Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dómsmálaráðherra mun ekki hafa afskipti af máli Eddu: „Þessi ákvörðun byggir því á íslenskum lögum“

Í nýrri til­kynn­ingu sem birt­ist fyrir stuttu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins er greint frá því að dóms­mála­herra muni ekki hafa afskipti máli Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur. Sumt fólk hefur kallað eftir því að dóms­mála­ráð­herra stoppi fram­sal Eddu Bjarkar til Noregs og sagt að það sé verið að brjóta á rétt­indum hennar.

Hægt er að lesa til­kynn­ing­una hér fyrir neðan.

„Mál sem varða fjöl­skyldur og börn eru oft­ast með við­kvæm­ustu og erf­ið­ustu málum sem stjórn­völd þurfa að fást við. Eru því gerðar ríkar kröfur til þess í lögum að með slík mál fari til þess bær stjórn­völd, sem starfa eftir skýrum lögum og reglum og með það að leið­ar­ljósi að gæta allra við­eig­andi hags­muna í hverju máli fyrir sig. Vegna þess máls sem verið hefur til umfjöll­unar í fjöl­miðlum er mik­il­vægt að árétta að þær ákvarð­anir sem verið er að fram­fylgja hafa verið teknar af sjálf­stæðum stjórn­völdum á grund­velli laga.

Norræn hand­töku­skipun byggir á lögum nr. 51/2016 um hand­töku og afhend­ingu manna til og frá Íslandi vegna refsi­verðra verkn­aða á grund­velli hand­töku­skip­unar, en þau lög byggja á samn­ingi milli Norð­ur­land­anna sem und­ir­rit­aður var þann 15. des­em­ber 2005. Áður en samn­ing­ur­inn um nor­rænu hand­töku­skip­un­ina tók gildi voru í gildi lög nr. 7/1962 um fram­sal saka­manna til Dan­merkur, Finn­lands, Noregs og Sví­þjóðar. Íslensk stjórn­völd hafa því síðan 1962 fram­selt íslenska rík­is­borg­ara til Norð­ur­land­anna.

Með til­komu samn­ings­ins um nor­rænu hand­töku­skip­un­ina urðu þær breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi fram­sals milli Íslands og Norð­ur­land­anna, að komið var á fót ein­fald­ara og skil­virkara fyr­ir­komu­lagi um afhend­ingu saka­manna. Fyr­ir­komu­lagið bygg­ist á gagn­kvæmri við­ur­kenn­ingu á ákvörð­unum dóms­mála­yf­ir­valda við­kom­andi ríkja. Þá varð sú breyt­ing á að rík­is­sak­sókn­ara var falin öll máls­með­ferð þess­ara mála og ákvörðun um hvort orðið skuli við beiðni um afhend­ingu. Þá ákvörðun er svo alltaf hægt að bera undir íslenska dóm­stóla. Rík­is­sak­sókn­ari hefur jafn­framt heim­ild til að fara fram á úrskurð dóm­stóla um þving­un­ar­ráð­staf­anir, þ.m.t. gæslu­varð­hald, til að fram­fylgja ákvörð­unum um afhend­ingu á grund­velli fyrr­nefndra laga. Slíkir úrskurðir hafa ekki áhrif á fram­kvæmd ákvörð­unar um afhend­ingu.

Dóms­mála­ráð­herra og ráðu­neyti hafa enga aðkomu að með­ferð þess­ara mála og hafa engar heim­ildir til að beita sér í þeim. Í því máli sem verið hefur til umfjöll­unar í fjöl­miðlum hefur rík­is­sak­sókn­ari tekið ákvörðun um að afhenda skuli við­kom­andi til Noregs á grund­velli fyrr­nefndra laga nr. 51/2016 og hefur sú ákvörðun verið stað­fest bæði af Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og Lands­rétti. Þessi ákvörðun byggir því á íslenskum lögum og nið­ur­stöðu íslenskra dóm­stóla. Rík­is­sak­sókn­ari og dóm­stólar á Íslandi eru sjálf­stæðir í störfum sínum og taka ekki við fyr­ir­mælum frá öðrum stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð