Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ísraelskt par veittist að listakonu í miðborg Reykjavíkur með öskrum: „Þetta drepur Ísland!“

Ísraelskt par veittist að listakonu í miðborg Reykjavíkur með öskrum: „Þetta drepur Ísland!“
Lista­verk Juliu Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lista­konan Julia Mai Linnéa Mar varð fyrir aðkasti ísra­elskt pars í miðbæ Reykja­víkur, þegar hún var að mála lista­verk til stuðn­ings Palest­ínu, á vegg.

Julia Mai Linnéa Mar, birti mynd­skeið á Instagram sem sýnir par veit­ast að henni með dóna­skap og blammer­ingum, fyrir að mála lista­veggið á opin­berum stað. Í byrjun er parið nokkuð rólegt en smá saman æst­ust leikar. Spurðu þau Juliu í upp­hafi hvort hún hefði fengið leyfi fyrir lista­verk­inu sem hún svarar ekki en seg­ist hafa rétt á að tjá sig. Konan segir henni svo að verkið sé móðgun við hana. „Sjáðu hvað ég skelf? Ég skelf þegar ég sé þetta. Af því að þessi fáni [bendir á palest­ínska fán­ann] drap mitt fólk, drap fjöl­skyldu mína.“ Segir konan svo að móðir hennar, sem sé níræð, hafi ekki kom­ist út úr húsi í sex mán­uði en hún búi í 20 mín­útna fjar­lægð frá Gaza. Julia spurði þá hvort móðir henna væri enn á lífi. Bætir svo við að Ísraelar hafi drepið yfir 12 þús­und manns. Við það reið­ist mað­ur­inn og segir: „Nei, þú skalt hafa þetta rétt. Hvað er Hamas fyrir þér?“ Julia svar­aði: „Hvað er Hamas fyrir mér? Ég er ekk­ert að styðja það sem Hamas er að gera.“ Bendir þá mað­ur­inn á lista­verkið, sem sýnir konu með dáið unga­barn í fang­inu inni í hjarta, og öskrar: „Jú, með þessu! Þetta er Hamas! Þetta er Hamas (og bendir á palest­ínska fán­ann.“ Lista­konan svarar: „Nei, þetta er Palest­ína.“ Öskrar þá mað­ur­inn: „Hamas drepur fólk og þetta drepur Ísland! Hamas drepur sín börn!“ Þarna er konan byrjuð að draga mann­inn í burtu en Julia svar­aði honum rólega: „Nei, þetta er ekki Hamas, nei þetta drepur ekki Ísland.“

Við færsl­una skrif­aði Julia eft­ir­far­andi texta:

„Hér er ég að nýta mitt tján­ing­ar­frelsi til að bera fram boð­skap palest­ínsku þjóð­ar­innar á frið­sam­legan hátt og fékk í kjöl­farið yfir mig þessa hat­urs­orð­ræðu sem sést í þessu mynd­bandi. Fólkið í mynd­band­inu veitt­ist að mér á almanna­færi og sá vel að ég var að taka upp mynd­band. Þau höfðu því val um það að stíga frá mér og úr mynd í stað þess að halda áfram að ráð­ast á mig með orðum. Þar af leið­andi tel ég rétt­læt­an­legt að birta þetta fyrir allra augum, enda ætti fólk ekki að hrópa svona hluti í mynd­bands­upp­töku í almenn­ings­rými ef þeir mættu ekki vera á almanna­vit­orði. Ég mun ekki hætta að segja #FrjalsPalest­ína ❤️“

Hin ótrú­legu sam­skipti má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð