Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Styrkja Grindvíkinga með uppboði: „Þekkjum af eigin raun hinar ýmsu jarðhræringar“

Ásdís Hoffritz með tvö af olíu málverkum sem verða á uppboðinu.
Ásdís Hoffritz með tvö af olíu mál­verkum sem verða á upp­boð­inu.

Myndlistar­félag Árnes­sýslu hefur ákveðið að halda upp á málverkum til að styrkja íbúa Grinda­víkur við að lifa við þær erfiðu aðstæður sem það gerir núna. Það eru hátt í 40 verk og hátt í 25 félags­menn sem taka þátt í uppboðinu og hægt að fá gífurlega falleg verk og styrkja Grinda­víkinga í leiðinni. Mannlíf heyrði í Berglindi Björgvins­dóttur, formanni Myndlistar­félags Árnes­sýslu, til að spyrjast fyrir um uppboðið.

Berglind Björg­vins­dóttir ,for­maður Mynd­list­ar­fé­lags Árnes­sýslu.

„Myndlistar­félag Árnes­sýslu ákvað að leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim Grind­víkingum sem þurfa á hjálp að halda. Það hefur verið frábært að sjá samstöðu í þjóðinni, fólk að lána húsnæði, gefa fatnað, leikföng, húsgögn og fleira. Pjetur Hafstein félags­maður fékk þá frábæru hugmynd að við gætum gert eitthvað til þess hjálpa og niður­staðan var sú að félags­menn voru svo frábærir að vilja gefa verk til þess að styrkja Grind­víkinga,“ sagði Berglind um hvernig það kom til að félagið ákvað að halda uppboð til styrktar Grind­víkingum.  „Við höfðum samband við Rauða Krossinn og þeir eru með reikning sem er eyrna­merktur Grind­víkingum til að styðja við þá og við munum því með uppboðinu selja verk eftir félags­menn og rennur andvirði verkanna óskipt í sjóðinn hjá Rauða Krossinum fyrir Grind­víkinga.  Við viljum rétta fram hjálpar­hönd, margt smátt gerir eitt stórt.“

„Það er mjög erfitt að setja sig í aðstæður heima­manna í  Grindavík,“ sagði Berglind um ástandið í Grindavík. „Að geta gert eitthvað til þess að hjálpa skiptir því máli, við í Myndlistar­félaginu viljum leggja fram hjálpar­hönd á þann hátt sem við getum og gefum málverk á uppboðið,“ en uppboðið fer fram á Hótel Selfossi sunnu­daginn 17. September klukkan 14:00. „Þá verður uppboðið haldið og gefst tækifæri til þess að bjóða í falleg málverk á staðnum. Það verða vatns­lituð verk, blek teiknuð verk, akrýl- og olíu málverk. Öll verkin eru mjög ólík og stærðirnar eru einnig ólíkar, en það ættu allir að geta fundið sér málverk inn á sitt heimili eða í jóla­pakkann til þeirra sem hafa áhuga á list.“

Pjetur Hafstein lista­maður með eitt af verkum sínum sem verða á upp­boð­inu.

„Það hefur verið ótrúlega flott samstaða í þjóð­félaginu í þessum jarð­hræringum á Reykjanesi, hvort sem það eru stjórn­völd, fyrirtæki eða einstaklingar,“ sagði formaðurinn um viðbrögð þjóð­félagsins í þessu máli. „Það er því ánægjulegt fyrir Myndlistar­félagið að taka þátt og láta gott af sér leiða í þessum erfiðu aðstæðum,“ en Sunnlendingar eru alls ekki ókunnir jarð­skjálftum og eldgosum.

„Við Sunnlendingar þekkjum af eigin raun hinar ýmsu jarð­hræringar eins og stóra jarð­skjálfta, líkt og Suðurlands­skjálftann og til dæmis eldgosið í Eyja­fjallajökli. Ég vona innilega að uppboðið sem Myndlistar­félagið stendur fyrir heppnist vel og að það komi til góðs fyrir marga Grind­víkinga sem þurfa á því að halda. Við vonumst eftir jóla­kraftaverki og að Grind­víkingar komist heim fyrir jólin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp