Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Umdeildur pistill um Sigga Gunnars tekinn úr birtingu: „Tókst að verða sjálfum sér til skammar“

Umdeildur pistill um Sigga Gunnars tekinn úr birtingu: „Tókst að verða sjálfum sér til skammar“
Siggi Gunnars. Mynd: podtail.com

Sigurjón Magnús Egilsson, rit­stjóri Miðj­unnar, tók umdeildan pistil úr birt­ingu á Miðjunni en pistla­höf­undur sakar hann um að vega að tján­ing­ar­frelsi sínu.

Jóhann Þor­varð­ar­son hefur skrifað alls 1100 aðsenda pistla sem birst hafa á Miðjunni en sá nýjasti, sem ber heitið Ég er mestur, ég er bestur og ég er allt sem ég vil vera, féll ekki í kramið hjá rit­stjóra Miðj­unnar og að því er virð­ist ekki hjá les­endum heldur. Pistill­inn fjallar að miklu leiti um Sigurð Þorra Gunn­ars­son, fjöl­miðla­mann á Rík­is­út­varp­inu, sem stundum er kall­aður Siggi Gunnars og meinta spill­ingu rík­is­mið­ils­ins. Greinin birt­ist þriðja des­em­ber en um hádeg­is­bilið í dag fékk Jóhann stuttan tölvu­póst frá Sig­ur­jóni þar sem honum er tjáð að margar athuga­semdir hefðu borist vegna pistils­ins og því hafi hann beðið Sigurð Þorra afsök­unar og tekið pistil­inn úr birt­ingu.

Jóhann er allt annað en ánægður með ákvörðun rit­stjór­ans og telur hann vega að tján­ing­ar­frelsi sínu. „Ég fékk engar mál­efna­legar útskýr­ingar fyrir ákvörðun SME enda er greinin fyrst og fremst gagn­rýni á spill­ingu sem ríkir innan RÚV og mis­notkun á aðstöðu til­tek­inna aðila innan stofn­un­ar­innar. Greinin rekur líka hegðun Sigurðar Þorra Gunn­ars­sonar og hvernig hann er allt um liggj­andi í nán­ast öllum íslenskum skemmti­þáttum, sem RÚV er með á dag­skrá. Greinin er auð­lesin og þarfn­ast engrar útskýr­inga. Í grein­inni er eng­inn skáld­skapur eða níð heldur útlistun á atvikum sem festar hafa verið á rík­is­filmur. Ég leyfi mér aðeins að hæð­ast að SÞG, en það er allt innan vel­sæm­is­marka.“ Þetta kemur fram í tölvu­pósti til Mannlífs frá Jóhanni.

Og hann heldur áfram: „Ég tel að SME, sem hingað til hefur gert sig út sem rann­sókn­ar­blaða­mann sem vill stinga á spill­ing­ar­kýli, hafa látið undan utan­að­kom­andi  þrýst­ingi og þá kemur hirðin í kringum SÞG upp í hug­ann ásamt öflum innan RÚV og fleiri. Síðan botn­aði SME sjálfan sig með því að senda SÞG afsök­un­ar­beiðni.“

Þá segir Jóhann að Sigurjón hafi ekki gert neinar athuga­semdir við grein­ina enda hafi hún verið inni frá þriðja des­em­ber. „Ég hef skrifað hátt í 1.100 greinar inn á Miðjuna með far­sælum hætti hygg ég, en allt í einu á að taka tján­ing­ar­frelsið af mér og þagga niður spill­ingu innan RÚV. Öðruvísi mér áður brá.“

Mannlíf heyrði í Sig­ur­jóni sem vildi lítið tjá sig um málið. „Þetta er bara ákvörðun sem ég tók.“ Aðspurður hvort hann hafi tekið grein­ina úr birt­ingu vegna þess að þar kæmi fram gagn­rýni á RÚV svar­aði Sigurjón hissa: „Gagnrýni á RÚV? Nei, nei.“ En þegar hann var spurður hvort það gæti verið vegna þess að hann teldi að í grein­inni væri að finna per­sónu­níð svar­aði Sigurjón: „Ja, mér fannst svona óþarf­lega að honum vegið, ég er búinn að segja Jóhanni það.“

Aðspurður hvort Jóhann muni skrifa meira fyrir Miðjuna segir rit­stjór­inn ekki svo vera. „Nei, hann vill hætta.“

Hér fyrir neðan má lesa hinn umdeilda pistil í heild sinni:

Ég er mestur, ég er bestur og ég er allt sem ég vil vera

Þessar ljóð­línur Megasar komu upp í hug­ann þegar ég var að horfa á Vikuna með Gísla Marteini í fyrra­kvöld. Þá var hinn athygl­is­sjúki Sigurður Þorri Gunn­ars­son mættur fyrir framan rík­is­mynda­vél­arnar. Svona eins og að það sé ekki nóg að hafa hann við hljóð­nema Rásar 2 alla virka daga.

Fyrr á árinu þá spil­aði hann stóra rullu í íslenska júró­visjón­inu. Athygl­is­sýkin í þeirri lotu náði yfir að velja lög í keppn­ina og mæta í lúna þátt­inn Alla leið. Síðan var hann mættur í smóking til að stjórna úrslit­unum í beinni útsend­ingu frá  Gufu­nes­inu með til­heyr­andi maga- og brjósta­sveiflum. 

Leiðin lá þar á eftir til Liverpool þar sem aðal keppnin í júró fór fram. Tókst Sigurði Þorra að verða sjálfum sér til skammar í tvígang án þess að roðna. Fyrst með því að klæð­ast eins og ball­er­ína upp á hót­el­her­bergi og neyða íslenska sjón­varps­á­horf­endur til að horfa á her­leg­heitin. Hann gaf nefni­lega ekki út súnamí flóða­við­vörun um að tveggja metra hátt öldu­áreiti væri í aðsigi. Fólk komst ekki undan í tæka tíð. Upp­á­tækið var alveg laust við að vera kímið, en það vó svo sann­ar­lega að unn­endum góðra hátt­vísi og ball­etts. 

Til að bæta gráu ofan á svart þá tókst Sigurði Þorra að fá full­trúa Íslands í keppn­inni til að klæð­ast bún­ingi Liverpool og gera sig kjána­lega á til­tek­inni krá þar í borg. Þetta átti víst að vera spaugi­legt, en gestum ölhúss­ins stökk bara ekki bros á vör. Horfðu á mis­heppn­aða gjörn­ing­inn með van­þóknun.

Í haust var Sigurður Þorri síðan mættur enn og aftur í sjón­varp og nú sem spyrill í þátta­röð vegna 40 ára afmælis Rásar 2 þar sem hann dill­aði æki sínu í sífellu. Svo þreytu­legt var upp­á­tækið að söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Diktu, heim­il­is­lækn­ir­inn Haukur Heiðar Hauksson, fannst nóg um. Spurði hann Sigurð Þorra í hæðn­is­tón hvort hann hefði lært að dansa. Andliti Sigurðar varð sem stein­runnið við hæðn­ina. Augljóst var að hann hafði enga þol­in­mæði fyrir því að gestir þátt­ar­ins væru búnir að fá meira en nóg af end­ur­teknum brjósta- og maga­hrist­ingum spyrils­ins. Ætli Sigurður hafi ekki hætt að útvarpa lögum Diktu í kjöl­farið í einu alls­herjar móðg­un­ar­skyni? 

Sigurður Þorri var nýlega mættur í enn aðra þátta­röð­ina og nú sem álits­gjafi í Fyrst og fremst þar sem lands­menn fengu hnefa­fylli af skringi­legum skoð­unum hans á íslenskum dæg­ur­flugum. Og til að fara nú alls ekki fram hjá neinni kyn­slóð þá er hann líka dóm­ari í þátt­unum Jóla­stjarnan, sem einnig eru sýndir á laug­ar­dags­kvöldum. Í þeim er leitað að barni yngri en 14 ára til að vera jóla­stjarnan 2023. 

Svo í fyrra­kvöld, eins og sagði, þá var hann auð­vitað mættur fyrir framan mynda­vél­arnar og lét ekki lítið fyrir sér fara frekar en fyrri dag­inn. Á einum tíma­punkti þá var hann nærri því búinn að hrifsa þátta­stjórn­ina af Gísla Marteini. Sigurður tal­aði auð­vitað mest allra í þætt­inum og var með ruðn­ing gagn­vart öðrum gestum. Verst var þó að hann var alveg laus við að sýna af sér kæti í fyr­ir­gang­inum. Svo þegar loka­at­riði þátt­ar­ins með FM Belfast var að renna sitt skeið á enda og við­tals­gestir Gísla þustu upp á svið þá tók hinn kast­ljós­sjúki sér stöðu fyrir miðju sviði svo skugga lagði yfir hljóm­sveit­ar­með­limi. Honum skortir aug­ljós­lega alla hóf­semi.  

Ég spyr hvort RÚV sé að verða ein­hver einka­mið­ill Sigurðar Þorra, sem veitir honum ótæpi­legan aðgang að sviðs­ljós­inu á kostnað jafn­ræðis gagn­vart öðru fólki, sem áhuga hefur á að hasla sér völl í sjón­varpi. Og spyrja verður hvort Sigurður Þorri og félagar séu að mis­nota aðstöðu sína innan RÚV því ekki eru það sjá­an­legir hæfi­leikar sem koma mann­inum í alla sjón­varps­þætt­ina. Það er öðru nær. Að einn og sami mað­ur­inn sé allt um liggj­andi er afar óeðli­legt ástand sem kallar á rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð