Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Einkamálaauglýsing í Bændablaðinu reyndist grín sem gekk of langt – Íhuguðu að skipta um símanúmer

Einkamálaauglýsing í Bændablaðinu reyndist grín sem gekk of langt – Íhuguðu að skipta um símanúmer
Helgu Ósk Helga­dóttir

Helga Ósk Helga­dóttir á það til að hrekkja fólk en á dög­unum gekk grínið aðeins of langt. Það sem byrj­aði sem létt spaug við eld­hús­borð heima hjá for­eldrum vin­konu hennar, hefur breyst í and­hverfu sína.

Helga, sem býr á Egils­stöðum, var að gant­ast í vin­konu sinni ásamt for­eldrum vin­kon­unnar, og reyna að finna leiðir fyrir hana til að ná sér í maka. Datt þá Helgu í hug að senda inn einka­mála­aug­lýs­ingu í Bænda­blaðið og var hlegið að þeirri hug­mynd. En Helga ákvað að gera alvöru úr hug­mynd sinni og sendi inn einka­málaug­lýs­ingu í Bænda­blaðið. Í aug­lýs­ing­unni, sem sjá má hér fyrir neðan, er sagt að 26 ára mynd­ar­leg kona, sjúkra­liði á Aust­ur­landi, aug­lýsi eftir maka sem allra fyrst. Hún hafi brenn­andi áhuga á köttum, því ætti hunda­fólk að sleppa því að hafa sam­band. Auglýst er eftir fólki á milli 26 ára og 32. Þá er tekið fram að for­eldrar hennar séu „komnir með upp í kok af því að hún sé ein­hleyp og vantar for­eldra fleiri barna­börn sem eru ekki loð­börn.“ Undir aug­lýs­ing­una birti Helga síma­númer for­eldra vin­kon­unnar. Og akkurat það er ástæðan fyrir því að grínið súrn­aði hratt eftir birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar.

Sími for­eldr­anna hefur ekki stoppað síðan aug­lýs­ingin birt­ist á dög­unum og hafa for­eldr­arnir íhugað að skipta um síma­númer, slíkt hefur álagið verið. Faðirinn vinnur á sjúkra­bíl og þarf að hafa sím­ann lausan ef ske kynni að hann yrði kall­aður út.

Helga skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hún vildi árétta að aug­lýs­ingin sé grín og að hún standi á bak­við þetta, ekki for­eldrar vin­kon­unnar.

„Hallo ! Mig grunar að þó nokkuð margir hafi seð þessa auglys­ingu úr Bænda­blað­inu og halda eflaust flestir að for­eldrar stelpu greys­ins hafi sent þetta inn til þeirra en það er ekki til­fellið! Ég sendi þetta inn um vin­konu í gríni sem hefur gengið aaaað­eins of langt!!!

Part­ur­inn um for­eld­rana er algjör upp­spuni af minni hálfu!“

Mannlíf ræddi laus­lega við Helgu sem er full eft­ir­sjár vegna gríns­ins. Segir hún að álagið á for­eld­rana hafi verið gríð­ar­legt und­an­farið. „Sko allar útvarps­stöðvar lands­ins eru búnar að reyna að hringja ásamt því að gefa upp síma­númer for­eldr­anna i beinni.“ Þá hafi ótal von­biðla sent skila­boð á sam­fé­lags­miðl­anna og boðið sig fram en að sögn Helgu er vin­konan hæstá­nægð með að vera ein með kött­unum sínum.

Aðspurð hvort búið sé að banna hana inni á heim­ili for­eldr­anna svar­aði hún: „Jú,jú, þau hafa fyr­ir­gefið mer en vin­konan ekki alveg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð