­efni við­tals­ins.

Í byrjun við­tals fóru strák­arnir yfir gagn­semi kannabínóða og nefndu í því sam­hengi þessa helstu eins og CBD, THC, CBG og CBN. Útskýrði Gunnar ECS kerfið sem kall­ast á ensku Endocannabinoid System, skamm­staf­ast sem ECS. Á íslensku myndi það þýð­ast sem Endokannabínóða­kerfið og því skamm­staf­ast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkja­kerfi frá fru­munum sem sam­anstendur af endókannabínóðum, ens­ímum og kannabínóða-mót­tökum, sem hafa stjórn á ýmissi starf­semi í manns­lík­am­anum. Ber að nefna í þessu sam­hengi hjálp við svefn, lund, mat­ar­lyst og melt­ingu, minni, bólgu­myndun, húð­vanda­mál, end­ur­heimt og frjó­semi. Þessar flóknu teng­ingar finn­ast í heil­anum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líf­færum okkar.

Kerfið var upp­götvað af tékk­neskum vís­inda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa upp­götvun komust vís­inda­menn að því að lík­am­inn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­vís­legum til­gangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti.

Gunnar tal­aði um hvernig kannabínóðar og smá­skömmtun á sveppum höfðu í raun breytt lífi hans til hins betra. Kannabínóð­arnir vinna á bólgum í lík­am­anum og auka svefn­gæði á meðan svepp­ur­inn víkkar hugan og gerir að hans sögn hug­inn víðan.

„Vesen og vanda­mál verða að spenn­andi verk­efnum þar sem lausnin dúkkar ávallt upp,“ sagði Gunnar.

Málefnin sem rædd voru í þætt­inum voru fjöl­breytt. Swingmenningin var rædd fram og til baka og allir voru þeir sam­mála um að swingið gæti verið spenn­andi og með mikla mögu­leika.

Gunnar spurði Davíð út í það hvernig hann myndi skil­greina heil­brigða karl­mennsku og ítrek­aði nauð­syn þess á tímum þar sem orðið eitt og sér virð­ist fela í sér nei­kvæða orku. Allir voru þeir sam­mála um að karl­mennskan geti í raun aldrei verið eitruð því sönn karl­mennska er hrein, heið­ar­leg og full af sam­kennd. Hins­vegar þegar vísað er í ástand manns­ins sem eitruð karl­mennska vildi Gunnar meina að vissa mis­sögn og rang­túlkun væri um að ræða og því hent­ugra orða­val væri þá frekar skortur af karl­mennsku í stað eitr­aðar.

Þriðja vaktin var rædd í þaula og voru þeir sam­mála um að hún væri ekki við lýði heima hjá þeim enda allir þrír miklir atorku­menn og kamp­dug­legir á flestum sviðum heim­ilis og fjöl­skyldu­lífs­ins. Gunnar vildi meina að orða­gjálfrið sem oft á tíðum kæmi úr akademískri kynja­fræði væri torskilið fyrir hinn hefð­bundna karl­mann og því skap­að­ist oft á tíðum mót­þrói sem getur litið út fyrir að vera karl­remb­ingur, en er í raun bara skiln­ings­leysi sem stillir average joe upp, ann­að­hvort í vörn eða sókn.

Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvotta­húss­ins og mik­il­vægi þess að vera í góðum sam­skiptum við fjöl­miðla ef óþekktir ein­stak­lingar eins og þeir vildu koma hlað­varpi sínu á fram­færi. Gunnar til­kynnti nýj­ung sem snýr að tengslum við mið­il­inn DV sem bæt­ist við Mannlíf sem hafa staðið á bak við Þvotta­húsið og nú Alkastið síðan að Smartland kan­selaði Þvotta­hús­inu af póli­tískum ástæðum, að sögn þátta­stjórn­enda, sem lesa má í linknum hér fyrir neðan.

https://frettin.is/2022/01/04/vidtal-vid-gudrunu-bergmann-fjarlaegt-af-mbl-is-eftir-nokkrar-klukkustundir/

Í lok þátt­ar­ins barst talið að svipt­ingum vest­an­hafs í málum UFO eða UAP (Unidentified Aerial Phen­omena). Svipt­ing­arnar sem um ræðir hófust í lok júlí á þessu ári þegar vitna­leiðslur frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings fóru fram. Þar komu fram þrír fyrrum hátt­settir menn innan banda­ríska hers­ins og svör­uðu spurn­ingum um fljúg­andi furðu­hluti sem þeir telja sig og halda fram að þeir hafa bæði séð og heyrt af. Vitn­is­burður þess­ara vitna stað­festa frá­sögn Bob Lazar sem þótti á sínum tíma stór­merki­leg.

Robert Scott Lazar sem er einnig þekktur sem Bob Lazar, var að eigin sögn ráð­inn sem véla­verk­fræð­ingur á deild 4 á svæði 51 (e. area 51). Segist hann hafa starfað þar í um hálft ár við til­raunir og skoð­anir á bún­aði sem virt­ist vera aflgjafi flygilda sem hann vill meina að hafi náðst sem og fund­ist við forn­leifa­upp­gröft. Allt í allt segir að hann að á þessum tíma hafi geim­förin verið níu sam­tals.

Hann kom fyrst fram í við­tali árið 1989 við rann­sókn­ar­frétta­mann­inn George Knapp undir dul­nefn­inu Dennis og sagði hann ástæð­una vera að hann ótt­að­ist um líf sitt sem og að tæknin sem hann vildi meina að knúði þessi far­ar­tæki væri að því er virt­ist hund­rað pró­sent skil­virk hvað varðar orku­losun og notkun, því engin orka færi í að knýja þau áfram og mengun eða útblástur væri eng­inn. Því vlru að hans mati mik­il­vægt fyrir mann­kynið í heild sinni að fá þessar upp­lýs­ingar fram í dags­ljósið.

Bob vildi meina að ójarð­neskt efni sem hann kall­aði elem­ent 1.15 væri efnið sem gerði það að verkum að flygildin gætu ferð­ast eins og þau virt­ust gera. Sagði hann að þetta efni sem í dag er þekkt sem frum­efnið Moscovium fæli í sér eig­in­leika sem brjóta í bága við allar þær hug­myndir um hvað nútíma vís­indi telji að sé mögu­legt. Hann segir að efnið sé skorið í ákveðið form skífa og sett saman eftir ákveð­inni upp­skrift og magnað upp í eins­konar kast­ara í botni flygild­anna, þannig sé hægt að mynda tóma­rúm í rými. Inn í þetta tóma­rúm fellur svo farið í þær áttir sem köst­ur­unum er beint og hug­takið ferða­lag eða „tran­sport“ fellur nán­ast um sjálft sig því tak­mark­anir eins fel­ast í kenn­ingum Einstein um að engin eind geti ferð­ast hraðar en ljósið, gilda hrein­lega ekki lengur.

Allt þetta og meira til í við­tal­inu sem finna má á öllum helstu streym­isveitum og í mynd­skeið­inu hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð