Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjarni Benediktsson bannaði blökkumanni að skemmta á Íslandi: „Einhliða og heimskuleg ráðstöfun“

Bjarni Benediktsson bannaði blökkumanni að skemmta á Íslandi: „Einhliða og heimskuleg ráðstöfun“

Árið 1947 hafði und­ir­bún­ingur staðið yfir um langt skeið við að koma hinum heims­þekkta djassista, Rex Stewart til lands­ins ásamt hljóm­sveit sinni. Átti hann að koma fram á 2-3 tón­leikum en allt kom fyrir ekki. Dóms­mála­ráð­herran Bjarni Bene­dikts­son setti lög sem bann­aði erlendum tón­list­ar­mönnum að koma til lands­ins. Þótti mörgum það skrítin til­viljun að þessi lög hafi verið sett rétt áður en blökku­maður boð­aði komu sína með hljóm­sveit sinni.

Þjóð­vilj­inn skrif­aði harð­orða grein um málið og spurði hvort um kyn­þátta­of­sóknir væru að ræða:

Er Bjarni Ben. að heyja kyn­þátta­of­sóknir hér á landi?

Að því er Vísir skýrði frá í gær hefur hinni banda­rísku blökku­manna­hljóm­sveit Rex Stewarts verið neitað um land­vist­ar­leyfi hér á landi. Bjarni Bene­dikts­son dóms­mála­ráð­herra hefur bannað allar skemmt­anir útlend­inga hér á landi. Síðustu árin hafa flykkzt hingað til lands alls­konar lodd­arar og trúðar og aug­lýstir sem lista­menn. Hafa flest borg­ara­blöðin lofsungið hástöfum þenna dáleiðslu- og fettu­brettu­lýð sem lista­menn af guð­snáð, enda hafa þeir rakað saman fé með „skemmt­unum“ sínum. Það hefði vit­an­lega verið eðli­leg og sjálf­sögð ráð­stöfun að tak­marka eða banna með öllu starf­semi slíkra manna — og hefði átt að gerazt fyrir löngu. En það er þá fyrst að Bjarni Ben. vaknar í þessu efni þegar blökku­manna­hljóm­sveit er vænt­an­leg til lands­ins. Henni var ekki ætlað að halda hér nema 2 hljóm­leika og átti hún ekki að fá eyri hér í erlendum gjald­eyri, heldur ein­ungis far­gjald frá New York til Kaup­manna­hafnar greitt í ísl. pen­ingum og uppi­hald meðan hún dveldi hér. Henni synjar Bjarni Ben. um land­vist­ar­leyfi, og mun hún þó vera mun betri í sinni grein en trúðar þeir sem hér hafa verið að flækj­ast und­an­farið. Það vekur því illan grun um að Bjarni Bene­dikts­son láti hér stjórn­ast af kyn­þátta­for­dómum sínum, einkum þegar þess er gætt að á sama tíma eru erlendir trúðar á hring­för um landið að raka saman því fé sem þeim er unnt, en ekki hefur heyrzt getið að starf­semi þeirra hafi verið bönnuð. Að banna skemmt­anir allra útlend­inga er ein­hliða og heimsku­leg ráð­stöfun. Und­an­farin sumur hafa komið hingað á vegum Tón­list­ar­fé­lags­ins nokkrir af beztu tón­list­ar­mönnum heims­ins. Ef banna ætti með öllu komu slíkra manna værí það ein­ungis til þess að setja skræl­ingja­stimpil á íslenzku þjóð­ina.

Rex Stewart

Í Tíma­rit­inu Jazz var ráð­herr­ann dreg­inn sundur og saman í háði vegna máls­ins:

Það kom eins og þruma úr heið­skíru lofti er það frétt­ist að dóms­mála­ráð­herr­ann, Bjarni Bene­dikts­son, hefði bannað hljóm­sveit Rex Stewart að skemmta á Íslandi, og ekki varð þetta bann skilj­an­legra við það, að litlu seinna kom út sú til­skipun frá sama manni, þess efnis að við­ur­kenndum lista­mönnum sé land­vist heimil en trúðum bönnuð.
Því var almennt trúað áður en þessi til­skipan var send út að hinn hljóm­list­ar­elsk­andi ráð­herra væri vel að sér í íslenzkri tungu, þar sem hvert manns­barn veit, að „trúður“ er nafn á fjöl­leika­fólki og öðru fólki, er gerir það að atvinnu sinni að leika á fjórar munn­hörpur, standa á höndum og hafa í frammi önnur skrípa­læti, og getur því ekki átt við hljóm­lista­menn, eða vill Bjarni Bene­dikts­son kalla íslenzka hljóm­lista­menn trúða, þar sem hann veit að flestir hljóm­lista­menn hér leika jazz.

En þar sem íslenzkukunnátta þessa manns var svo bág­borin, hleypti hann inn hinu munn­hörpu­leik­andi og hopp­andi fjöl­leika­fólki, en stöðv­aði hina frægu hljóm­sveit Stewarts, með þeim for­sendum að þetta gætu Íslend­ingar sjálfir, og vill með öðrum orðum halda því fram, að hinum klassisku hljóm­lista­mönnum vorum veitti ekki af að læra.
Það allra skemmti­leg­asta við þennan atburð er hinn mikli hljóm­lista­á­hugi hins sjálf­skip­aða „tón­lista­mála­ráð­herra“, og hér eftir er það Bjarni Bene­dikts­son, sem velur og hafnar þeim lista­mönnum, er til lands­ins vilja koma, og er það virð­inga­vert hve mikla auka­vinnu „tón­lista­mála­ráð­herr­ann“ leggur á sig, enda er hann þreyttur mjög um helgar og er skilj­an­legt að hann tali þá ekki við hvern sem er, sér­stak­lega ekki ef það á við þessa vit­lausu tón­lista­menn, er vilja ekki láta hann hafa vit fyrir sér, og vita ekki að Bjarni Bene­dikts­son hefir miklu meira vit á tón­list en þeir.

Ungur maður hér í bæ sagði við mig í sam­bandi við þetta mál: „Þetta minnir mig á þann atburð, er kven­fé­lög í Washington bönn­uðu Marion Anderson, hinni svörtu söng­konu að syngja í söng­höllum Washington-borgar vegna þess að hún var svört, en Marion var ekki að baki dottin og söng undir Lincoln-minn­is­merk­inu fyrir 40,000 áheyr­endum“. Hvílíkur sigur tón­list­ar­innar yfir hug­mynda­snauðum og kreddu­fullum and­stæð­ingum. Þetta bann Bjarna Bene­dikts­sonar á skemmt­unum Stewarts á Íslandi minnir á, er Duke Ell­ington var bannað að leika í Þýzkalandi á stjórn­ar­tímum Hitlers sál­uga, en hann var einnig mik­ill jazzhatari og urðu þýzku jazzklúbbarnir að fara „undir jörð­ina“ eins og það var orðað, og sigur banda­manna í styrj­öld­inni var einnig sigur jazzins yfir kreddum í flestum löndum.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 10. júlí 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð